Morgunblaðið - 27.11.2010, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 27.11.2010, Qupperneq 6
6 Jólablað Morgunblaðsins 2010 www.hjahrafnhildi.is Sími 581 2141 Jólagjöfin hennar Kápur og úlpur í úrvali Stærðir 36-52 É g byrjaði eiginlega að mála því það vantaði hreinlega eitthvað á veggina,“ segir Sigurrós Baldvinsdóttir frístundamálari sem í fleiri áratugi hefur málað sín eigin jólakort. „Ég hef verið þetta 17-18 ára þegar ég byrjaði að mála fyrir al- vöru. Ég fór með frænku minni í tíma hjá konu sem ég man ekki lengur nafnið á, en hún kenndi okkur að blanda liti og önnur vinnubrögð. Hjá henni málaði ég alls kyns myndir, jafnvel allstór verk af Gullfossi og Þingvöllum. Ég gaf þetta flest frá mér og veit svosem ekki hvar þessi verk eru niðurkomin í dag.“ Misgóður teiknari Sigurrós segist aldrei hafa verið sérstaklega góður teiknari, og hún láti það vera að rissa upp undirlag myndarinanr og leyfi frekar máln- ingunni að ráða ferðinni. „Ég man að ég reyndi eitt sinn að bæta hjá mér teiknihæfileikana og skellti mér á námskeið í myndlistarskóla. Þar voru kenndar undirstöðurnar í teikningu, og fenginn allsber maður til að sitja fyrir. Ég held hann hafi meira minnt á hárlausan apa þegar ég hafði lokið við mitt sköpunarverk.“ Jólakortagerðin hófst fyrir um 30 árum. „Allan þennan tíma hef ég sent handgerð jólakort. Þetta eru ekki beinlínis jólalegustu kort- in því ég er ekki að teikna jóla- sveina og þvíumlíkt. Frekar er um að ræða mynstur og form. Kortin breytast alltaf á milli ára. Stund- um útbý ég jafnvel nk. klippi- myndir og á meðan einn litur er ráðandi eitt árið er annar litur ríkjandi það næsta. Í ár eru kortin til dæmis með drungalegum brún- um tónum, þau eru ekkert rosa- lega jólaleg að mér finnst,“ bætir Sigurrós við og hlær. „Ég leyfi hreinlega einhverju innra með mér að koma fram, og á erfitt með að lýsa því miklu betur hvernig kortin verða til.“ Stofustáss á sumum heimilum Sigurrós áætlar að um hver jól handgeri hún á bilinu 20 til 30 kort. Hún ráðgerir þó að korta- framleiðslan fari minnkandi með árunum. „Ég hef eiginlega ekki tíma fyrir þetta stundum. Það er mikil vinna að gera kortin og svo er þetta náttúrlega mun dýrara en að kaupa einfaldlega tilbúin kort úti í búð.“ Hún ætlar samt ekki að leggja kortagerðina á hilluna enda veit Sigurrós að margir kunna mjög vel að meta þennan handgerða gleðigjafa. „Hjón sem núna eru látin fengu t.d. kort frá mér hver jól og héldu alveg sérstaklega upp á þau. Kortunum söfnuðu þau samviskusamlega og röðuðu vand- lega upp á heimilinu um hver jól. Ég sendi líka syni mínum í Am- eríku og meðeiganda hans þar kort, og ég veit að þeir hlakka báðir til að fá kortið.“ ai@mbl.is Jólakort „Í ár eru kortin með drungalegum brúnum tónum, þau eru ekkert rosalega jólaleg,“ segir Sigurrós. Morgunblaðið/Eggert „Málningin fær að ráða ferðinni“ Handmáluð jólakort Sigurrósar Baldvinsdóttur hafa glatt vini og ættingja í um þrjá áratugi. Kortin eru ólík milli ára og engir englar eða jólasveinar sjáanlegir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.