Morgunblaðið - 27.11.2010, Page 111

Morgunblaðið - 27.11.2010, Page 111
Jólafrímerkin eru mjög falleg þetta árið. Þau eru eftir Sveinbjörgu Hallgrímsdóttur, myndlistarmann á Akureyri. Meginmyndefnið er hringurinn í litum vetrarins og með honum er vísað til lögunar jarðar- innar sem verður svo á frímerkj- unum, einnig tákn aðventunnar og tákn árstíðanna og óendanleikans, en það er hugmyndin á bak við hönnun Sveinbjargar. Jólafrímerkin 2010 eru tvenns konar frímerki, á öðru frímerkinu er krans alsettur snjókornum en á hinu hringurinn, ígildi hnattarins, alsettur snjókristöllum. Samofnir þessu þema á báðum frímerkjunum eru líka fuglar íslenska vetrarins, snjótittlingarnir. Það var Hlynur Ólafsson, grafískur hönnuður, sem færði verk Sveinbjargar Hallgríms- dóttur í frímerkjabúning. Þess má svo geta að í tengslum við jólafrí- merkin gefur Pósturinn líka út Jólaprýðina, í fimmta sinn nú í ár. Jólaprýðin er fjórar mismunandi tegundir af jólaóróum, í gylltu eða silfri, sem hægt er að hengja upp sem jólaskraut eða lauma með í jólapakkann. Sveinbjörg hannaði sömuleiðis Jólaprýðina í ár. Listamaður Sveinbjörg Hallgrímsdóttir hannar jólafrímerkin í ár. Jólafrí- merkin 2010 98 Jólablað Morgunblaðsins 2010 15% Jólaafslætti A ðventan er annatími hjá flestum, óháð því hvert starf hvers og eins kann að vera. En starfsfólk Póstsins er í hópi þeirra sem þurfa að bretta upp erm- arnar hvað hressilegast því óvíða er jólamán- uðurinn jafn annasamur og hjá þeim. Blaða- maður spjallaði við Ágústu Hrund um jólin hjá Póstinum og forvitnaðist til að byrja með um muninn á desember og öðrum mánuðum ársins. „Desember er stærsti mánuðurinn á árinu hjá okkur og í heildina eykst magnið um 60% miðað við aðra mánuði ársins,“ segir Ágústa. „Á þessum tíma myndast mikil stemning í Póstmiðstöðinni, sem er hjarta starfseminnar, en þar fara allar sendingar í gegn. Þá er bætt við aukastarfsfólki til að við getum komið öllu til skila á réttum tíma fyrir jólin. Þá taka líka allir þátt í jólunum, til að mynda mæta fram- kvæmdastjórar, forstjóri og skrifstofufólkið úr sínum hefðbundnu störfum og hjálpa til við að flokka jólakortin og pakkana. Mikil samheldni er í starfsfólkinu og mjög skemmtilegt í vinnunni á þessum tíma ársins.“ Jólakortin boða hátíð í bæ Jólakortahefðin hefur gegnum tíðina verið ómissandi hluti af jólunum. Einhver gæti álykt- að sem svo að þessi skemmtilegi siður stæði höllum fæti nú á dögum tölvupósts og annarra rafrænna samskipta, en Ágústa er ekki á því. „Bréfamagnið í desember er um 40% meira en aðra mánuði á árinu. Við höfum ekki ná- kvæma tölu yfir magn jólakorta, þar sem þetta blandast við önnur bréf í umferð, en undanfarin ár hefur ekki verið veruleg breyting á magni jólakorta í umferð sem við tökum sérstaklega eftir. Að sjálfsögðu eru ýmsar aðrar leiðir til að óska vinum og ættingjum gleðilegra jóla, eins og með tölvupósti, jafnvel SMS og svo auðvitað með síðum eins og Facebook en auðvitað jafnast ekkert á við það að senda hlýlega kveðju í jóla- korti til vina og ættingja, tala nú ekki um þegar það fylgja myndir með af börnunum, barna- börnum og svo framvegis.