Morgunblaðið - 27.11.2010, Page 4

Morgunblaðið - 27.11.2010, Page 4
4 Jólablað Morgunblaðsins 2010 S igríður Kristín, sem er ann- ar tveggja presta Fríkirkj- unnar í Hafnarfirði, segir desembermánuð einkenn- ast af mikilli vinnu hjá sér, sem hjá öðrum prestum. Engu að síður gef- ur hún sér góðan tíma með fjöl- skyldunni, gerir eitt og annað skemmtilegt til að lífga upp á skammdegið og segir sam- verustundir það sem mestu skiptir á aðventunni. Jól á heimili prests Til að byrja með leikur blaða- manni forvitni á að vita að hvaða leyti jólin á heimili prests eru frá- brugðin jólunum á heimili þar sem hvorugt foreldrið hefur verið vígt til prestsþjónustu? „Aðventan og aðdragandi jólanna eru mikill annatími í starfi presta,“ segir Sigríður. „Það er auðvitað heilmikið að gera hjá mér í desember því kirkju- starfið er mjög svo líflegt á aðvent- unni. Framundan er fjölbreytt helgihald og fjölmargar heimsóknir skólabarna í kirkjuna þar sem við munum syngja saman og e.t.v. lesa góða jólasögu. En fjölskyldan skilur að á þessum árstíma er mikið að gera hjá mér, og styður mig full- komlega. Auk þess tekur hún þátt í starfinu með mér. Dætur mínar geta t.d. ekki hugsað sér að- fangadag öðruvísi en að koma með mér á Hrafnistu í Hafnarfirði, þar sem ég starfa einnig sem prestur, og sitja ásamt heimilismönnum Hrafnistu, reynsluboltum þessa lands, við hátíðarguðsþjónustuna. Þannig að þó ég sé talsvert frá heimilinu í desember þá er ekki þar með sagt að það útiloki sam- verustundir með fjölskyldunni um leið,“ bætir Sigríður við. En þrátt fyrir annríkið í vinnunni gefast prestinum góðar stundir heima fyrir í faðmi fjölskyldunnar, það vantar ekki. Og Sigríður Krist- ín nefnir eina skemmtilega jólahefð á sínu heimili. „Við búum alltaf til árbók fjöl- skyldunnar í desember. Þá tökum við fram úrklippubók og tileinkum hverjum fjölskyldumeðlim eina opnu. Við lítum um öxl, skrifum þakkarorð til hvers annars og fær- um inn í bókina. Svo mynd- skreytum við síðurnar, límum ljós- myndir eða annað smáræði sem okkur finnst viðeigandi. Í ár mun- um við líklegast setja ösku úr Eyja- fjallajökli í bókina, hvernig sem við komum því nú við sem og farmiða úr Ævintýrasiglingu á Breiðafirði.“ Jólin fyrr og nú Þó Sigríður sé enn ung að árum man hún að sumu leyti tímana tvenna þegar kemur að jólunum. „Það sem helst hefur breyst er að þegar ég var að alast upp þá var aðventan tími undirbúnings, en í dag tíðkast víðast hvar að njóta að- ventunnar í ríkari mæli en áður í skemmtun, mat og drykk. Fólk fer á jólahlaðborð, jólatónleika og gerir ýmislegt til að taka forskot á sæl- una. Það er þetta sem helst hefur breyst, að allur undirbúningur og aðdragandi er orðinn umfangs- meiri.“ Blaðamaður skýtur inn í hvort það sé bara betra? „Það kostar að sjálfsögðu meira að fara með fjöl- skylduna á viðburði á borð við hlað- borð og tónleika, og það er verra ef fólk ræðst í þetta allt af því það upplifir að svona eigi aðventan að vera. Maður verður að fá að ráða þessu alfarið sjálfur og njóta að- ventunnar á eigin forsendum. Bestu bernskuminningar mínar frá að- draganda jóla snúast um það þegar við gerðum eitthvað saman einsog að föndra eða baka. Smákökur voru jólanammi sem mátti ekki gæða sér á fyrr en á jólum. Til þess að tryggja það þá límdi mamma lokið aftur með límbandi en bróðir minn fann samt alltaf leið til komast í smákökurnar,“ segir Sigríður Kristín og hlær við. „Aðalatriðið er að njóta þessa tíma með þeim hætti sem hentar manni sjálfum, í stað þess að láta utanaðkomandi þrýst- ing stýra því hvað maður gerir. Þannig er tryggt að úr verði góðar stundir sem breytast svo í góðar jólaminningar.