Morgunblaðið - 27.11.2010, Side 112
Jólablað Morgunblaðsins 2010 99
Ferðaþjónustu bænda -
Bændaferða
Tilvalin jólagjöf!
Gildir í utanlandsferðir og á
ferðaþjónustubæjum
innanlands (gisting, matur, afþreying).
Selt á skrifstofu Ferðaþjónustu bænda
Gjafabréf
Sp
ör
eh
f.
-
R
ag
nh
ei
ðu
r
I.
Á
gú
st
sd
ót
ti
r
Leyfishafi
Ferðamálastofu
Síðumúla 2, 108 Reykjavík · s. 5702700
www.baendaferdir.is · www.sveit.is
Allt sem þig vantar fyrir glæsilegt
jólahlaðborð - að dönskum hætti!
Svínapörusteik
Svínasrúllupylsa
Svínasulta
Partýskinka
Roast beef
Dönsk lifrarkæfa
Villipaté
Brædd svínafita
Graflax
Reyktur lax
Síld í úrvali
...og margt fleira
Kjöthallar hamborgarhryggur
Okkar gómsæta sænska jólaskinka
Gæða nautasteikur
Jólalambið
Villigæsir
Upplýsingar og pantanir:
Kjöthöllin Skipholti 70 sími 553 1270
Kjöthöllin Háaleitisbraut 58-60 sími 553 8844
kjothollin@kjothollin.is
og www.kjothollin.is
Allt í jólamatinn
Jólasteikina færðu hjá okkur
Jólagjafakörfur
í úrvali
Pantið jólamatinn tímanlega!
V
ið nýtum landsins gögn og
gæði og efnivið sem er um-
hverfisvænn,“ segir Erla
BjörgArnardóttir á Flúð-
um. Þau Vilberg Tryggvason eigin-
maður hennar settu fyrir nokkrum
árum á laggirnar fyrirtækið Grænna
land þar sem þau vinna meðal annars
aðventukransa, grenilengjur og
fleira. Á íslenskum heimilum þykir
heimilisprýði að fallegum krönsum
sem ofnir eru úr greni utan um hálm.
Og það eru hálmhringirnir sem þau
Erna og Vilberg vinna og senda þús-
undir slíkra á markað nú fyrir jólin.
Nýti það sem náttúran gefur
„Þetta er skemmtileg framleiðsla. Í
kransana fáum við hálm sem til fellur
hjá kornbændum hér í nágrenni
Flúða. Við drögum þetta að og fyrstu
kransana óf ég saman líklega í mars
sl. vetur. Innfluttir kransar eru
margir með nælonstreng en okkar
með bómullargarni enda nýti ég eftir
megni það sem náttúran gefur,“ segir
Erla Björg sem er garðyrkjufræð-
ingur að mennt og er fædd og uppalin
á Flúðum.
Nýlega fengu þau Erla Björg og
Vilberg til framleiðslu sinnar vélar
sem nýta má til að vefja hálmhringi
og til að leggja á þá grenið sem er
innflutt.
Íslenska grenið er gisið
„Það væri vissulega gaman að nýta
íslenskt greni í ríkari mæli, en gallinn
er sá að það er of gisið til að slíkt sé
mögulegt. Hins vegar höfum við not-
að t.d. íslenskt blágreni og furu á
grenilengjurnar sem margir eru með
og setja til dæmis á svalahandrið.
Þann trjágróður höfum við fengið úr
skóglendi hér við Flúðir. Einnig
birkigreinar og hrísvendi sem við
málum og margir kaupa síðan í
blómabúðum og skreyta,“ segir Erla
Björg sem nýverið fór í malarnámur í
nágrenni við sig og nálgaðist þar mik-
ið magn af grámosa sem er vinsæll í
jólaföndrið. Einnig köngla af greni-
trjám eins og margir nota í jóla-
skrautið. Þá er söfnun á íslenskri
hvönn sem notuð er til lyfjagerðar á
vegum Saga Medica vaxandi þáttur í
starfi þeirra Erlu og Vilbergs yfir
sumartímann jafnframt því sem þau
reka garðaþjónustu
„Það er alls ekki sama hvernig að-
ventukrans er settur saman. Hand-
tökin þurfa að vera örugg og þétt skal
ofið. Mér reiknast svo til að við höfum
þetta árið sett saman einhverja 2.000
þúsund kransa úr hálmi og þá kemur
sér vel að vera með vafningsvélina
sem við fengum snemma á þessu ári.
Þó vélar létti okkur störfin fylgir
þessu óneitanlega talsverð stemning
og gleði. Úti í Þýskalandi þar sem að-
ventusiðir eru mjög sterkir er meira
að segja hefðin sú að karlarnir komi
saman á góðri stundu og fái sér of-
urlítið í tána eins og sagt er og setji
saman og skreyti grenilengjur. Hér
er að vísu annar hátturinn hafður á –
en skemmtilegt er þetta alltaf,“ segir
Erla Björg sem kveðst hafa orðið vör
við vitundarvakningu og raunar stór-
aukinn áhuga á því að nýta það sem
landið gefur til föndurgerðar nú í
kjölfar efnahagshrunsins. Í margra
huga komi raunar ekki annað til
greina eins og sést hafi á námskeið-
um í kransagerð sem Erla Björg hélt
á dögunum.
Gróður jarðar
„Það má svo margt skemmtilegt
skapa úr gróðri jarðar. Við höfum
notað margt af því sem landið gefur
til skreytinga, til dæmis málað njóla
og vallhumal sem var fallegur kominn
með réttan svip. En líklega er mesta
listin að búa til fallega aðventukransa
– sem eru vel við hæfi nú þegar hátíð-
in nálgast,“ segir Erla að síðustu.
sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Afurðir Erla og Vilberg með framleiðslu sína, grenikransa og málaðar birkigreinar sem eru vinsælar í jólaskrautið.
Ofnir kransar úr
landsins gæðum
Hálmur af kornökrum bænda er efniviður í aðventukrönsum. Grenið kemur erlend-
is frá. Margt fallegt má skapa úr flóru landsins, svo sem úr njólum og vallhumli.
Handverk Erla vefur hálmkrans.
List Greinarnar eru spreyjaðar og verða þá eins og snævi þaktar jólagreinar.
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is