“ Persónuleg jólakort – og frímerki! Sem fyrr segir er desembermánuður annríkis og oft ekki laust við að jólastressið geri vart við sig. Ágústa bendir á að Pósturinn reyni að koma til móts við viðskiptavini sína og leggi sitt af mörkum til að reyna að spara þeim tíma og spor. „Við hjá Póstinum viljum endilega auðvelda landsmönnum jólaundirbúninginn,“ segir Ágústa. „Á vefnum okkar, www.postur.is, er hægt að hanna sín eigin persónulegu jólakort. Við sjáum svo um allan pakkann þaðan í frá, það er prent- un og dreifingu. Það eru tvær leiðir sem standa viðskiptavinum okkar til boða við hönnun jóla- kortanna svo við séum nú að þjónusta sem breiðastan hóp.“ En með persónulegum jólakortum er ekki öll sagan sögð. „Hjá okkur getur hver og einn líka hannað sín eigin frímerki. Það er ofsalega skemmtileg viðbót við jólakortið að það sé til dæmis mynd af barnabörnunum á frímerki á umslaginu með jólakortinu til ömmu og afa fyrir jólin. Og ekki nóg með þetta heldur auðveldum við líka utanumhaldið á jólakortalistanum; hver kann- ast ekki við að vera með lista í excel-skjali og svo þarf að byrja fyrir hver jól að leita að heim- ilisföngum, póstnúmerum o.s.frv. til að uppfæra listann. Í þessu sambandi erum við með þjón- ustu sem við köllum Heimilisfangalistinn minn, en þar geturðu búið þér til jólakortalistann, og reyndar eins marga lista og hver og einn vill, og þetta er tengt okkar gagnagrunnum og þá eru öll heimilisföng alltaf rétt og uppfærð. Og best er að þetta er frítt og einstaklega þægilegt.“ Sérkennilegar sendingar um jólin Jólakortin eru þó bara önnur hliðin á póst- sendingum um jólin. Jólapakkar og pinklar eru hin, og þótt Pósturinn vilji spara viðskiptavinum sínum sporin er ekki þar með sagt að innihaldið fylgi alltaf viðmiðum. Ágústa er beðin að nefna dæmi þar sem eitthvað furðulegt fór í pakkann. „Það er alltaf eitthvað um að fólk sendi mat- væli sín á milli í kringum jólin og eitt sérstakt dæmi get ég nefnt í því sambandi. Eitt árið hafði viðskiptavinur ákveðið að senda ein- hverjum frysta skötu. Það hefur væntanlega gleymst hjá móttakandanum að sækja send- inguna á pósthúsið og það er vel hægt að ímynda sér lyktina sem myndaðist á því póst- húsi þegar skatan tók að þiðna uppi í hillu. Það hefur væntanlega ekki verið uppáhaldssending starfsfólksins á pósthúsinu þau jólin,“ segir Ágústa. „En Pósturinn er ekkert í því að flytja fersk matvæli þótt það leynist oft eitthvað í pökk- unum; við vitum ekki alltaf hvað er í sending- unum.“ Ágústa nefnir ennfremur annað skemmtilegt dæmi um jólasendingar. „Svo er auðvitað alltaf skemmtilegt á þessum árstíma þegar okkur fara að berast bréf stíluð á jólasveininn, og þá töluvert af bréfum sem koma frá útlöndum. Þessi bréf áframsendum við til jólasveinsins svo óskalistar barna komist nú örugglega í réttar hendur,“ bætir Ágústa við. Að sögn hennar er ekki um annað að ræða en að koma öllu á leiðarenda enda stendur jólakorta- hefðin á gömlum merg hérlendis. „Fyrstu jóla- kortin komu á markað á Íslandi í kringum árið 1890 og Pósturinn hefur borið þau út síðan póst- samgöngur byrjuðu á Íslandi.“ jon.olason@gmail.com Pósturinn um jólin Morgunblaðið/Kristinn Hjá Póstinum „Mikil samheldni er í starfsfólkinu og mjög skemmtilegt í vinnunni á þessum tíma ársins,“ segir Ágústa Hrund Steinarsdóttir um háannatímann sem á næsta leyti. Desember er mánuður böggla- pósts og jólakorta. Ágústa Hrund Steinarsdóttir, forstöðumaður markaðsdeildar hjá Póstinum, fer ekki varhluta af annríkinu sem því fylgir frekar en aðrir sem þar starfa. En margar hendur vinna „létt“ verk.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.