“ Saman um jólin Það er samveran sem er kjarni þess sem er hátíðlegt við jólin, að mati Sigríðar. „Við erum fædd í heiminn til að elska, þiggja elsku annara og fá að tilheyra. Því skyldi leggja alla áherslu á að njóta samveru um jól- in. Sé að gáð, hverju munum við helst eftir frá jólum fyrri ára? Það eru samverustundirnar. Kirkjan er lifandi samfélag þar sem við undir- strikum mikilvægi þess að fá að til- heyra og elska. Út á það gengur skírnin, barnið tilheyrir Guði og fjölskyldu sem elskar barnið og er reiðubúin að styðja það í bernsk- unni. Í fermingunni fagna foreldrar með unglingnum sem horfir til framtíðar, hann er mikilvægur hluti af samfélaginu sem hann tilheyrir og öll hans verk og allar hans gjörðir hafa áhrif á heildina. Sama máli gegnir um hjónavígsluna, þá staðfesta hjón að þau tilheyra hvort öðru því þau hafa fundið ástina með hvort öðru og eru reiðubúin til þess að ganga í gegnum lífið sam- an. Aðventan er frábær tími til að undirstrika þetta, við eigum hvert annað að og eigum að vera til stað- ar fyrir hvert annað. Myrkrið í skammdeginu getur tekið okkur niður og þá er svo kjörið að lýsa upp tilveruna með því að njóta skemmtilegra samverustunda.“ Nóg um að vera fyrir alla Sigríður Kristín nefnir í því sam- bandi að nóg er um að vera í helgi- haldi Fríkirkjunnar á aðventunni, enda annasamur tími í starfi henn- ar sem fyrr segir. „Fyrsta sunnudag í aðventu, þann 28. nóvember, er sérstök samverustund kl. 13 og viku seinna, sunnudaginn 5. desember verður aðventukvöldvaka kl. 20 en þá verður séra Bernharður Guð- mundsson ræðumaður hjá okkur. Sunnudaginn 19. desember eru svo Jólasöngvar fjölskyldunnar kl. 11, en það er einskonar sunnudaga- skóli í jólabúningi. Þetta er lífleg stund fyrir fjölskyldur og börn á öllum aldri. Á aðfangadag er hinn hefðbundni aftansöngur kl. 18, eins og í öllum kirkjum landsins og kl. 23:30 eru jólasöngvar á jólanótt fyrir þá sem vilja fara syngjandi inn í jólanóttina. Á jóladag verður fjölskyldu- og hátíðarmessa kl. 13 en þá ætlum við að bregða út af vananum og vera fjölskyldumiðuð. Við ætlum að syngja mikið saman og lesa góða jólasögu. Loks er svo hátíðlegur aftansöngur samkvæmt venju á Gamlársdag kl. 18. “ Það er því ljóst að Fríkirkju- prestar í Hafnarfirðinum, þau Sig- ríður Kristín og Einar Eyjólfsson, eiga fyrir höndum ærinn starfa. „Þetta er nú það sem maður fær út úr starfinu, að vera til gagns og þjóna í gleði. Við reynum að taka mið af tíðarandanum til að ná betur til fólks í kirkjustarfinu, í stað þess að vera ofurseld hefðinni. Það er mjög mikilvægt,“ segir Sigríður Kristín og leggur áherslu á orð sín. „Hér fyrr á öldum gætti kirkjan þess að halda vissri fjarlægð við al- menning, til að undirstrika heil- agleikann, en sé að gáð er engin kirkja án fólksins. Allt ber þetta að sama brunninum um kærleika, nánd og samverustundir og þessi tími árs er því sérstaklega hátíð- legur og skemmtilegur í senn í kirkjustarfinu.“ Að slaka á í desember Á Sigríður Kristín einhver ráð að lokum fyrir fólk sem leitar leiða til þess að ná andanum og slaka á í öllu jólastressinu? „Forsenda þess alls er að gefa sér tíma til að gleðjast og hlæja. Ég bendi líka á að í bæninni felst mikil slökun því hún hjálpar okkur að hlusta á tilfinningarnar og fá fókus á hugsanir okkar. Þá er nauðsynlegt að fara með þakk- arbæn, að muna eftir því að þakka fyrir sig og það sem maður hefur. Allt þetta róar hugann þegar hann þarf á því að halda.“ Sigríður leggur sérstaka áherslu á það að gleyma ekki góða skapinu. „Það er svo mikilvægt fyrir geð- heilsuna að hlúa að húmornum, og hlæja nóg. Í því sambandi er ekki síst áríðandi að hafa húmor fyrir sjálfum sér. Hver og einn skyldi leitast eftir þeim félagsskap, því samfélagi, sem gerir honum kleift að hlæja og gleðjast því í jóla- stressinu er fyrir öllu að koma auga á þakkarefnin og broslegu hliðarnar á lífinu.“ jon.olason@gmail.com Að fá að tilheyra um jólin Séra Sigríður Kristín Pétursdóttir mælir með samveru um jól- in, enda séu það góðu stundirnar, frekar en gjafirnar, sem skapi góðar minningar. Morgunblaðið/Eggert Sr. Sigríður Kristín „Sé að gáð, hverju munum við þá helst eftir frá jólum fyrri ára? Það eru samverustundirnar.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.