Fréttablaðið - 12.11.2011, Page 68
12. NÓVEMBER 2011 LAUGARDAGUR12 ● góð ráð fyrir græn jól
Dagatalakubbarnir vinsælu hafa verið framleiddir hjá GuðjónÓ í rúman áratug. Hefðin
er sterk og útlit kubbsins hefur haldist eins frá því að elstu menn muna. Hægt er að
velja milli átta spjalda sem öll skarta landslagsljósmyndum. Einnig bjóðum við upp á
mánaðartöl og borðalmanök.
Okkur finnst við hæfi að bjóða upp á umhverfisvænni jólapappír. Pappírinn er prent-
aður báðumegin. Á annarri hliðinni skoppar jólakötturinn um örkina og vitnað er í
vísur Jóhannesar úr Kötlum um Jólaköttinn. Hin hliðin skartar litríkum teikningum af
fatnaði og minnir á að sá fer í jólaköttinn sem ekki fær nýja flík!
Stærð: 50x70 sm
Hönnun: Reykjavík Letterpress
Við
elskum
umhverfið
- allan ársins
hring
Sv
an
sm
erk
tir síð
an árið 2000
Þ ve r h o l t i 13 • S ími 511 12 3 4 • gudj o n o @ g u d j o n o . i s • w w w. g u d j o n o . i s
Þverholti 13 • Sími 511 1234 • gudjono@gudjono.is • www.gudjono.is
Þverholti 13 105 Reykjavík sími 511 1234 gudjono@gudjono.is www.gudjono.is
Norræna umhverfismerkið
Svanurinn var stofnað árið
1989 og hefur náð gífurlegum
árangri. Alls er búið að veita
yfir 2.000 Svansleyfi fyrir 6.000
vörur, sem þýðir að úrvalið
af umhverfisvænni vörum
er orðið mjög gott. Íslenskar
verslanir bjóða sífellt breiðara
úrval af Svansmerktum vörum,
enda fer eftirspurnin vaxandi.
En hvað gerir Svansmerkta
vöru betri fyrir umhverfið og
heilsuna? Anne Maria Sparf
frá Umhverfisstofnun stendur
fyrir svörum.
VIÐ GETUM HAFT ÁHRIF
Það getur verið vandasamt að
finna upplýsingar um hvernig
vörur eru framleiddar og hvort
þær innihaldi vafasöm efni. En
hvernig getur hinn almenni neyt-
andi lagt sitt af mörkum í um-
hverfismálum
og valið skað-
lausar vörur?
„Ein leið er að
velja umhverfis-
vottað. Með því
að velja Svans-
merktar vörur
og þjónustu lág-
mörkum við mengun, tryggjum
betri hráefnis- og orkunýtingu og
verndum náttúruna. Svansmerkta
varan er öruggt val fyrir umhverf-
ið og heilsuna,“ segir Anne bros-
andi.
STRANGAR KRÖFUR
Svanurinn hefur þróað kröfur
fyrir meira en 60 mismunandi
vöru- og þjónustuflokka, allt frá
hreinsiefnum og hjólbörðum til
hótela og prentsmiðja. Kröfurn-
ar ná ávallt yfir allan lífsferil
vörunnar, allt frá hráefnum yfir
í framleiðsluferlið, notkun og úr-
gang. Til að mynda þarf viður í
Svansmerktum vörum að vera úr
sjálfbærri ræktun, lágmarka þarf
orkunotkun við framleiðslu, notk-
un hættulegra efna er takmörkuð
og tryggja þarf rétta meðhöndlun
úrgangs. „Svansmerktar vörur og
þjónusta hafa farið í gegnum óháð
vottunarferli sem tryggir að þær
uppfylla ströngustu mögulegu um-
hverfis- og heilsukröfur. Einung-
is þær bestu geta fengið vottun,“
lofar Anne.
AF HVERJU ER SVANSMERKTA TÖLVAN
BETRI?
Oft heyrist spurt af hverju um-
hverfismerkta varan sé betri en
önnur. Getur vara, svo sem tölva
eða dekk, verið umhverfisvæn? „ Í
sjálfu sér er ekkert sem við fram-
leiðum beinlínis umhverfisvænt,
en umhverfismerktar vörur hafa
minnstu mögulegu áhrifin á um-
hverfið. Svansmerktar tölvur nota
minni orku, eru endurvinnanleg-
ar og án hættulegra eldvarnar-
efna. Svansmerkt dekk eru ending-
argóð, hljóðlaus og menga minna.
