Fréttablaðið - 12.11.2011, Blaðsíða 96
12. nóvember 2011 LAUGARDAGUR48
Krossgáta
Lárétt
1: Gríp til taltaugar svo fái ég mælt (8)
5: Gargútgáfa af verki E. Ensler? (11)
11: Furðu lostnar eru ringlaðar og illa fengnar (7)
12: Fjallgarður og fljótsendi gefa blóm (7)
13: Sé stubbana þrátt fyrir tóbaksbann í landi
þeirra (6)
14: Segir jörð allt sem hann á, rukkar rentuna af
húseigendum (11)
15: Sendi þér glaðlega tóninn uppúr svefni (6)
16: Guðdómlegar gera glappaskot (7)
17: Andlitslaus ökuþór gefur prik (4)
20: Þegar áfengi botnar rennurnar hefst
vakningin (8)
21: Á hátíðum gekk fé þar sjálfala því enginn
var hirðirinn (11)
25: Af kindarlegum sómamanneskjum (7)
27: Miklar skammir ef hún stækkaði (8)
29: Bylgjunnar blær, ókind og ævintýramær (6)
33: Betra að hafa bæði sverð og stiga á þessum
slóðum (10)
35: Farða frávita og flaumósa (7)
36: Fæddi fyrst, bíar svo og vaskar (6)
37: Rámar í kastalana sem nafnlaus maður
byggði (10)
38: Sjónvarpsstjóri kemur óorði á virðulega
samkomu (10)
39: Leysa þau sem ekki eru föst enda hafa þau
ekki glóru (8)
Lóðrétt
1: Áverki tengir þá við málið en þá hlæja þeir,
enda ekki til (10)
2: Tvífætt hófdýr spænir í sig Auði Jóns og afa
hennar líka (13)
3: Setur geimferðastofnun hálft nef á sínar
skutlur? (8)
4: Hæðast að smáræði milli bæja (10)
5: Tek kúst til lérefts, notkun þess linar sótt (10)
6: Finn tættar greinar og reyni að raða í lurk (8)
7: Doði minn var slíkur að ég rétt náði að forða
mér fyrir spil (10)
8: Þvældist hús úr húsi og páraðir eitthvert rugl (7)
9: Þrár eins og þjóðkirkjan þar (12)
10: Bók Björns er ekki um ljómandi himneskt
náttúrufyrirbæri (10)
18: Koma sér úr þjálfun í mótmælaskyni (6)
19: Það er sem Ægir kúgi oss með þessu frussi (7)
22: Lánlaus hópur mótvægi við Besta flokkinn? (11)
24: Drápa um mann sem drepur menn (8)
23: Beitugoð eru örlítið brotabrot (8)
26: Stúlknaburður er kraftaverk (9)
28: Utanokkar.is, gleypist (9)
30: Mun breskt sjónvarp granda andalúsískri
borg? (7)
31: Meira sjóbragð af sálmakveri en sódavatni (7)
32: Vesenast, þetta eru nú dósir að norðan (6)
34: Jóð og tin og er þá bættur skaðinn (6)
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
11 12
13
14
15
16 17
18 19
20 21 22
23
24 25 26 27 28
29 30 31
32 33 34
35
36
37
38 38 39
L A N D V E R N D
Vegleg verðlaun
Lausnarorð
Ef bókstöfunum í skyggðu reitunum er raðað rétt saman birtist nafn á
fallegu friðlandi. Sendið lausnarorðið fyrir 16. nóvember næstkomandi á
krossgata@frettabladid.is merkt „12. nóvember“.
Lausnarorð síðustu viku var
landvernd.
Vikulega er dregið er úr
innsendum lausnarorð-
um og fær vinningshafi
gjafakörfu frá Te og kaffi
að verðmæti 5.000 kr..
Vinningshafi síðustu viku
var Jóhann Þórarinsson.
