Ný saga - 01.01.2001, Side 55
Hvíldar er þörf
unum á Alþingi, eftir kosningasigur Fram-
sóknarflokksins og Alþýðuflokksins sem nú
hafði 5 þingmenn.
Árið 1928 var frumvarpið lagt fram á Al-
þingi að nýju, óbreytt að öðru leyti en því að
vaktaskiptin og 8 klst. hvíldin skyldu gilda frá
því skip legði úr höfn til veiða þar til það legð-
ist að bryggju á ný. Flutningsmennirnir voru
þrír þingmenn Alþýðuflokksins, Héðinn
Valdimarsson, Sigurjón Á. Ólafsson, formað-
ur Sjómannafélags Reykjavíkur og Haraldur
Guðmundsson. Nú brá hins vegar svo við að
frumvarpið var samþykkt í báðum deildum
þingsins, í neðri deild með 15 atkvæðum gegn
8 og í efri deild með 8 atkvæðum gegn 5.58
Allir þingmenn Alþýðuflokksins og Fram-
sóknarflokksins greiddu frumvarpinu atkvæði
sitt, auk eins þingmanns Sjálfstæðisflokks-
ins.59 Það sem hér skipti mestu var að fram-
sóknarmenn höfðu tekið flokkslega afstöðu
til málsins og einn helsti talsmaður frum-
varpsins í umræðunum á þingi var Jónas Jóns-
son, dómsmálaráðherra. Hér var flokkurinn
að endurgjalda stuðning Alþýðuflokksins við
ríkisstjórn Framsóknarflokksins.
Tæpum 10 árum eftir að Jörundur Brynj-
ólfsson flutti frumvarp sitt var meginefni þess
lögfest sem lög nr. 36/1928. Og Jörundur sem
nú var þingmaður Framsóknarflokksins fékk
tækifæri til að fylgja þessu merka máli í höfn.
Vökulögin í dag
Árið 1942 voru breytingar á vökulögunum
enn á dagskrá Alþingis og nú var gerð krafa
um 12 klukkustunda hvíldartíma togarahá-
seta. Frumvarpið dagaði uppi í nefnd. Árin
1946, 1947 og 1948 var enn reynt að ná fram
lögbundinni 12 stunda hvíld en án árangurs.
Að lokum var þó samþykkt að setja málið í
stjórnskipaða nefnd til frekari skoðunar. Það
starf skilaöi engum árangri. Frumvarp um 12
stunda hvíldina var aftur lagt fram á þingi
árið 1949 og 1950 en þá var því vísað frá með
rökstuddri dagskrá „með því að aöilar hafa
nýlega orðið ásáttir um að gera nánari
ákvörðun hvíldartímans að samningsatr-
Íði ...“60
Þann 6. nóvember árið 1950 náði Sjó-
mannafélag Reykjavíkur samningi við út-
gerðarmenn eftir margra vikna verkfall. Var
þá hásetum á togurum á saltfiskveiðum tryg-
gð 12 stunda hvíld á sólarhring.61 Það kostaði
síðan annað langvinnt verkfall árið 1954 að fá
sambærilega hvíld á ísfiskveiðuni.62
Frumvarp um 12 stunda hvíld fyrir togara-
sjómenn var aftur lagt fram á þingi árið 1951
og næstu þingum þar á eftir en fékkst ekki af-
greill. Það var loks með lögum nr. 54 frá 1956
að vökulögunum var breytt og 12 stunda
hvíldartíminn lögfestur á togurum. Breyting-
in mætti nú engri mótstöðu á þinginu.63
Vökulögin nr. 53 frá 1921 með þeim breyting-
um sem hér hefur verið greint frá eru enn í
gildi ef frá er talinn viðurlagagrein þeirra sem
breytt var með lögum nr. 116 frá 1990.
Þegar atburðarásin frá fimmta áratugnum
og til þess að breytingin á vökulögunum var
samþykkt á árinu 1956 er skoðuð, er það
einkum tvennt sem vekur athygli, stigvaxandi
þungi sem var á því að fá hvíldina lengda og
að sjómenn skyldu fallast á að gera út um
málið í kjarasamningum.
Bent var á að þrátt fyrir þá bragarbót sem
gerð var á vökulögununi 1928 einkenndi lang-
ur vinnudagur og þrældómur enn störf tog-
arasjómanna langtímum saman. Ástandið
versnaði síðan enn frekar 1947 og árin þar á
eftir þegar nýsköpunartogararnir komu til
landsins. Þetta voru ný skip sem ekki kröfðust
mikils viðhalds og var haldið eins stíft úti og
kostur var. Þá hafði á þessum tíma dregið úr
siglingum skipanna með afla til útlanda og
þar með einnig úr siglingafríunum sem nýst
höfðu hásetum til hvíldar. Þegar veitt var til
vinnslu innanlands, þ.e. í sall, skreið og fryst-
ingu, var frí aðeins í einn sólarhring á niilli
túra og ekki um önnur frí að ræða.
Ulhaldið á þessum skipum var svo stíft að
á sumum skipum voru úlhaldsdagarnir 360
á ári. Þegar menn fóru að vinna 112 tíma
vinnuviku mánuð eftir inánuð árið um
kring, kom skiljanlega upp óánægja með
þetta og þeir fóru að hugsa um að það hlyti
að vera hægt að breyta þessum vinnutíma
einhvern veginn.64
Á sama tíma og þrýstingurinn á umbætur í
hvíldartímamálinu óx stöðugt, benti fátt til
þess þegar kom fram um 1950 að lagasetning
næði fram að ganga á Alþingi. Ákvörðunin
Mynd 12.
Haraldur Guðmunds-
son þingmaður Al-
þýðuflokksins var
einn þriggja flutnings-
manna frumvarpsins
1928. íþvivargert
ráð fyrir átta stunda
hvitdartima.
53