Morgunblaðið - 27.11.2010, Síða 79

Morgunblaðið - 27.11.2010, Síða 79
Í hér um bil 20 ár hefur Kristín Jónsdóttir þýðandi vart getað slitið sig frá Parísarborg. „Ég var alltaf harðákveðin í að fara til Frakklands og læra frönsku, og fór beint út eftir stúdentspróf árið 1989,“ segir hún og reiknast til að hafa varla yfirgefið Frakkland síðan nema á tæplega þriggja ára tímabili sem hún varði við háskólanám á Íslandi. „Tungumálið, menningin og þessi suðupottur fjölmenningar er það sem laðar mig svo að þessari borg,“ segir Kristín aðspurð hvað geri París svona heillandi. „Að ganga hérna á milli hverfa og inn í nýjan og nýjan heim í hvert skipti, fara jafnvel í nokkrum skrefum úr sollinum yfir í of- ursnobbið. Lífinu hérna fylgir líka einhvers konar frelsistilfinning og þægindi.“ Íslensk-franskt jólahald Kristín á franskan eiginmann, hann Arnaud, og saman eiga þau tvö börn. „Það er samt ekki hægt að saka hann Arnaud um að vera það sem heldur mér í Frakklandi. Að vera hérna er algjörlega mitt val og skrif- ast nær alfarið á mannlífið og menn- inguna,“ bætir Kristín við og kímir. Eftir öll þessi ár er Kristín búin að læra að halda jól á hálfgerða íslensk- franska vísu. Hún sleppir því helst ekki að hafa nokkra íslenska lykilrétti á borðinu en þarf um leið að mæta frönskum matarhefðum. „Frakkarnir eru reyndar ekki eins mikið jólasiða- fólk og Íslendingar. Þeir eru mjög ró- læði smákanil og kryddi með í glasið.“ Íslenska matseldin segir Kristín að hafi lagst vel í franska matargesti: „Frakkarnir virðast t.d. vera mjög hrifnir af hangikjötinu, og þykir ekki síðra ef það er eldað á alíslenska vísu með kartöflum, uppstúf og borið fram með grænum baunum og rauðkáli,“ lýsir hún. „Síðustu jól eldaði ég svo lambalæri fyrir alla karlmennina í fjölskyldunni, og þeir hafa elskað mig síðan og tala enn um hvað maturinn var góður í það skiptið. Reyndar var lambið nýsjálenskt en eldunin var eins og ég lærði af Nönnu Rögnvald- ardóttur á Íslandi. Svona verður mað- ur að sætta sig við það næstbesta þegar flókið er að láta senda sér lærið frá Íslandi.“ Pylsur sem enginn borðar? Hefðbundnasti jólamatur Frakka segir Kristin að sé sérstök gerð af pylsum. „Þær kallast boudin og eru bæði fáanlegar sem blóðpylsur og svo hvítar, og þykja alveg dæmigerður jólamatur. Reyndar þekki ég engan Frakka sem borðar þetta sjálfur en þeim finnst þeir verða að gefa útlend- ingunum boudin um jólin.“ Foie gras, gæsalifrarkæfuna frægu, segir Kristín ómissandi á jóla- borðinu. „Ostrur seljast líka rosa- mikið í kringum jólin en aftur á móti man ég ekki eftir að hafa heyrt af neinum sem eldar sér fisk í jólamat- inn.“ Algengasti aðalrétturinn sýnist Kristínu að sé kalkúnn, sem lesendur eru kannski sammála blaðamanni um að er ekki franskasti réttur í heimi. „En hafa verður í huga að oft koma mjög margir saman við jólamat- arborðið og kalkúnninn er drjúgur.“ Kampavín er svo haft á borðum: „Kampavínið má ekki vanta í for- drykk og með eftirréttinum, og svo verður að vera fínt rauðvín með matnum.“ Drumbar og styttukökur Að sögn Kristínar er eftirrétturinn ekki mikið atriði í huga Fransmanna. „Algengast er að bera fram bûche, eða trjádrumb. Það getur þá verið ýmist kaka eða ísterta sem rúllað er upp og borið á krem svo að lítur út eins og trjádrumbur beint úr arin- stæðinu. Önnur terta, La galette des Rois, er líka í hverju matarboði á Kampavín og uppstúf Íslenskar og franskar matarhefðir blandast saman á jólunum heima hjá Kristínu Jónsdóttur í París. Hún segir Fraka kunna vel að meta hangikjötið eldað og framreitt á hefðbundna vísu. Kristín Jónsdóttir í París. legir í þessu öllu saman,“ segir Krist- ín og lýsir því hvernig hún reynir að blanda saman því besta af íslenskum og frönskum jólamat. „Ég er til dæm- is með hangikjöt í frystinum núna og hlakka mikið til að elda það. Svo bý ég til ís eins og mamma gerði alltaf, og úr eggjahvítunum sem ganga af bý ég til einhvers konar kökutoppa. Það eru reyndar einu smákökurnar sem ég baka, og því miður ekki lakkríst- oppar því ekki fæst lakkrískurl úti í búð hér í borg.“ Uppstúfurinn fer vel í Frakka Piparkökurnar segist Kristín kaupa í IKEA-versluninni og hún út- býr líka jólaglögg á íslensk- skandinavíska vísu. „En reyndar selja öll kaffihúsin í París vin chaud, heitt vín, yfir köldustu vetrarmán- uðina og ég er ekki frá því að þeir þrettándanum. Sú kaka er úr eins konar smjördeigi með möndlum og maríustytta er bökuð með deiginu. Kakan er þung og matarmikil, sæt og þykk, og sá sem hreppir sneiðina með maríustyttunni er útnefndur kon- ungur eða drottning matarboðsins.