E F T I R R É T T S T A U R B L I N D
F O A R K F Ú R
N R K S Ú Ú T H Ú Ð A R A
A F T A K A V E Ð U R E U A U
L Ó A I U K I N N B E I N U M
A X L A R Ð M A T O G A
U A S E N D U R R A Ð A H
G S K R E I Ð A M G S Ö
L Ý T R V A N S K I L
B R Á Ð L Æ T I Þ J Ó F A R I L
O R A S T N S N
L O P A P E Y S A F D Á T A N N A
L E E L M Á T A N A R L
A U R A S Á L A S L Í F T
K A T I R Ú S T R A U Ð U R A
A Ó B K U S Á L
K I S T U F E L L Ý S V V A
A R R J Ó L A B A S A R I N N
Ú Ó U G T D
S P O R T V E I Ð U M R A N N S A K I
Á þessum degi fyrir réttum 29 árum, hinn 12. nóvember árið 1982, var
pólska verkalýðsleiðtoganum Lech Walesa
sleppt úr haldi eftir 11 mánaða fangavist.
Walesa var rafvirki við skipasmíða-
stöðina í Gdansk, stofnaði verkalýðs-
félagið Samstöðu tveimur árum áður, en
það var fyrsta óháða verkalýðsfélagið í
Póllandi.
Hann var um árabil óþægur ljár í þúfu
fyrir kommúnistastjórnina í Varsjá og
var hann undir sífelldu eftirliti og var
margoft hnepptur í varðhald.
Samstöðu óx ásmegin og barátta þeirra
naut stuðnings víða um heim, meðal ann-
ars hjá Jóhannesi Páli páfa. Eftir víðtækt
verkfall var gengið að kröfum verkalýðs-
hreyfingarinnar, meðal annars um félaga-
frelsi og verkfallsrétt almennings.
Walesa var kjörinn formaður félagsins
í september 1981, en gleðin reyndist
skammvinn því að í desember sama ár
lýsti stjórnin, undir forystu Jarúselskís
hershöfðingja, yfir herlögum.
Nýfengin réttindi borgaranna voru
afnumin, Samstaða var lýst ólögleg og
Walesa var tekinn höndum og geymdur í
stofufangelsi á afskekktum sveitabæ.
Ýmislegt kallaði á þessar hörðu aðgerðir
Jarúselskís, meðal annars hafði hann
áhyggjur af því að Sovétríkin sæju ástæðu
til þess að hafa afskipti af þróuninni í Pól-
landi, jafnvel beita hervaldi.
Verkalýðsöflin voru hins vegar ekki
þögguð niður þar sem mótmælaalda braust
út í Varsjá og öðrum borgum þar sem
óeirðalögregla beitti táragasi og vatns-
byssum til að dreifa fjöldanum.
Walesa var því sleppt skömmu síðar þar
sem hann „var ekki talinn ógna lögum og
reglu“ að sögn stjórnvalda. Eftir að Walesa
losnaði úr haldi hélt hann áfram andófs-
starfi sínu og leiddi Samstöðu, sem starfaði
neðanjarðar vegna banns stjórnvalda.
Baráttan skilaði sínu því herlögin voru
afnumin í júlí árið 1983 og í október sama
ár hlaut Walesa Friðarverðlaun Nóbels.
Næstu ár hélt þessi þróun áfram og í
júní 1989 vann Samstaða mikinn kosn-
ingasigur og myndaði eftir það ríkis-
stjórn.
Járntjaldið féll skömmu síðar og Walesa
var kjörinn forseti Póllands árið 1990.
Hann gegndi því embætti til 1995 og
hætti í stjórnmálum árið 2000.
Hans verður þó ávallt minnst sem
persónu gervings frelsisbaráttunnar í
Póllandi.
- þj
Heimildir: Nobelprize.org, BBC, Britannica
Í ÞÁ TÍÐ: Árið 1982
Verklalýðshetja leyst úr haldi
Andófsmaðurinn Lech Walesa leystur úr haldi kommúnistastjórnarinnar í Póllandi.
SIGURVISS Lech Walesa var bjartsýnn eftir að stjórnvöld létu undan kröfum verkalýðshreyfingarinnar árið
1981. Nokkrum vikum síðar var hann handtekinn og settur í stofufangelsi í tæpt ár. Hann slapp úr vistinni
fyrir réttum 29 árum. NORDICPHOTOS/AFP