Fréttablaðið - 12.11.2011, Síða 46
„Ég eignaðist hjarta spænskrar
senjórítu fyrir tólf árum en hef
ekki enn kvænst henni. Ég hef séð
of mörg hjónabönd fara í vaskinn
til að trúa á hjónabandið og held
að ástin haldi fólki saman frekar
en hjúskaparsáttmáli og gullhring-
ar. Ég er heldur ekki tilbúinn að
skrifa undir samning um að ég
ætli að vera með sömu konunni
það sem eftir er ævinnar,“ segir
Ívar stríðnislega, en með Önu konu
sinni á hann dæturnar Raquel, 8
ára, og Melanie, 3ja ára.
„Á Íslandi á ég líka dæturn-
ar Írisi Tönju og Ornellu, og afa-
strákinn Aron Þór. Ég sakna ekki
íslensks þjóðfélags, en ég sakna
fjölskyldu minnar og vina. Hins
vegar á ég í miklu nánara sam-
bandi við ástvini mína eigandi
heima á Spáni en á Íslandi. Þeir
koma oft til mín og vitaskuld er
miklu meira ævintýri fyrir þá að
koma hingað en fyrir mig að fara
heim.“
Versnar með aldrinum
Ívar opnaði nýlega Ping-„fitt-
ing center“ þar sem hann smíð-
ar golfkylfur sem sniðnar eru að
persónulegum þörfum. Það hefur
vakið mikla athygli og þykir það
fullkomnasta á Spáni.
„Ég hef alltaf verið yfirmáta
kappsamur, metnaðarfullur og
með óstöðvandi fullkomnunar-
áráttu, sem versnar bara með aldr-
inum. Ég þarf alltaf að gera allt
best,“ segir hann hlæjandi og víst
er að störf Ívars eru upp á tíu því
golfrisinn Ping verðlaunaði hann
með því að gefa honum fokdýran
útbúnaðinn.
„Það lá alltaf fyrir að ég endaði
í golfi. Ég hef spilað golf í 42 ár,
eða síðan ég fékk fyrstu golfkylf-
una í hausinn hjá ömmu og afa í
Smálöndum þriggja ára. Þá var
ég nánast stimplaður með golf-
kylfu númer 5 og fljótlega sag-
aði afi kylfu númer 9 í mína hæð
og slípaði fyrir mig grjót í golf-
bolta. Eftir það stóð ég klukku-
stundum saman ofan á hitaveit-
ustokk við hús þeirra og barði
grjótið miskunnar laust þar til ég
náði að slá það yfir nærliggjandi
veg,“ segir Ívar, sem eldri varð oft-
sinnis Reykjavíkurmeistari, stiga-
meistari Íslands, Íslandsmeistari
og keppti með landsliðinu í golfi.
„Ég hef verið íþróttamaður alla
ævi, lyfti enn lóðum til að halda
mér í formi og er þess utan með
einkaþjálfun fyrir hótelgesti. Þá
keppi ég á spænskum golfmótum
og hefur gengið vel hingað til, en
mikill munur er á mótunum hér
og heima. Því er óraunhæft að
stefna á Spánarmeistaratitil eins
og er, enda mikil atvinnumennska
sem fylgir slíku. Mér finnst mikil-
vægt að viðhalda ánægjunni við að
spila, en kannski reyni ég seinna
við þann titil í eldri flokkum,“
segir Ívar og telur sig trúlega
orðinn meiri Spánverja en
Íslending.
Besti vinur í heimi
„Ég hef aðlagast glað-
sinna og afslöppuðu
andrúmslofti spænsks
samfélags. Lífsvið-
horf Spánverja er svo
ólíkt því íslenska. Sé
skólafrí á fimmtudegi er
hiklaust gefið frí á föstudegi
líka, enda sagði skólastjóri við
mig: „Ég get lofað þér Ívar,
að það verður enginn fábjáni
af því að taka sér frídag.“
Umhverfið er áreitislaust
og Spánverjum slétt sama
um hluti sem eru Íslend-
ingum hjartans mál. Þeir
vilja frekar góða tónlist
yfir sælkeramat á trékolli
en sötra úr kristals glasi í
leðurstól. Ég hef því lært
mikið af þeim og Íslend-
ingar mættu taka þá sér
til fyrirmyndar,“ segir
Ívar, sem mörgum hraus
hugur við að mæta í
myrkri á árum áður.
