Fréttablaðið - 12.11.2011, Qupperneq 12
12. nóvember 2011 LAUGARDAGUR12
TIL NOTKUNAR Í KJARNORKUVERI
Þessi japanski vélbúningur, sem
ætlaður var fötluðum, verður með
tilheyrandi geislavörn notaður í
neyðartilvikum í kjarnorkuverum.
NORDICPHOTOS/AFP
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
FRÉTTASKÝRING: Frumvarp um aðhaldsaðgerðir á Ítalíu
Fastlega er reiknað með því að
neðri deild ítalska þingsins sam-
þykki nú um helgina frumvarp
um víðtækar aðhaldsaðgerðir,
sem efri deild þingsins samþykkti
í gær.
Silvio Berlusconi forsætis-
ráðherra lýsti því yfir í síðustu
viku, eftir mikinn þrýsting, að
hann muni segja af sér þegar þing-
ið hefur afgreitt þetta frumvarp.
Helst er talið að arftaki Berlus-
conis verði Mario Monti, ítalskur
hagfræðingur sem sat í fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins frá 1994 til 2004.
Á miðvikudaginn var Monti
gerður að öldungadeildar-
þingmanni til æviloka, en það er
heiðursembætti sem fyrrverandi
forsetar Ítalíu njóta ásamt fáein-
um öðrum einstaklingum, sem
þykja hafa skarað fram úr á sviði
félagsmála, vísinda, lista eða bók-
mennta.
Þar með er Monti kominn með
þingsæti og honum því ekkert að
vanbúnaði að taka við forsætis-
ráðherraembættinu. Honum var vel
fagnað með miklu lófataki þegar
hann mætti í þingið í fyrsta sinn
í gær, stuttu áður en greidd voru
atkvæði um aðhaldsfrumvarpið.
Aðhaldsaðgerðirnar, sem ítalska
þingið hefur nú hraðað afgreiðslu
á, fela í sér niðurskurð á ríkis-
útgjöldum og skattahækkanir,
sem eiga samtals að spara ríkinu
59,8 milljónir evra eða 3,4 prósent
af þjóðarframleiðslu landsins.
Meðal annars verður eftirlauna-
aldur hækkaður í 65 ár og rúm-
lega það á næstu árum, laun opin-
berra starfsmanna fryst til ársins
2014, virðisaukaskattur hækkað-
ur úr 20 í 21 prósent, fjármagns-
eignaskattur hækkaður í 20 pró-
sent og nýr hátekjuskattur upp á
þrjú prósent lagður á tekjur, sem
eru yfir 300 þúsund evrum á ári,
en það samsvarar nærri 48 millj-
ónum króna.
Vonast er til að með þessu tak-
ist að koma í veg fyrir að Ítalía
þurfi á neyðaraðstoð að halda úr
sjóðum Evrópusambandsins og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, eins og
Grikkir, Írar og Spánverjar hafa
nú þegar fengið.
Miklu ræður þar hvernig við-
brögð verða á verðbréfamörkuð-
um. Skuldatryggingarálag Ítalíu
fór upp fyrir sjö prósent nú í vik-
unni, þegar óvissan var hvað mest
um það hvort Silvio Berlusconi
myndi segja af sér. Í gær lækkaði
það niður fyrir 6,5 prósent, sem er
merki um að markaðir hafi róast
eitthvað nú þegar allt bendir til
að frumvarpið verði samþykkt og
Berlusconi segi af sér.
Nokkur óvissa er um hvort
flokksfélagar Berlusconis munu
allir veita Monti stuðning í emb-
ætti. Sumir þeirra sögðust frekar
vilja að boðað verði til kosninga
sem fyrst frekar en að mynduð
verði ný ríkisstjórn undir forystu
Montis.
„Ég er ekki á því að markaðirn-
ir eigi að ráða hvaða stjórn er við
völd,“ sagði Alfredo Matteoli sam-
gönguráðherra í viðtali við ítölsku
sjónvarpsstöðina Sky TG24. „Þegar
erfiðleikar steðja að eiga kjósendur
að taka ákvarðanir um vandamál
þjóðarinnar.“
Aðrir ráðherrar hafa hins vegar
lýst yfir stuðningi við Monti og
Norðurbandalagið, samstarfs-
flokkur í stjórn Berlusconis, virð-
ist hafa sæst á að Monti taki við.
Gríðarlegur þrýstingur hefur
verið á Ítalíu að sýna fram á að þær
umbætur og aðhaldsgerðir, sem
gripið verður til, dugi til að skulda-
vandinn verði viðráðanlegur.
Dugi þessar ráðstafanir ekki
þarf Ítalía væntanlega á fjár-
hagsaðstoð að halda frá Evrópu-
sambandinu og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum.
