Fréttablaðið - 12.11.2011, Side 86

Fréttablaðið - 12.11.2011, Side 86
6 fjölskyldan Alla virka daga kl. 18.00 Disovery Channel er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR LANDSBYGGÐ jólatónlistin leikum og lesum ... Ánægð með afraksturinn Kristjana Friðbjörnsdóttir með nýútkomna bók sína, Dagbók Ólafíu Arndísar. Nemendur hennar í Hamraskóla eru ekki síður stoltir enda hafa þeir fylgst með ritun bókarinnar af áhuga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Nemendur mínir eru mjög uppteknir við að hvetja mig áfram,“ segir Krist-jana Friðbjörnsdóttir rit- höfundur sem kennir í fimmta bekk í Hamraskóla og sinnir skriftum meðfram kennslustörf- um. Nýverið kom út fimmta bók Kristjönu, Dagbók Ólafíu Arndís- ar, sem er önnur bók um Ólafíu Arndísi sem steig fram á sjónar- sviðið í verðlaunabókinni Flateyj- arbréfunum sem kom út í fyrra. „Ólafía Arndís er uppátækjasöm stelpa, fjörug og með ríkt ímynd- unarafl. Í fyrra lenti hún í ævin- týrum í Flatey, nú er hún flutt til Dalvíkur,“ segir Kristjana sem segir nemendur sína eiga stóran hlut í söguhetjunni. „Þau lögðu inn ósk um ævintýri stelpu. Og ég verð að viðurkenna að hún byggir að hluta til á fjölmörgum skrautleg- um nemendum sem ég hef kynnst um dagana. Og svo er ég í henni líka,“ segir Kristjana. Kristjana segir áhuga nemenda sinna afar gefandi. „Þau spá og spekúlera mikið í bókunum mínum. Hér hitti ég líka kríli á göngunum sem spjalla reglulega við mig og spyrja mig hvort ég sé að skrifa bók og hvað komi út næst. Ég las líka þessa nýjustu bók fyrir nem- endur mína í handriti. Þau fylgjast afar spennt með því þegar bækurn- ar fara í prentun. Það má því segja að þau eigi töluvert í bókinni með mér. Og svo eru þau strax komin með skoðanir á því í hverju Ólafía Arndís á að lenda næst og hvern- ig form bókarinnar á að vera. Flat- eyjarbréfin voru sögð í bréfaformi, nýja bókin í dagbókarformi og það eru þegar komnar uppástungur um að næsta bók verði sögð í sms-skila- boðum,“ segir Kristjana og hlær. Kristjana er áhugasöm um bók- lestur barna og segir einn hvata þess að hún settist við skriftir hafa verið að hún fann í gegnum starf sitt að áhugi á bóklestri var að minnka. „Börn þurfa að hafa aðgang að nýjum barnabókum. Ég byrjaði að skrifa fyrir nemendur mína og í framhaldinu urðu til sögurnar um Fjóla Fífils. En ég er líka svo mikið barn, á kafi í fant- asíum og ævintýraheimum þannig að það hentaði mér vel að fara að skrifa fyrir börn,“ segir Kristjana að lokum. Nemendurnir fylgjast með af áhuga Kristjana Friðbjörnsdóttir er rithöfundur og kennari í Hamraskóla. Nýverið kom út önnur bók hennar um ævintýri hinnar uppátækjasömu Ólafíu Arndísar. Nemendur Kristjönu fylgjast spenntir með skrifum hennar og fengu að lesa söguna í handriti. ÓLAFÍA ARNDÍS er uppátækjasöm stelpa, fjörug og með ríkt ímyndunarafl. Í fyrra lenti hún í ævintýrum í Flatey, nú er hún flutt til Dalvíkur. Hátt í 100 krakkar á aldrinum 10-15 ára hafa skráð sig til leiks í LEGO-hönnunarkeppni grunnskóla- barna, First Lego League, sem haldin verður í dag á Háskólatorgi. Markmiðið með keppninni er að vekja áhuga grunnskólanema á vísindum og tækni ásamt því að byggja upp sjálfstraust þeirra, leiðtogahæfni og lífsleikni. Á hverju ári er keppninni valið ákveðið þema. Í ár verður þemað fæðuöryggi. Keppnin felst í fimm mismunandi verkefnum. Í fyrsta verkefni smíða keppendur vélmenni úr tölvustýrðu LEGO-i sem er forritað til að leysa tiltekna þraut. Í öðru lagi eiga keppendur að gera vísindalega rannsókn á ákveðnu efni. Í þetta sinn snýst verkefnið um fæðuöryggi (e. food factor) og eiga þátttakendur að flytja tiltekna vöru frá einum stað til annars á sem hagkvæmastan hátt. Í þriðja lagi halda keppendur ítarlega dagbók um undirbúning fyrir keppnina og í fjórða lagi eiga þeir að flytja frumsamið skemmtiatriði. Í fimmta lagi þurfa liðin að gera grein fyrir því hvernig þau forrituðu vélmennið sitt en þar reynir á þekkingu þátttakenda á eigin búnaði. Níu lið frá jafnmörgum skólum víðs vegar á landinu hafa skráð sig til leiks. Dagskrá keppninnar hefst klukkan 9 en sigurvegarar verða krýndir klukkan 15. Öllum er velkomið að fylgjast með keppninni á Háskólatorgi. LEGO-hönnunarkeppni á Háskólatorgi BORGARBÓKASAFNIÐ hefur nú tekið fram jólatónlistina og gestir safnsins geta því gengið að jólageisladiskum vísum. Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær. Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur það úr streitu í amstri hversdagsins. BÓKIÐ AUGLÝSINGAR TÍMANLEGA: ÍVAR ÖRN HANSEN S: 512 5429, GSM: 615 4349 ivarorn@365.is Sérblað um hamborgarhrygg kemur út þann 23. nóvember. HRYGGUR HAM BORGAR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.