SunnudagsMogginn - 12.09.2010, Side 32
32 12. september 2010
Þ
riðja plata Megasar heitir Fram
og aftur blindgötuna. Nafn
hennar gæti verið lýsing á rík-
isstjórninni og ekki bara þessari
ríkisstjórn heldur mörgum öðrum rík-
isstjórnum, en það merkilega við rík-
isstjórnir er að þær rata oft ágætlega um
eigin blindgötur. Stefnuleysið er stefna,
afskiptaleysið afstaða. Það er til að mynda
útbreiddur skilningur – eða eigum við að
segja misskilningur – að hrunastjórn
Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur hafi sofið á verðinum. Þvert á
móti, það var beinlínis stefna þeirrar
stjórnar að ganga í svefni og skipta sér
sem minnst af fjármálakerfi þjóðarinnar.
Að því leyti var sú ríkisstjórn fullkomlega
á vakt í svefni sínum. Ríkisstjórn Stein-
gríms J. Sigfússonar og Jóhönnu Sigurð-
ardóttur kennir sig við félagshyggju og
norræna velferð, en hún er engu að síður
ríkisstjórn fjármálafyrirtækjanna. Hún
hlustar af mun meiri athygli á skilanefnd-
ir bankanna en fólkið í landinu og fjár-
málafyrirtækin eiga huga hennar og
hjarta. Samt er þetta fyrsta hreinræktaða
vinstristjórnin. Hún var kosin sem slík í
kjölfar mestu uppþota sem orðið hafa í
landinu. Því skyldi maður ætla að alvöru-
vinstristefnu hefði verið hrint í fram-
kvæmd. Að tekið yrði á auðkýfingunum,
eignarhaldsfélögunum, spillingunni,
auðlindamálunum og lýðræðinu, sem og
hinum almenna forsendubresti í lána- og
fjármálakerfinu. Til þessa hafði rík-
isstjórnin umboð kjósenda.
En ríkisstjórnin ákvað frekar að ganga
fram og aftur blindgötuna eða eiginlega
upp og niður bankastrætið, bæði í bók-
staflegri merkingu og sögulegri. Banka-
stræti sögunnar, það er hennar leið. Hún
hverfur niður í Bankastræti núll, gamla
almenningssalernið, sem í kaldhæðni
sinni stendur við hliðina á stjórnarráðinu.
Kannski lætur ríkisstjórnin fjarlægja al-
menningssalernið, leggja niður Banka-
stræti núll, til að breiða yfir hreingern-
ingarnar. Fjármálaráðherrann hrópar:
Allir að þrífa, en í rauninni eru það bara
nokkrir óknyttapiltar sem hafa rústað al-
menningssalernið, en þeir eru löngu
sloppnir og þurfa ekki að hafa neinar
áhyggjur af hreingerningunum því fjár-
málaráðherrann og stjórn hans hafa ráðið
okkur öll, alla þjóðina til þeirra verka. Er
til dæmis eðlilegt, bara svo dæmi sé tekið,
að gömlu Baugs- og FL-auðjöfrarnir geti
verið með tugi ef ekki hundruð eign-
arhaldsfélaga á sínum snærum og hagað
sér eins og börn í feluleik við yfirvöld, að
hægt sé að láta eignir hoppa á milli félaga
eins og í tölvuleik, og ef yfirvöld mæta á
vettvang er allt tómt og lok lok og læs og
allt í plati. Og af hverju eru allir aðstoð-
armenn samfylkingarráðherranna gamlir
jaxlar úr Landsbankanum, sumir jafnvel
illa skemmdir? Og hvað eru sömu menn-
irnir að gera inni á öllum skrifstofum sem
opnaðar eru? Spunameistarar úr gamla
fjármálkerfinu spinna fyrir ríkisstjórnina;
og allt er þetta mikill spuni.
Á meðan þessu öllu fer fram talar
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
við okkur eins og duglegur verkstjóri:
Svona drífið ykkur út að vinna! Sýnið
hvað í ykkur býr! Svona! Brettið upp
ermar! Enga leti! Við höfum þetta! Já já já,
ég veit þetta er erfitt, en við erum að
moka okkur út úr haugnum. Sjáið þið
ekki skaflinn? Og niðurstaðan er sú að
eini flokkurinn sem ekki tók þátt í sukk-
inu situr með sukkið í fanginu. Þetta við-
horf sýnir uppgjöfina gagnvart verkefn-
inu sem þjóðfélagið stendur frammi fyrir.
Stjórnarflokkarnir eru tilbúnir að velta
sukkinu yfir á almenning og fjár-
málaráðherrann fær sitt klapp á bakið þó
að hann uppskeri líka vanþakklæti sem
ekki birtist síst í því að fulltrúar hrun-
flokkanna láta svipuhöggin dynja á baki
hans, en af því að fjármálaráðherrann er
hraustmenni, sem lætur sig ekki muna
um að ganga með bakpoka yfir landið
þvert og endilangt, þá kveinkar hann sér
ekki og axlar ábyrgðina á verkum hrun-
verjanna sem standa spjátrungslegir og
vilja ekkert kannast við eigin fortíð.
Vinstri græn, flokkur fjármálráðherra
styður við bakið á sínum manni – eða það
gerir stór hluti hans – og hluti þjóð-
arinnar tekur ofan fyrir honum fyrir þá
dirfsku að sigla skipinu út úr skerjagarð-
inum, löskuðu og leku, en samt á floti.
