Ný saga - 01.01.2001, Page 66

Ný saga - 01.01.2001, Page 66
Ragna Garðarsdóttir Sársaukinn var of mikill, skað- inn of stór og sektartilfinning- in þrúgandi seig. Þessi goðsagnakennda útfærsla var eink- um sett fram í fjölmiðlum og í fyrstu kvik- myndunum og sjónvarpsþáttunum sem gerðir voru skömmu eftir stríð. Á vettvangi sagn- fræðinnar í Þýskalandi skipuðu þeir sér sem kenndu sig við formgerðarhyggju eða ætlun- arhyggju aftur á móti á sinn hvorn pólinn. Þá greindi einna helst á um hvort Hitler hafi frá upphafi haft yfir að ráða áætlun um sérhvert stig ofsóknanna, eða hvort eitt hafi leitt af öðru og samspil stofnana, hag- og samfélags- kerfis hafi komið því til leiðar að ofsóknirnar ágerðust stig af stigi. Þeir sem fylltu hóp formgerðasinna héldu á lofti þessum síðar- nefndu kenningum um ófyrirsjáanlegar verk- anir í flóknu samfélags- og hagkerfi, en þeir töldu þó flestir að Hitler hal'i verið forsprakk- inn, og þá einhvers konar „primus motor“ sem kom öllu af stað. Ætlunarsinnar urðu hins vegar varir við markmiðsbundna pólitík nasista og skipulag þeirra yfirgripsmiklu og ömurlegu ofsókna sem blöstu við í lok seinni heimsstyrjaldarinnar. I hvorugu tilfellinu var fært í tal hvort alþýða manna í Þýskalandi hafi verið ábyrg með einhverjum hætti. Eftir að þessar tvær stefnur höfðu runnið sitt skeið, varð nálgunin mun flóknari og í sömu andrá siðferðilega erfiðari viðfangs. Það einkenndi orðræðuna hverju sinni að ávalll voru til stað- ar reglur um hvað væri til umræðu og hvað ekki. Smám saman voru sífellt fleiri hlutir færðir í tal, eða gerðir sýnilegir á vettvangi umræðunnar. í sömu andrá var Þjóðverjum gert að breyta minningunni og bæta á sig sektarbyrði eftir því sem fleiri harmleikir voru dregnir fram í sviðsljósið. Að leysa fortíðarhnúta I verki sínu, Dcis Rcitsel der Vergcmgenheit, í þýskri þýðingu, setur heimspekingurinn Paul Ricoeur fram kenningar um hvernig greiða megi úr flækjum sem skapast af óleystum for- tíðarvandamálum samfélaga. Hann telur for- tíðarvanda oft skapast og valda sárindum þegar hlutaðeigendur hafa átt óhægt með að kljást við afleiðingar hans á sínum tíma. Sárs- aukinn var of mikill, skaðinn of stór og sekt- artilfinningin þrúgandi. Það fellur því oftast nær í hlut seinni tíma kynslóða að leysa úr slíkum fortíðarhnútum. Þegar þá er komið sögu eru þeir orðnir margfaldir og koma oft- ar en ekki fyrir sjónir sem óleysanlegir. Ricoeur telur úrvinnslu samfélagsvitundar- innar þurfa að fara fram með hliðsjón af sögulegum staðreyndum og í samræmi við það þarf hin óhjákvæmilega gleymska að fara fram með gagnrýnum og virkurn hætli.16 Ricoeur tekur mið af mikilvægi gleymsk- unnar fyrir eflirkontendur svo þeir geti notið óhefts sköpunarkrafts við mótun sinnar sér- tæku menningarvitundar, en gerir jafnframt ráð fyrir að slík vitund sé óhjákvæmilegur hluti af fortíðinni og gleymskan geti verið vítaverð og mismunað einhverjum þeim hóp- um sem eiga hlutdeild í viðkomandi fortíðar- vandamáli. Þeir samfélagshópar sem hafa þolað mismunun af þessu tagi geta skiljanlega brugðist við með öfgafullri kröfu um að þvert á móti verði að varðveita öll spor og að sjálfs- nrynd komandi kynslóða standi og falli á for- sendum þess.17 Að sjálfsmynd slíkra hópa hefur þegar verið vegið og því ekki að undra að gildi minnisins hljóti öfgakennt vægi í huga þeirra eða talsmanna þeirra. í umræðum sem spunnust af þessari kenn- ingu Ricoeurs, í heimspekinámskeiði sem ég sótti við Technische Universitát í Berlín, kom fram að óánægja seinni tíma kynslóða fælist einkum í því að þeir álitu fortíðarúrvinnsluna þegar vera vel á veg komna. Þær væru í fram- haldi af því í stakk búnar til að velta fyrir sér og endurskoða merkingu atburðanna, sem fram til þessa hefur ekki mátt vekja máls á. Með aukinni fjarlægð í tíma hefur andrúms- loft hlutleysis færst yfir umræðuvettvanginn og ætti að gera mögulegt að minnast atburð- anna í sinni óþægilegustu rnynd. Eldri sagn- fræðingar á sviði rannsókna á nasistatímabil- inu, sem fylgst hafa með þeim óteljandi við- horfsbreytingum sem átt hafa sér stað í um- ræðunni undanfarna áratugi, telja margir hverjir að annars konar sögusýn á atburðina sé að fæðast. Slíkar væntingar er m.a. að finna í máli Ulrichs Herberts. Herbert telur breytinguna felast í því að menn hafi snúið sér að nákvæmum rannsókn- um á samfélagslegum kringumstæðum fjölda- morðanna. Hann telur að lítið hafi verið rannsakað hvernig ofsóknirnar komu sam- 64
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.