Vera - 01.04.2002, Page 8
Mynd: Þórdís Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir
1111
I
Freydís Kristófersdóttir er 17 ára stelpa úr
Mosfellsbæ sem stundar nám á félagsfræöi-
braut við Menntaskólann í Hamrahlíö. Þrátt
fyrir ungan aldur á hún dágóðan listferil aö
baki. 12 ára gömul lék Freydís eitt aöalhlut-
verkiö í kvikmyndinni Stikkfrí, ári seinna tók
hún þátt í uppfærslu á leikritinu Pétur Pan, 15
ára lék hún í kvikmyndinni Ikingut og í fyrra-
sumar lék hún í stuttmyndinni Feröin sem
veröur væntanlega frumsýnd í sumar.
Freydís er líka rappari og ekki hægt að segja annað en að
söngferill hennar hafi byrjað meö eindæmum vel. Hún vann
Rímnaflæðikeppni SAMFÉS árið 2001 og er fyrsta stelpan
til að hljóta þann heiður. Rímnaflæöi er árleg keppni fé-
lagsmiðstöðvanna sem ber vott um mikla grósku í rapp-
heiminum, en I nóvember á siðasta ári kváöust 18 ung-
menni á I yfirfullu húsi Miðbergs. Þann 4. apríl síðastliðinn
flutti hún svo sigurlagið á útgáfutónleikum XXX
Rottweilerhunda á Gauki á Stöng og vakti sá flutningur
mikinn fögnuð áheyrenda. í framhaldi af því var henni svo
boðið að troða upp á tónleikum Hins hússins sem verða
væntanlega fyrstu vikuna í maí.
Þrátt fyrir glæstan feril I kvikmyndum, leikhúsi og á
tónleikasviði og þrátt fyrir að hafa verið fyrsta konan til að
vinna Rímnaflæði, þá hefur farið afar lítið fyrir Freydísi í
fjölmiðlum. Ákvað VERA því að fara á stúfana til að reyna
að komast að því hvaða konu Freydís hefur að geyma.
Orðin flæddu á blaðið
„Upphaflega ætluðum ég og vinkona mín að taka þátt, bara
til aö taka þátt, en svo settist ég niður og byrjaöi að semja
textann og þá er eins og það hafi opnast fyrir eitthvert til-
finningaflóð og orðin flæddu á blaöið. Ég held ég hafi
skrifað þrjár blaðsíður án þess að stoppa," segir Freydís
brosandi. Hún bætir reyndar við að vinkona hennar hafi
ekki átt jafn auðvelt með að semja. Þegar á hólminn var
komið dró hún sig til baka svo Freydís stóð ein eftir. Hún lét
það þó ekki draga úr sér kjarkinn heldur kom, sá og sigraði
keppnina með glæsibrag.
Texti sigurlagsins er í raun tvíþættur. Fyrri hlutinn fjall-
ar um fyrrverandi kærasta Freydísar, sambandsslit þeirra og
hvernig hún hafi verið sterkari aðilinn. í síðari hlutanum
talar hún um hvernig heimurinn er orðinn, um spillingu og
þess háttar. „Ég fór frekar illa út úr þessu sambandi og var
greinilega ekki alveg búin að vinna úr tilfinningum mínum
þegar ég byrjaði að semja textann." Hún segir að þaö hafi
hjálpað sér mikið að koma hugsunum sínum á blað og í
rauninni hafi það verið nauðsynleg útrás fyrir innbyrgðar
tilfinningar.
stóla á
segir Freydís
rappari
Sjálf segist Freydís vera alveg jafn gáttuð og VERA á því
hversu litla umfjöllun hún fékk I fjölmiðlum eftir keppnina.
Hún var einungis fengin I eitt útvarpsviðtal sem var fyrir
neðan allar hellur. Ekki nóg með að þáttarstjórnandinn vildi
fá aö ráða því hvaða skoðanir hún hefði, heldur bað hann
Freydísi um að segja I beinni útsendingu að sér fyndist Bent
í XXX Rottweilerhundum sætastur, svo hann gæti sagt ein-
hvern ömurlegan aulabrandara á móti. „Ég tók það auðvit-
að ekki I mál, ég átti kærasta og fannst þetta með eindæm-
um hallærisleg beiðni.”
Freydís getur ekki neitað því að I henni leynist svolítill
femínisti. Karlremba fer mjög I taugarnar á henni og sér-
staklega allt tal um að karlar hljóti nú að vera æðra kynið
af því að þeir séu sterkari. í 10. bekk, þegar umræða af
þessu tagi stóð sem hæst, var henni nóg boðið. Hún tók á
það ráð að fara að lyfta lóðum á hverjum degi þar til hún
réði við flesta strákana. „Þegar ég set mér takmark, þá vinn
ég að því þangað til mér tekst það sem ég ætla mér - hvað
sem það kostar." Strákarnir létu af þessum karlrembustæl-
um og hún segir líka að þeir sem þekki hana viti mætavel
að þaö þýðir ekkert að vera með slíka stæla I kringum hana.
Ekki meta sjálfa sig út frá því hvaö
öörum finnst
I menntaskóla segist Freydís hafa fallið I þá gryfju að meta
sjálfa sig út frá augum hins kynsins. „Á böllum fór ég að
velta því fyrir mér hvort það væri eitthvað að mér ef engir
strákar reyndu við mig. Það er hættulegt og bandvitlaust
að hugsa svona". Hún var þó fljót að sjá að sér og nú kann
hún að meta sjálfa sig að verðleikum óháð þvi hvað ein-
hverjum strákaræflum kann að finnast. Henni þykir sorg-
legt að vita til þess að það eru örugglega margar stelpur
sem meta sjálfar sig út frá því hvað öðrum finnst og eru sí-
fellt að reyna að uppfylla einhverja bjánalega fegurðar-
staðla I stað þess að vera bara þær sjálfar og vera ánægðar
þannig.
Freydís er ekki búin að ákveða hvort hún ætli að leggja
tónlistina fyrir sig. „Það kemur vel til greina. Allavega er ég
opin fyrir öllu og reyni að semja þegar ég hef tima." Þrátt
fyrir að vera rappsöngkona segist Freydís hlusta lítið á rapp
sjálf. Það er þá helst að hún hlusti á bandarísku rappsöng-
konuna Lil' Kim en hún er samt komin með leið á aö hlusta
alltaf á hana syngja um það hvað hún sé harður nagli. Ann-
ars er tónlistarsmekkur Freydísar frekar I eldri kantinum en
hún heldur mikiö upp á tónlist frá 6. og 7. áratugnum. Að-
spurð kveðst hún ekki eiga sér neinar fyrirmyndir, en hún
hafi lært að það eigi að taka öllum fyrirmyndum með fyr-
irvara til þess að verða ekki fyrir vonbrigðum. „Það er best
að stóla bara á sjálfa sig."
Freydís er greinilega ung kona með bein I nefinu sem
lætur ekki vaða yfir sig á skítugum skónum. VERA hlakkar
til að sjá hana láta að sér kveða á komandi árum.