Steingrímur J. er eins og skipstjóri í stór-
mynd, bjargvættur, en því miður glatast
öll félagshyggja, öll velferðarhyggja og
vinstristefna á leiðinni, því skipstjórinn
ætlar að bjarga öllu einn og vill ekki hafa
neina nálægt sér. Sérstaklega ekki sam-
herja sína, sérstaklega ekki almenning.
E
itt ár er langur tími, sérstaklega
á Íslandi, þó að árin hlaupi
áfram og stundum séu hlaupár.
Menn taka hamskiptum og fara
heljarstökk. Haustið 2008, þegar allt
hrundi, reis Steingrímur J. Sigfússon upp
og sagði að það yrði uppreisn í landinu ef
gengið yrði að skilmálum Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins. Þá var Steingrímur J. Sig-
fússon þingmaður en nú er hann ráð-
herra. Þetta þýðir að ef hann ætlaði að
taka sjálfan sig á orðinu yrði hann að gera
uppreisn gegn sjálfum sér. Þá stæði Stein-
grímur J. Sigfússon fyrir utan þinghúsið í
bjarma rauðra blysa og mótmælti Stein-
grími J. Sigfússyni fjármálaráðherra inni í
þinghúsinu. Fjármálaráðherrann fer að
verða eins og fólkið í megrunar- og lík-
amsræktarauglýsingunum, fyrir og eftir,
nema hvað hann lítur alveg eins út og ber
aldurinn vel. Hver er munurinn á ráð-
herra með hugsjónir og ráðherra án hug-
sjóna? Getur sami maðurinn verið bæði
raunsær og óraunsær? Eða er veruleikinn
óraunsær og allt ruglið raunveruleiki?
Rithöfundur sem fyrir nokkrum árum
hefði látið sér detta í hug allt sem stendur
í Rannsóknarskýrslu Alþingis hefði verið
talinn skýjaglópur. Það er í sjálfu sér eng-
in mótsögn fólgin í þeirri stöðu sem rík-
isstjórn fjármálaráðherrans er í og því
hvernig jafnaðamenn fara með völd sín.
Þeir hafa fólkið með sér en vinna gegn
fólkinu. Svo snýst fólkið gegn þeim og
veðjar þá jafnvel á enn verri hest. Bæði
formaður Sjálfstæðisflokksins og Fram-
sóknarflokksins standa á hliðarlínunni og
halda að þeir séu prinsarnir sem beðið er
eftir. Samt sjá allir að þeir eru bara froskar
og klæði þeirra tötrar nýfrjálshyggju og
spillingar. Þeir myndu fylgja nákvæmlega
sömu stefnu og stjórnvöld gera nú, eða
réttara sagt, stjórnvöld fylgja þeirra
stefnu, gömlu fjármálastefnunni sem
veltir kostnaðinum og kreppunni yfir á
almenning en slær skjaldborg um fjár-
málafyrirtæki og auðjöfra. Þess vegna á
Steingrímur J. fjármálaráðherra að vita að
við sem höfnum afarkostum Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins
viljum ekki hrunverjana aftur. Fram-
sóknarflokkurinn á ekkert erindi í stjórn-
mál fyrr en hann hefur gert upp við for-
tíðina. Það nægir ekki að skipta bara um
andlit og fara í önnur föt. Framsókn-
armenn þurfa að gera upp við hrunverj-
ana, kalla þá inn á teppið og láta þá bæta
fyrir brot sín. Fyrr er tómt mál að tala um
endurnýjun í Framsóknarflokknum.
Stjórnvöld ætla ekki að vísa skaðanum
til þeirra sem ollu skaðanum heldur
þeirra sem urðu fyrir honum. Ég hef áður
vísað í sjónvarpsviðtal við Steingrím J.
Sigfússon. Það var tekið fyrir kosning-
arnar árið 2007 og hann spurður að því
hvort hann væri sósíalisti. Honum var
greinilega brugðið og túlkaði ég viðbrögð
hans svo að hann væri svo óvanur að
heyra orðið sósíalismi af vörum frétta-
manna að hann vissi ekki hvaðan á sig
stæði veðrið. Hann var á svipinn eins og
hann hefði aldrei heyrt aðra eins vitleysu.
Og nú er það ég sem verð að biðjast af-
sökunar. Það var ég sem misskildi málið.
Maðurinn hafði ekki heyrt aðra eins vit-
leysu og þá að hann væri sósíalisti. Menn
þurfa ekki að staldra lengi við hjá Vinstri
grænum til að sjá að þar ríkir enginn póli-
Fram og
aftur blind-
götuna
Blásið var í vúvúsela
og búsáhöldum klingt
þegar 500 manns mót-
mæltu fyrir utan Seðla-
bankann í sumar.
Skoðun
Einar Már
Guðmundsson
’
En við erum með ríkisstjórn sem heyrir ekki glamr-
ið í pottunum sem kom henni til valda, tekur ekki
mark á Nei-inu sem þjóðin sagði í atkvæðagreiðsl-
unni í byrjun mars.
’
Hver er munurinn á ráðherra með hugsjónir og
ráðherra án hugsjóna? Getur sami maðurinn verið
bæði raunsær og óraunsær? Eða er veruleikinn
óraunsær og allt ruglið raunveruleiki?