SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 12.09.2010, Qupperneq 50

SunnudagsMogginn - 12.09.2010, Qupperneq 50
50 12. september 2010 L jósmyndamiðillinn verður í fyr- irrúmi í Listsaafni Íslands á fimmtudaginn kemur, en þá verða opnaðar sýningar á verkum Péturs Thomsen og Ólafs Elíassonar. Sýn- ing Péturs í Listasafninu kallast Aðflutt landslag, 29 stórar ljósmyndir sem hann tók á árunum 2003 til 2006 á fram- kvæmdasvæði Kárahnjúkastíflu og Háls- lóns. Nokkur þessara verka hafa sést á síð- ustu árum og vakið umtalsverða athygli fyrir athyglisverða formræna nálgun en í myndunum má sjá menn og stórvirkar vinnuvélar breyta áður ósnortnu landi. Á síðustu árum hefur Pétur verið af- kastamikill á sviði skapandi ljósmyndunar, en nú um helgina lýkur í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sýningunni Thomsen & Thomsen, sem var opnuð á Listahátíð í vor. Þar er stillt saman ljósmyndaverkum afa og sonarsonar, en Pétur yngri valdi verk afa síns og setti sýninguna saman. Á henni eru stofuportrett og myndir af byggingaframkvæmdum á Reykjavík- ursvæðinu. Pétur lagði stund á nám í listasögu og ljósmyndun sem myndlist í Frakklandi en þá var undirbúningur að Kárahnjúkavirkj- un hafinn. „Ég fylgdist því úr fjarlægð með umræð- unum og deilunum um þær framkvæmdir allar,“ segir Pétur þegar hann er spurður út í Aðflutt landslag. „Þegar ég kom heim sumarið 2003 var ég ekki búinn að átta mig á því hvernig ég ætti að taka þátt í um- ræðunni, en fannst ég þurfa að gera eitt- hvað, á minn hátt. Umræðan snerti mig, enda hafði ég unnið í álveri í fimm ár.“ Það var svo þetta sumar að Pétur var að flétta Lesbókinni og rakst á ljóðið Aðflutt landslag eftir Svein Yngva Egilsson að „eitthvað small í höfðinu“ á honum. „Ég sá þá skyndilega fyrir mér hvernig ég gæti tekið á málinu og um leið hvernig ég gæti tekið á íslensku landslagi,“ segir Pétur. „Ég hef alltaf átt erfitt með að taka landslagsmyndir. Það var ekki fyrr en þarna sem ég sá fyrir mér hvernig ég ætti að gera þetta.“ Strax um haustið fór hann síðan í fyrstu ferðina að Kárahnjúkum. „Fyrst var ég í rúmlega tvær vikur og á þeim tíma mótaðist fagurfræðilega nálg- unin, eins og að fjarlægja sjóndeild- arhringinn og láta alla þessa veggi þrengja að sjónarhorninu. Síðan fór ég nokkrar ferðir austur á hverju ári, út árið 2006. Frá 2004 hef ég verið að sýna myndir úr verkefninu en sýni það fyrst núna í heild.“ Pétur kaus að mynda á stóra blaðfilmu- vél en með þeirri tækni auðnast honum að sýna smæstu atriði í mikilli skerpu. „Ég sá strax að það tæki sem hentaði best væri 4 x 5 tommu blaðfilmuvélin og aðdráttarlinsa. Í þessari stóru filmu er svo mikið af upplýsingum, öll smáatriðin sem eru að gerast fyrir framan vélina og mér þótti svo áhugaverð. Þessi filmustærð býður líka upp á að prenta myndirnar stórar í miklum gæð- um og loks gerir þessi myndavél kleift að stjórna betur fjarvíddinni og skerpu- stillingunni en aðrar vélar. Ég breytti þannig oft fjarvíddinni í því skyni að auka tilfinninguna fyrir því að landið væri eins og að steypast yfir áhorfandann. Það hefði ég ekki getað gert með neinni ann- arri myndavél. Ljósmyndin er tæknilegt listforn og það skiptir máli hvaða tæki maður velur að nota. Maður vinnur ekki eins með allar myndavélar. Með þessari stóru vél er það talsverð aðgerð að setja niður þrífótinn og huga að myndrammanum. Til að fá formin almennilega fram, og áferðina, þá skiptir birtan gríðarlega miklu máli. Ég var t.d. veðurtepptur í tíu daga við Kárahnjúka – það var sólskin allan tímann!“ segir hann og hlær. „Sól- arbirtan er hræðileg fyrir þessa nálgun.“ Áhrif frá Kandinsky og Kant Forvitnilegt er að vita hvort afstaða Pét- urs til framkvæmdanna við Kárahnjúka birtist í þessum verkum. Hann brosir þegar hann er spurður. „Ég hef aldrei gefið afstöðu mína upp – en held hún birtist í verkunum. Ef rýnt er í þau held ég að hún geri það. Með þessari fagurfræðilegu nálgun, að reyna að nálgast eitthvað sem mætti skil- greina sem ægifegurð – sublime, þá held ég að hljóti að birtast ákveðin afstaða. Í hugtakinu „ægifegurð“ er ætíð und- irliggjandi eitthvað ógnvænlegt sem lúrir að baki fegurðinni. Það er líka alltaf mik- ilvægt í mínum huga að sýna því landi sem ég mynda virðingu og gera eins vel og ég get.“ Pétur segir að framkvæmdin við Kára- hnjúka hafi að mörgu leyti verið einstök og hún hafi verið afskaplega myndræn. „Ég þurfti að gæta þess að vera yfirveg- aður í nálguninni og reyna að horfa á þetta allt úr vissri fjarlægð. Það er mik- ilvægt með allt sem maður gerir í svona ljósmyndun, að reyna að sjá hlutina úr fjarlægð. Setja myndefnið og nálgunina í samhengi við listasöguna og ljósmynda- söguna. Og við sjálfan sig. Í ljósmyndamiðlinum er heimildagildið alltaf til staðar að einhverju leyti en ég var ekki að taka fréttamyndir eða skapa á ná- kvæman hátt heimildir um framkvæmd- ina. Frekar fjalla þessi verk um ákveðin viðhorf, eins og það hvernig íslenska þjóðin lítur á landið sitt.“ Hefur það mótað sýn Péturs að hann lagði stund á listasögu í Frakklandi? „Án efa,“ segir hann. „Þegar ég var að Myndlist Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Veðurtepptur í sólskini „Ég hef alltaf átt erfitt með að taka landslagsmynd- ir,“ segir Pétur Thomsen. Á fimmtudaginn kemur verður opnuð sýning á ljósmyndaverkum hans í Listasafni Íslands, en þar má sjá landinu umbylt við byggingu Kárahnjúkastíflu. Pétur hefur fundið leið til að mynda landslag á sinn hátt. „Ég væri vonlaus félagi í ljósmyndaklúbbi,“ segir Pétur Thomsen Morgunblaðið/Einar Falur Lesbókviðtal

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.