Strangar kröfur Svansins tryggja
að varan er ávallt besti mögu-
legi kosturinn fyrir umhverfið og
heilsuna.“
ER UMHVERFISMERKTA VARAN
DÝRARI?
Margir halda að umhverfismerkt-
ar vörur séu dýrari en aðrar sam-
bærilegar vörur, er það rétt? „ Nei,
Svansmerktar vörur eiga ekki að
vera dýrari, þvert á móti. Könn-
un sem Neytendasamtökin gerðu
árið 2010 sýndi fram á að Svans-
merktar vörur voru í flestum til-
fellum ekki dýrari, og yfirleitt
fær maður meira fyrir peninginn
þegar maður kaupir Svansmerkt.
Þvottaefnið dugar í fleiri þvotta,
pappírinn þurrkar betur eða tölv-
an endist lengur. Svanurinn gerir
nefnilega einnig gæðakröfur á
vörur,” staðfestir Anne.
ÍSLENDINGAR VELJA SVANSMERKT
Yfir 70% Íslendinga þekkja Svans-
merkið skv. könnun frá árinu 2010.
Um 40% velja Svansmerkt stund-
um eða alltaf. „Þetta eru sterk
skilaboð til verslana. Ekkert annað
merki nær þessum árangri,“ bend-
ir Anne á. „Könnunin staðfestir
einnig að margir treysta því ekki
að almennar vörur sem seldar eru
í verslunum séu lausar við hættu-
leg efni. Nær 80% treysta því hins
vegar að Svansmerkt vara sé gott
val fyrir umhverfið og um 50%
tengja merkið við strangar kröf-
ur.“
VARIST GRÆNÞVOTT EKKI ER ALLT
GRÆNT SEM SÝNIST
„Það er ljóst að almenningur leit-
ast í auknum mæli við að kaupa
umhverfisvænt, ekki síst vegna
eigin heilsu,“ segir Anne. „ Margir
framleiðendur notfæra sér þessa
eftirspurn og auglýsa sig sem
græna eða umhverfisvæna, þótt
ekkert standi á bak við það. Þess
vegna hvet ég fólk til að forðast
vörur sem lokka neytendur með
fullyrðingum á borð við eco-fri-
endly, green eða chemical free.
Öruggasti kosturinn er ávallt að
velja vörur sem eru merktar með
traustu umhverfismerki, svo sem
Svaninum eða Evrópublóminu.“
FJÖLBREYTT ÚRVAL Í VERSLUNUM
Úrval Svansmerktra vara hefur
stóraukist á Íslandi á undanförn-
um árum. Margir kvarta þó enn
yfir því að það sé erfitt að finna
Svansmerktar vörur í verslunum.
„Flestar íslenskar dagvöruversl-
anir hafa bætt úrvalið af Svans-
merktum vörum með aukinni eft-
irspurn. Yfirleitt er hægt að finna
allt það helsta sem mann vantar í
hillunum, svo sem þvottaefni og
uppþvottatöflur, eldhúsrúllur og
salernispappír, sápur og sjampó,
snyrtivörur svo sem svitalykt-
areyði, bleiur, dömubindi, blautk-
lúta og jafnvel servíettur. Við
hvetjum verslanir til þess að
merkja vörurnar betur í hillunum
til að auðvelda fólki að finna vör-
urnar.“
Nýlega hafa apótekin einnig
stórbætt úrval Svansmerktra vara.
„Það er ánægjulegt að sjá hversu
gott úrvalið er orðið. Fyrir nokkr-
um árum var erfitt að finna um-
hverfismerktar snyrtivörur án of-
næmisvaldandi efna, nú er hægt að
velja á milli margra vörumerkja,“
lýsir Anne.
Sumar verslanir leggja meiri
áherslu á Svansmerktar vörur en
aðrar. „Ég hef heyrt um fólk sem
velur verslun eftir því hversu gott
úrval umhverfismerktra vara er.
Þetta verður eflaust þróunin á
næstu árum þegar Íslendingar
verða meðvitaðri um vafasöm efni
í neytendavörum,“ bætir hún við.
„Veldu vel og veldu Svansmerkt
næst þegar þú verslar.“
Úrval af Svansmerktum vörum
og þjónustu aldrei meira
Anne Maria Sparf
Úrvalið af Svansmerktum vörum er mjög fjölbreytt.
„Svansmerkta varan er öruggt val fyrir umhverfið og
heilsuna. Með því að velja Svansmerkt geta allir haft
áhrif.“