Fréttablaðið - 12.11.2011, Blaðsíða 4
12. nóvember 2011 LAUGARDAGUR4
STJÓRNMÁL Bjarni Benediktsson og
Hanna Birna Kristjánsdóttir, for-
mannsframbjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins, hafna því að svara
spurningalista sem Fréttablaðið
sendi þeim. Aðstoðarfólk þeirra
hafði samráð sín á milli um að
svara ekki spurningunum. Hér
á eftir fara spurningarnar sem
frambjóðendurnir svöruðu ekki:
1. Er krónan nothæfur gjald-
miðill eða er rétt að stefna að
upptöku annars gjaldmiðils? Hver
eru rökin fyrir því?
2. Hver er afstaða þín til kaup-
beiðni kínverska fjárfestisins
Nubos á Grímsstöðum á Fjöllum?
3. Styður þú hugmyndir
um Vaðlaheiðargöng og þá
fjármögnunar leið sem þar á að
fara?
4. Er þörf á að breyta fiskveiði-
stjórnunarkerfinu og þá hvernig?
5. Hefur verið of langt gengið í
niðurskurði heilbrigðiskerfisins?
Hefði verið hægt að standa öðru-
vísi að málum?
6. Fjölmörg fyrirtæki eru í fangi
bankanna. Er nægilega vel unnið
úr þeim málum og hvernig vildir
þú hátta þeim?
7. Á að ganga lengra í að koma
til móts við skuldug heimili og
fyrir tæki og þá hvernig?
8. Er þörf á breytingum á stjórnar-
skrá Íslands? Ef svo, hvaða breyt-
ingar eru brýnastar?
9. Með hvaða flokki/flokkum vilt
þú að Sjálfstæðisflokkurinn starfi
eftir kosningar? Eru einhverjir
flokkar sem Sjálfstæðisflokkurinn
á ekki að vinna með? Vinsamlegast
nefnið ákveðna flokka.
10. Gerði Sjálfstæðisflokkurinn
einhver mistök í landsstjórninni
sem leiddu til hrunsins og þá hver?
11. Hyggst þú breyta innra starfi
og starfsháttum flokksins? - kóp
Formannsframbjóðendur Sjálfstæðisflokksins sammæltust um að svara ekki Fréttablaðinu:
Bjarni og Hanna Birna vilja ekki svara
BJARNI
BENEDIKTSSON
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
S
FG
4
20
40
0
4.
20
08
GENGIÐ 11.11.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
214,4918
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,33 116,89
185,01 185,91
158,40 159,28
21,281 21,405
20,451 20,571
17,420 17,522
1,5024 1,5112
182,43 183,51
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Andrew Helgason, sonur Deboruh
Leah Bergsson, var rangnefndur í Allt-
blaðinu í gær.
LEIÐRÉTT
STJÓRNSÝSLA Hafnarfjarðarbær hefur stefnt
ríkinu fyrir dóm vegna skattainnheimtu.
Bæjarfélagið er í viðræðum við ríkið um
greiðslu 800 milljóna fjármagnstekju skatts
sem til er kominn vegna sölu á Hitaveitu
Suður nesja. Fyrirvari er gerður um niður-
stöðu dómsmálsins.
Gerður Guðjónsdóttir, fjármálastjóri
Hafnarfjarðar bæjar, segir að það fari eftir
félagaformi hvort lagður sé á fjármagns-
tekjuskattur. Af því að Hitaveitan var hluta-
félag þurfti að greiða skattinn. „Hefði þetta
verið sameignafélag eða rekið af bænum, eins
og fráveitan, hefðum við ekki borgað krónu.“
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar,
tekur undir þessa gagnrýni.
Reykjanesbær seldi í gær
jarðirnar Kalmanstjörn og
Junkaragerði og fór stærst-
ur hluti kaupverðsins upp í
skattaskuld.
Hún er til komin vegna
sölu sveitarfélagsins á hlut
sínum í Hitaveitu Suður-
nesja. Árni veltir því upp
hvort ekki sé verið að brjóta
jafnræðisreglu með skattlagningunni. Önnur
sveitarfélög sem hafi selt hluti í orkufyrir-
tækjum, svo sem Landsvirkjun eða Norður-
orku, hafi ekki þurft að greiða þennan skatt.
„Þess er bara krafist hjá sveitarfélögum
sem áttu í Hitaveitu Suðurnesja. Skýringin
er að aftan við heiti hennar var „hf.“ og þá
hefur ríkið heimild til að búa til fjármagns-
tekjuskatt, jafnvel þó þetta hafi aðeins verið
sveitarfélög sem seldu.“
Árni segir athyglisvert að tvö stjórnsýslu-
stig eigi í hlut í þessu máli og annað stjórn-
sýslustigið sé að greiða fjármagnstekjuskatt
til hins. Salan á hitaveitunni var tilkomin
vegna lagabreytingar sem gerði mönnum
skylt að skilja á milli orkuframleiðslu og
dreifingar.