Fari allt á versta veg er þó ekki
einu sinni víst að sú aðstoð dugi,
en leiðtogar Evrópusambandsríkj-
anna hafa ekki efni á því að láta
Ítalíu lenda í svo miklum vanda.
Hraða brottför Berlusconis
Efri deild ítalska þingsins samþykkti í gær nýjar aðhaldsaðgerðir, sem vonast er til að geti komið ríkis-
fjármálum á réttan kjöl. Berlusconi getur sagt af sér þegar neðri deildin hefur samþykkt sömu lög.
MARIO MONTI Var nefndur „Super-
Mario“ meðan hann sat í framkvæmda-
stjórn ESB. NORDICPHOTOS/AFP
1. Núverandi
áætlun:
Greiða niður skuldir
og efla hagvöxt. ESB
og AGS vilja láta
selja ríkiseignir og
hækka eftirlauna-
aldur.
Frumvarp væntan-
lega afgreitt á þingi
nú um helgina.
2. Bráðabirgðalán:
Stöðugleikasjóður
ESB og/eða AGS
útvega Ítalíu 80
milljarða evra til
að geta fengið lán
á lægri vöxtum en
þeim 7,5 prósentum
sem nú bjóðast.
Berlusconi hafnaði
þessu tilboði á
leiðtogafundi G20-
ríkjanna í síðustu
viku.
3. Full björgun:
Veita Ítalíu vernd
gegn verðbréfamörk-
uðum með því að
greiða allar afborg-
anir af skuldum
næstu þrjú árin.
Þetta myndi kosta
að minnsta kosti
518 milljarða evra,
meira en heildar-
inneign björgunar-
sjóðs ESB, nema
sjóðurinn fái meira
fé að láni.
4. Altrygging:
Seðlabanki
Evrópusambandsins
prentar peninga til
að tryggja alla 1.900
milljarðana sem
Ítalía skuldar.
Sarkozy Frakk-
landsforseti styður
þetta, en Merkel
Þýskalandskanslari
er algerlega andvíg
þessu.
Ítalía þarf á næsta ári að endurfjármagna 260 milljarða evra, þar af 45 prósent í febrúar og
apríl, af þeirri heildarskuld sem á landinu hvílir. Heildarskuldin nemur 1.900 milljörðum evra,
sem þýðir að Fjármálastöðugleikasjóður Evrópusambandsins, svonefndur neyðarsjóður eða
björgunarsjóður, myndi ekki ráða við hana alla.
Fjármálastöðugleikasjóður Evrópusambandsins
440 milljarðarÞegar úthlutað
Notað til að hjálpa
Grikklandi, Írlandi og
Portúgal úr verstu
erfiðleikunum.
190 milljarðar
Fjár mála-
stöðug leika-
samstarf ESB
60 milljarðar
Heildarfjárhæð
til reiðu handa
Ítalíu
421
milljarður
Enn óúthlutað
250 milljarðar*
*Þar af eiga Ítalir að
standa straum af 139
milljörðum
Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn
250 milljarðar
Heildarskuld
ítalska ríkisins
1.900
milljarðar evra
Til endurfjár-
mögnunar 2012
260
milljarðar evra
Möguleikar á björgun
HEIMILD: GRAPHIC NEWS
ÖRYGGISMÁL Umfangsmikil leit
að týndum ferðamanni við Sól-
heimajökul sem staðið hefur yfir
undanfarna daga veldur því að
fresta þarf flugslysaæfingu á
Keflavíkur flugvelli sem átti að
fara fram í dag.
Eins og kunnugt er hefur leitin
útheimt mikinn mannafla við
leitar störf og við skipulag. Æfing-
in sem verður haldin í vor er við-
mikil, þar sem æfa á nýja flug-
slysaáætlun fyrir flugvöllinn. - shá
Flugslysaæfing verður í vor:
Fresta æfingu
vegna leitar
VINNUMARKAÐUR Skráð atvinnu-
leysi í október 2011 var 6,8 pró-
sent en að meðaltali voru 10.918
atvinnulausir og fjölgaði um 0,2
prósentustig milli mánaða.
Atvinnuleysið var 7,7 prósent á
höfuðborgarsvæðinu en 5,2 pró-
sent á landsbyggðinni. Mest var
það á Suðurnesjum, 11,5 prósent,
en minnst á Norðurlandi vestra,
2,2 prósent. Atvinnuleysið var 6,5
prósent meðal karla og 7,2 pró-
sent meðal kvenna.
Fjöldi þeirra sem hafa verið
atvinnulausir lengur en sex mán-
uði er nú 6.666 og fækkar um 176.
Þeir sem verið hafa atvinnulausir
í meira en eitt ár voru 4.491 í lok
október. - shá
10.918 án vinnu í október:
Atvinnuleysið
eykst lítillega