Fréttablaðið - 12.11.2011, Blaðsíða 8
12. nóvember 2011 LAUGARDAGUR8
Umhverfisstyrkir
Landsbankans
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Samfélagssjóður Landsbankans veitir fimm
milljónir króna í umhverfisstyrki. Markmiðið
með veitingu umhverfisstyrkja er að styðja
umhverfis- og náttúruvernd. Umsóknarfrestur
er til 21. nóvember 2011.
Verkefni sem einkum koma til greina:
Verkefni á sviði náttúruverndar, t.a.m. skógrækt, landgræðsla
og hreinsun landsvæða.
Verkefni er tengjast rannsóknum á náttúrugæðum.
Verkefni er styðja betra aðgengi fólks að náttúru landsins.
Verkefni er nýtast til verndar landsvæðum, t.d. vegna ágangs
búfénaðar eða ferðamanna.
Verkefni er auka þekkingu og vitund almennings á umhverfismálum.
Verkefni er hvetja til umhverfisvæns hátternis.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur vegna umhverfisstyrkja er til og með 21. nóvember
2011 (póststimpill gildir). Dómnefnd verður skipuð sérfræðingum
á sviði náttúru- og umhverfisverndar. Sækja þarf um styrkina sérstak-
lega og senda umsókn merkta: Umhverfisstyrkir, Landsbankinn,
Austurstræti 11, 155 Reykjavík.
Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að veita styrki til
verðugra verkefna. Árlega eru veittir ferns konar styrkir: Námsstyrkir,
samfélagsstyrkir, nýsköpunarstyrkir og umhverfisstyrkir.
Nánari upplýsingar á landsbankinn.is
1. Hver er forsætisráðherra nýrrar
þjóðstjórnar í Grikklandi?
2. Hvað heitir ný bók um Icesave-
samningana?
3. Hvað heitir ný unglingasaga
Arndísar Þórarinsdóttur?
SVÖR
1. Lúkas Papademos. 2. Afleikur aldarinn-
ar? 3. Játningar mjólkurfernuskálds.
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist
alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00
Þráinn á tökkunum og Gissur með fréttirnar
SÓMALÍA, AP Hinn tíu mánaða gamli
Minhaj Gedi Farah var lítið annað
en skinn og bein þegar hann kom
til Dadaab-flóttamannabúðanna í
Kenía fyrir þremur mánuðum.
Innsognar kinnar hans, uppglennt
augu og örmjóir handleggir birtust
í fjölmiðlum um allan heim og áttu
þátt í að opna augu heimsbyggðar-
innar fyrir neyðarástandinu og
hungursneyðinni sem hafði gerjast
um mánaðaskeið í Austur-Afríku.
Móðir Minhaj hugði honum vart
líf þar sem hann lá á sjúkrabeði
sínum, en eftir meðferð hjá hjálp-
arsamtökum hefur drengurinn litli
náð sér að fullu.
Hann er nú með þrýstnar bollu-
kinnar og vegur átta kíló, sem er
nærri meðalþyngd
tíu mánaða gamalla
barna.
Lyk i l l i n n að
þessum árangri er
aðstoð hjáparsam-
taka sem hafa alið
Minhaj á næringar-
bættu jarðhnetu-
mauki, Plumpynut
að nafni.
Þrátt fyrir að
mataraðstoð berist nú rúmlega
tveimur milljónum nauðstaddra á
svæðinu, eru enn 1,8 milljónir hjálp-
ar þurfi.
Flóttamannastraumurinn hefur
minnkað nokkuð, en þó eru um
168.000 börn undir fimm ára aldri
í bráðri hættu nema þau fái hjálp.
Alþjóðasamfélagið hefur lagt til
779 milljónir dala af þeim 1.000
milljónum sem Sameinuðu þjóðirn-
ar óskuðu eftir.
„Hungursneyðin er ekki að baki,
börn eru að deyja hvern dag,“ segir
Hannan Sulieman hjá UNICEF
„Vannæring er enn langt yfir
neyðarmörkum líkt og verið hefur
síðasta áratuginn.“
UNICEF hyggst viðhalda núver-
andi starfsemi til hjálp-
ar nauðstöddum fram á
næsta haust, og er von-
ast til þess að þá hafi
landbúnaður á svæðinu
tekið við sér.
thorgils@frettabladid.is
Ótrúlegur
bati Minhaj
Tíu mánaða gamall sómalískur drengur var við dauð-
ans dyr vegna vannæringar fyrir þremur mánuðum.
