Morgunblaðið - 27.11.2010, Síða 55

Morgunblaðið - 27.11.2010, Síða 55
Jólin eru sá tími árs sem öll fjölskyldangerir vel við sig í mat og drykk. Þarsem kisur og voffar eru á heimilum fáþau yfirleitt líka betri mat á þessum árstíma, fyrir utan að standa sníkjuvaktina við jólamatarborðið. En jólamatur getur verið skaðlegur gæludýrum og dýralæknar vara mjög ein- dregið við því að hleypa köttum og hund- um, eða öðrum dýrategundum ef því er að skipta, í jólamatinn. Saltur, reyktur, feitur og kryddaður maturinn sem okkur mann- fólkinu þykir svo gott að háma í okkur get- ur valdið dýrunum verulegum meltingar- truflunum og veikindum. Þess þekkjast jafnvel dæmi í allra ýktustu tilvikunum að jólamatur hafi orðið gæludýrum að aldur- tila. Hitt er hins vegar algengara að mikið sé að gera hjá dýralæknum á jólum við að sinna eigendum hunda og katta með ælu- pest og niðurgang. Frekar en að gefa dýrunum af manna- matnum má frekar prófa að elda sér- skammt af hollari mat. Kjúklingakjöt fellur t.d. vel í kramið hjá flestum hundum og köttum og svo lengi sem húðinni er sleppt og kryddið látið vera ætti ögn af rifnum kjúlla ekki að koma að sök. Vitaskuld verð- ur að passa að engin bein fylgi með enda geta þau flísast í sundur og valdið skaða. ai@mbl.is Jólakötturinn Kisi horfir dreymandi fram á veginn. Hann er kannski að hugsa um jólakrásirnar sem bíða hans. Sætur Það væri erfitt að neita þessum hvutta um bita af jólaborðinu. Jólagott fyrir ferfætlingana Jólamatur getur farið illa í dýrin og þarf að standast sníkjulegt augnaráðið 42 Jólablað Morgunblaðsins 2010 Á jólunum getur margt freistandi verið uppi á borð- um, en sumt af því er hættulegt gráð- ugum gæludýrum. Súkkulaði, rúsínur og hnetur eru dæmi um mat sem getur valdið eitr- unareinkennum í hundum og kött- um, og þá auðvitað um leið allir réttir sem innihalda slíkt, s.s. ensk jólakaka. Jólarósin er með eitruð blöð og ef köttur eða hundur ákveður að háma þau í sig er vissara að hringja í dýralækninn. Sama gildir um amaryllis og mistiltein sem eru vinsælar skrautjurtir á jólum. Jólalegt en hættulegt Jólabakstur fyrir besta vininn Fátt er skemmtilegra en að gleðja gæludýrið sitt með góðu nasli. Kjörið er að baka eina eða tvær sortir af hundakexi með öllum jólakökunum, svo voffi fái líka að smakka af góðgætinu. Hér eru tvær uppskriftir að hundakexi fengnar af uppskrifta- vefnum Allrecipes.com: Hundakex með beikonfitu 2 og ½ bolli heilhveiti ½ mjólkurduft 1 matskeið hveitikím 1 teskeið nautakjötkraftur, mulinn 1⁄3 bolli beikonfita 1 egg ½ bolli ískalt vatn Ofninn er hitaður upp í 175°C Þurrefnunum blandað saman í meðalstórri skál. Beikonfitu og eggi hrært saman við. Vatninu bætt út í matskeið í senn þar til deigið er nógu rakt til að loða saman. Degið rúllað á yfirborði með léttu hvei- tilagi. Flatt út þar til er um 1,5 cm á þykkt. Kökurnar skornar út og lagðar á bökunarbakk- ann með a.m.k. 2 cm rými á milli. Bakað í 25 til 30 mínútur og kælt vandlega áður en voffi fær að smakka. Hundakex með púðursykri 2 og ½ bolli heilhveiti ¾ bolli léttmjólkurduft 1 þeytt egg ½ bolli jurtaolía 2 teningar af nautakjötskrafti ¾ bolli sjóðandi heitt vatn 2 matskeiðar púðursykur Ofninn hitaður í 150°C Kjötkrafturinn leystur upp í vatninu og leyft að kólna. Þurrefnunum, eggi, olíu, kjötkraftinum og sykrinum blandað saman. Hnoðað í mínútu. Deigið rúllað á yfirborði með þunnri hveitiskán, þar til það er rösklega hálfur sentimetri á þykkt. Deigið skorið út í kökur (helst í laginu eins og bein) og bakað á smjörpappír í 30 mínútur. Látið kólna alveg áður en borið er fram.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.