“ Coq au vin – Hani í víni Í þessa uppskrift nota ég langoft- ast kjúkling, en þó er mun betra að nota eldri hænu, en slíkt er hægt að sérpanta hjá slátrurum hér í Frakk- landi. Fyrir 6-7: 1 stór kjúklingur, a.m.k. 2 kg 4-5 msk af marc de Bourgogne (má nota koníak, sérrí …) 3 stórar gulrætur 1 laukur 2 negulnaglar 1 vænn púrrulaukur (nota hvíta hlutann) 4 skalottlaukar 3-4 hvítlauksrif 250 g litlir sveppir 80 g smjör 2 msk hveiti 3 dl af kjúklingasoði (annaðhvort heimalagað eða teningar) 1 flaska af léttvíni (rautt eða hvítt) 1 msk tómatpuré 1 bouquet garni (kryddjurtavöndur: lárviðarlauf, timían og steinselja) – möguleiki að nota bara kryddið; 1-2 lárviðarlauf, 2 msk steinselju og 3 msk timían 1 sítróna Salt og pipar Kjúklingur skorinn í 10 bita (læri og bringur í tvennt, plús vængir, bit- arnir saltaðir og pipraðir létt. Gulrætur, laukar, skalottlaukar og hvítlaukur flysjuð, púrrulaukur þveg- inn. Gulrætur, laukur og púrrulaukur skorin í strimla. Hvítlaukur og ska- lottlaukur hakkaðir fínt og geymdir hvor í sínu lagi. Sítrónan pressuð, sveppir skornir í fernt, nema þeir séu þeim mun minni, og lagðir í sítrónu- bleyti og geymdir. Hitið 60 g af smjöri í vænum þykk- botna potti og brúnið kjúklingabitana á öllum hliðum, leggið svo á disk til hliðar. Brúnið létt strimlagrænmetið ásamt skalottlauknum í pottinum, bætið kjúklingabitunum út í og reyn- ið að blanda og láta hitna. Hellið áfenginu yfir og kveikið í og leyfið að flamberast meðan þið snúið pottinum á alla kanta. Stráið hveitinu yfir og látið blandast vel, bætið í víni, hvít- lauk, kryddjurtavendi og svo soðinu sem búið er að leysa tómatpuréið upp í, hrærið aðeins í, lokið pottinum og látið malla í 40 mínútur. Bætið þá sveppunum út í og látið sjóða í 30 mínútur. Borið fram í tarínu (eða bara í pott- inum), ásamt t.d. fersku tagliatelle, brokkolí eða blómkáli. Mousse au chocoloat – súkkulaðimús Fyrir 6: 6 egg 200 g suðusúkkulaði Eggjahvíturnar stífþeyttar með hnífsoddi af salti, suðusúkkulaði brætt í vatnsbaði eða í örbylgjuofni kælt örlítið og hrært saman við rauð- urnar. Blandað varlega út í stífar hvíturnar, með sleikju, í sem fæstum hreyfingum. Látið stífna í ísskáp, annaðhvort í stórri skál eða sex minni skálum. ai@mbl.is Getty Images búðirnar sig á hverju ári með dansandi ævintýra- heimum.“ Messusókn er líka mjög einstaklingsbundin. „Í fjöl- skyldu mannsins míns fer t.d. pabbinn í messu en mamman ekki né heldur synirnir. Frökkum virðist vera mjög umhugað um að vera annaðhvort trúaðir eða ekki, og ekkert sem heitir henti- eða jólatrú í þeim efnum.“ Sjálf lætur Kristín messuna vera. „En ég kveiki samt alltaf á útvarpinu þegar klukkan er sex á Íslandi, hlusta á kirkjuklukkurnar hringja inn jólin og þuluna óska mér gleðilegrar hátíðar. Ég missi aldrei af því.“ Jól á Champs Elysées París er falleg jólaborg, þótt Kristín segi reyndar hinn almenna borgara ekki mjög duglegan að skreyta hjá sér húsið. „Borgin var að setja upp jólaljósin í götunni okk- ar núna í vikuni, en að vísu er ekki búið að kveikja á þeim ennþá. Almenningur finnst mér svo smám saman vera að skreyta meira hjá sjálfum sér,“ segir hún. Á meðan heimilin eru lítið skreytt segir Kristín versl- anirnar hins vegar fyrir löngu búnar að læra að skreyta í hólf og gólf í desember: „Champs Elysées er dásam- lega falleg þegar ljósin eru komin upp, og svo eru gluggarnir í stórmagasínunum ótrúlegir. Þar toppa 66 Jólablað Morgunblaðsins 2010 Hágæða dönsk hönnun: • ISAKSEN-DESIGN greenlandic spirit • ie-glasses hágæða tískugleraugu með styrk • Skór frá Lise Lindvig • Leðurvörur frá DEPECHE www.raudaeplid.com Skólavörðustíg 22, 101 Reykjavík, s. 517-7149 / 864-0442 Kristín segir Frakka leggja mikla áhreslu á það, bæði um jól sem á öðrum árstímum, að máltíðin sé rétt saman sett og borðað úr öllum fæðuflokkum. „Þeir fá sér osta eftir mat til að koma meltingunni í gang, og ferskt grænmeti með aðalrétt- inum. Stundum hef ég stytt mér leið með því að sneiða ein- faldlega niður t.d. agúrku og reiða fram sem léttan forrétt eða snarl. Síðan er alveg ófrá- víkjanlegt hollustuatriði að fá sér vín með kjötréttum.“ Frakkarnir leggja líka mikið upp úr því að hafa þríréttað, í það minnsta. „Það á jafnvel við hversdags í miðri viku, að und- antekningalaust er boðið upp á forrétt, aðalrétt og eftirrétt.“ Létt og í jafnvægi
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.