Hann hefur nú náð sér að fullu og braggast vel.
KRAFTAVERKI LÍKAST Bati Minhaj litla hefur verið með ólíkindum síðustu þrjá mán-
uði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NEYTENDUR Finnur Árnason, for-
stjóri Haga, segir kjötskort hafa
hækkað lán heimilanna um 7,6
milljarða króna. Framleiðendur
hafi hækkað verð á allri kjötvöru
langt umfram verðlagsþróun. Það
hafi áhrif á vísitöluna.
Finnur hélt erindi á opnum fundi
Samtaka atvinnulífsins á fimmtu-
dag. Hann sagði frá því hvernig
umkvörtun hans í sumar um kjöt-
skort hefði verið gagnrýnd.
Þingmenn og hagsmuna aðilar
hefðu sagt vera nóg af kjöti í land-
inu. Það breytti þó ekki þeirri stað-
reynd að erfiðlega hefði gengið
með að fá kjöt
til sölu í Bónus-
búðunum.
„Fimm af sex
afurðastöðvum
landsins gátu
ekki selt kjöt-
vinnslu okkar
lambakjöt
vegna skorts á
þessum tíma.
Ein var tilbúin til að selja okkur
takmarkað magn á verulega hærra
verði en vikuna áður en hinn
meinti kjötskortur átti sér stað og
þeim kaupum fylgdu skilyrði.“
Á þeim tíma hafi verið skortur á
lamba- og nautakjöti auk þess sem
sýkingar í kjúklingaframleiðslu
gerðu það að verkum að ítrekað
vantaði kjúklingakjöt. „Markvisst
hafði verið dregið úr svínakjöts-
framleiðslu og verð hækkað.“
Kjöt vegur um 2,62 prósent af
vísitölugrunninum og Finnur segir
verðhækkun hafa haft 0,7 prósent
vísitöluáhrif. Skuldir heimilanna
hafi í júní verið 1.300 milljarðar
króna. „Viðbótarhækkun vísitöl-
unnar vegna kjötskorts um 0,57
prósent hækkar þessi lán heimil-
anna um 7,6 milljarða króna.“ - kóp
Forstjóri Haga segir markvisst hafa verið dregið úr svínakjötsframleiðslu:
Kjötskortur hækkar lán heimila
FINNUR ÁRNASON
SAMGÖNGUR Kostnaður vegna Héð-
insfjarðarganga reyndist 17,2 pró-
sentum meiri en áætlanir gerðu
ráð fyrir, aðallega vegna vatnsaga.
Þetta kemur fram á vef Vega-
gerðarinnar, en þar er tekið fram
að rangar tölur þar um hafi verið
í gangi. Á fundi umhverfis- og
samgöngunefndar Alþingis hafi
til dæmis „ranglega verið hald-
ið fram að umframkostnaður við
þessi göng hlaupi á jafnvel 80 til
90 prósentum. Því fer fjarri,“ segir
á vef Vegagerðarinnar. Þar segir
jafnframt að misskilninginn megi
rekja til þess að fólki hafi láðst að
umreikna upphæðir með tilliti til
verðlagsþróunar. - þj
Kostnaður við gerð Héðinsfjarðarganga:
Aðeins 17 prósent yfir
kostnaðaráætlun
VERSLUN Jólagjöf starfsmanna
Grindavíkurbæjar á þessu ári
verður gjafabréf sem virkar sem
greiðsla upp í kaup á vöru og
þjónustu í Grindavík.
Að því er segir á heimasíðu
Grindavíkurbæjar er stefnt að
því að starfsmennirnir fái gjafa-
bréfin í lok nóvember svo þeir
geti nýtt þau fyrir jólin. „Við-
komandi fyrirtæki fá síðan upp-
hæðina greidda á skrifstofu
Grindavíkurbæjar gegn fram-
vísun gjafabréfsins,“ segir á vef
sveitarfélagsins - gar
Bæjarstarfsmenn í Grindavík:
Eyði jólagjöf í
heimabænum
Í FRÉTTUM Myndin af
Minhaj fór í fjölmiðla um
allan heim á sínum tíma,
þar á meðal Fréttablaðið.
VEISTU SVARIÐ?