Árni segir sölu jarðanna hentuga leið fyrir
bæjarfélagið til að borga fjármagnstekju-
skattinn. Reykjanesbær keypti jarðirnar af
Hafnarfjörður hefur stefnt
ríkinu vegna skattamála
Fjármagnstekjuskattur var innheimtur vegna sölu sveitarfélaga á HS orku en ekki í öðrum tilfellum.
Hafnarfjarðar bær hefur stefnt ríkinu fyrir dóm. Kaupverð af sölu auðlinda Reykjanesbæjar fer í skattaskuld.
Með jarðakaupunum í gær er ríkið
eini eigandi þeirra auðlinda sem
HS orka nýtir í Reykjanesvirkjun.
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra
segir að kaupin skapi færi á því að
semja við Magma Energy, eiganda
HS orku, um styttri leigutíma á
auðlindum. Fyrirtækið er með
65 ára nýtingartíma samkvæmt
samningum og möguleika á að
framlengja nýtingarréttinn um
önnur 65 ár.
Katrín hefur gagnrýnt þessa
tímalengd og hún segir kaupin skapa
góða stöðu til að taka upp samning-
inn. Þá segir hún jákvætt að ríkið
haldi utan um auðlindir í landinu.
„Nú setjum við þá vinnu aftur á
fulla ferð að semja um styttri
nýtingartíma.“
Semja um styttri leigutímaÁRNI SIGFÚSSON
HS Orku fyrir tveimur og hálfu ári og segir
Árni það hafa verið gert til þess að auðlindir
á þeim færu ekki í einkaeigu. Ákveðið hafi
verið að setja jarðirnar upp í skattaskuldina
núna og kæmust auðlindirnar þá í þjóðareigu.
Hann bendir á að Hafnarfjörður sé í við-
ræðum við ríkisvaldið um greiðslu skuldar-
innar á fimm árum. Reykjanesbær hefði
væntanlega getað fengið sambærilegan samn-
ing, en valið að fara þessa leið.
Gengið var frá kaupum ríkisins á jörðunum
í gær. Kaupverðið er 1.230 milljarðar króna og
fara 900 milljónir upp í skuldina. Eftir standa
þá 854 milljónir, en skattaskuldin var 1.753
milljónir króna, að því er fram kemur í árs-
reikningi sveitarfélagsins. kolbeinn@frettabladid.is
HS ORKA Skattaskuld Reykjanesbæjar er tilkomin vegna sölu á hlut í Hitaveitu Suðurnesja við skiptingu fyrir-
tækisins í HS orku og HS veitur. Ríkið keypti auðlindir af Reykjanesbæ í gær og kemur hluti kaupverðs upp í
skuldina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KATRÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
22°
11°
6°
6°
8°
12°
6°
6°
24°
16°
22°
12°
22°
3°
16°
17°
4°Á MORGUN
Fremur hægur vindur
víða um land.
MÁNUDAGUR
Vaxandi vindur S- og
V-lands.
6
7 7
8 8
6 7
6
5 5
8
9
8
9
7
6
77
7
6
4
4
5
3
2 4
5
4
6
5
8
1
MILDIR DAGAR
eru fram undan og
jafnframt skiptast á
skin og skúrir eða
dálítil rigning nú
um helgina. Vindur
verður fremur
hægur víða í dag
og á morgun en á
mánudag má búast
við vaxandi vindi
og úrkomu sunnan
og vestan til.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
NOREGUR Morðingi Heidi Thisland-
Jensen var dæmdur til fimm-
tán ára fangelsisvistar í Mandal í
Noregi í gær.
Maðurinn, sem er fyrrverandi
kærasti Heidi, stakk hana til bana
í mars síðastliðnum og hefur játað
á sig brotið. Auk fangelsisvistar
er manninum gert að greiða syni
hennar, Leif Magnúsi Grétars-
syni, hálfa milljón norskra króna.
Leif Magnús, sem er átta ára
gamall, fluttist til föður fjölskyldu
sinnar í Vestmannaeyjum þegar
móðir hans lést. - sv
Morðingi Heidi dæmdur:
Fékk fimmtán
ár í fangelsi
KÓPAVOGUR Jafnréttis- og mann-
réttindaráð Kópavogsbæjar hefur
falið jafnréttisráðgjafa bæjarins
að leggja fram kæru á hendur
Ólafi Geir Jóns-
syni, skemmti-
staðnum Play-
ers í Kópavogi
og umboðs-
skrifstofunni
Agent.is. Til-
efni kærunnar
er viðburðurinn
„Dirty Night“
og er talið að
með því að aug-
lýsa og halda viðburðinn brjóti
aðilarnir gegn jafnréttislögum.
Í kærunni sem send hefur verið
lögreglustjóranum á höfuðborgar-
svæðinu segir að myndband sem
auglýsa eigi viðburðinn sé til þess
fallið að vera bæði konum og körl-
um til minnkunar. Það stríði gegn
jafnréttislögum. - sv
Kæra vegna Dirty Night:
Kópavogsbær
kærir Óla Geir
ÓLAFUR GEIR
JÓNSSON