„Ég hef alltaf verið
skapmikill en það er gott
að hafa skap ef maður
kann að stjórna því.
Þeir sem þekkja
mig hafa aldrei
skilið hvernig fólk
gat verið hrætt við mig,
en vitaskuld var ljóst að ég var
enginn ballettdansari þegar það
mætti mér með kolsvart hár og
120 kíló af vöðvum í hlýrabol. Ég
hef sjálfsöruggt fas sem hefur
ekkert breyst, en undir vöðvun-
um er ég ljúfur sem lamb og drep
aldrei flugur,“ segir Ívar hlæjandi
og Jóhannes Ármannsson, vinur
Ívars úr Borgarnesi, tekur við sím-
tólinu á Spáni:
„Betri vin en Ívar Hauksson er
ekki hægt að eiga. Hann
er hlýr, góður og
traustari en allt; lif-
andi, skemmtilegur
og umtalaður á Spáni
fyrir fagmennsku og
ljúfan karakter.“
thordis@frettabladid.is
Framhald af forsíðu
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Interstate heilsárs- og vetrardekkin eru umhverfis-
vænni kostur. Munstrið inniheldur minna magn af
mengandi olíum og uppfyllir evrópska staðla um
efnisinnihald hágæða hjólbarða.
DUGGUVOGI 10 RVK AUSTURVEGI 52 SELFOSS PITSTOP.IS WWW
HJALLAHRAUNI 4 HFJRAUÐHELLU 11 HFJ568 2020 SÍMI
HEILSÁRS- OG
VETRARDEKK
UMHVERFISVÆNNI KOSTUR
FYRIR FÓLKSBÍLA OG JEPPA
VIÐ EIGUM FLESTAR STÆRÐIR DEKKJA Á HAGSTÆÐU VERÐI.
HAFÐU SAMBAND TIL AÐ FÁ VERÐ Í DEKK FYRIR BÍLINN ÞINN.
175/65 R14 45.900 kr. 195/65 R15 55.900 kr.
185/65 R14 49.900 kr. 205/55 R16 63.900 kr.
185/70 R14 49.900 kr. 245/75 R16 99.800 kr.
185/65 R15 51.900 kr. 225/45 R17 73.900 kr.
DÆMI UM FRÁBÆR TILBOÐ Á INTERSTATE
HEILSÁRS- OG VETRARDEKKJUM
VERÐIN ERU FYRIR FJÖGUR DEKK ÁSAMT UMFELGUN
Kynning:
Námsflokkur í Mjódd
Nóv 19, Föstud. kl.19.00
á vegum College of Practical Homeopathy
á Íslandi. Fjögurra ára nám, mæting 10
helgar á ári. Námið mun gefa þér djúpa
fræðilega og hagnýta þekkingu á efninu.
Uppl: Martin í 897 8190 martink@hive.is
www.homeopathytraining.co.uk
Opið mán - fös 10-18, laugardaga 10-16
www.topphusid.is
Mörkinni 6 - Sími 588 5518
Fæst í Bónus og Inspired,
Keflavíkurflugvelli
HOLLUR
BITAFISKUR
+ 80% prótín
Fiskneysla er góð
fyrir heilabúið
Ef hláturinn lengir lífið ættu þeir sem vilja lifa vel og lengi að láta sjá sig í Tjarnarbíói
í dag klukkan 13.30. Þar stendur Hitt húsið fyrir keppninni Leiktu betur þar sem átta
lið úr átta framhaldsskólum taka þátt í svokölluðu leikhússporti. Aðgangur er ókeypis.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.