Vera - 01.04.2002, Síða 15

Vera - 01.04.2002, Síða 15
 I karlkyns vaxtarræktartröllum og þeir myndu ákveða aö nauðga þér? Hvað gætir þú gert þegar líkamleg- ur vanmáttur væri algjör?" Þeir skilja það betur en ef þeir reyna að ímynda sér að kona réðist á þá í húsasundi." Körlum líöur ekki vel á nektarbúllum Finnst þér vera jafnrétti á íslandi? „Auðvitað er ekki jafnrétti meðan konur hafa ekki sömu möguleika til starfa og karlmenn og fá ekki sömu laun fyrir sömu vinnu. En ég vil benda á að í jafnréttismálum þá hallar ekki alltaf á konurnar. Það erum líka við karlarnir sem erum í hálfgerðri kreppu. Ég hef stúderað þetta mikið á vinnustööum þar sem ég hef verið og ég hef komist að því að karlar eru bæði skíthræddir og alveg ofsalega óánægðir. Ég vann á dæmigerðum karlavinnustað fyrir nokkru og þar voru umræðuefnin píkur og brjóst og snjósleðar og jeppar allan liðlangan daginn. Það var unnið frá átta á morgnana til ellefu tólf á kvöldin, en þess á milli reyndu þeir að komast á snjósleðana sína eða á barinn. Fjölskyldan sat á hakanum og allir voru óá- nægðir, en enginn tók samt af skarið og sagði: „Svona vil ég ekki hafa líf mitt." Það skortir svo mikið á það að karlar taki mark á sjálfum sér og tilfinningum sín- um og segi: „Svona vil ég hafa líf mitt og svona ætla ég aö hafa líf mitt." Karlar lúffa fyrir öörum körlum og spila hver annan upp í einhverja vitleysu sem fáir hafa raunverulega gaman að. Til dæmis að fara á nektarbúllur saman? „Já, nektarbúllurnar eru ágætt dæmi um það. Ég held að mörgum körlum líði ekki vel inni á slíkum stöðum, en þeir halda að þetta snúist karlmennskan um. Þeir hugsa ekki svo langt að þeir eru ekki einung- is að sýna konunum lítilsvirðingu með því að lita á þær sem kjötstykki á sviði, heldur eru þeir einnig að sýna sjálfum sér litilsvirðingu og grafa þannig undan eigin sjálfsvirðingu og sjálfsmynd með því að sýna þann ótrúlega aulahátt að geta ekki hugsað með höfðinu, bara tillanum." Eru karlar þá í kreppu? „Já, heimurinn er í kreppu og karlar eru þar engin undantekning," segir Halldór og kímir. „En það er rétt að karlar hafa ekki fylgt með í jafnréttisbaráttunni og þeir vita margir ekkert um hvað hún snýst. Þeir fá hroll og fara allir i vörn þegar þeir heyra um Rauð- sokkahreyfinguna eða femínistana, en gera sér ekki grein fyrir því að fyrst þarf uppreisnin að eiga sér stað, en síðan þroskast baráttan og fullorðnast, báðum kynjum til heilla. Ég held að jafnrétti sé okkur innst inni eiginlegt og einskonar náttúrulögmál. Heimurinn getur ekki virkaö öðruvísi. Ég held þó að það sé hug- arfarsbreyting í gangi hjá fullt af fólki í samfélaginu. Eins og svo margt annað, tekur hún bara allt of, allt of langan tíma," segir hinn óþolinmóöi Halldór K. Lár- usson aö lokum. Aldrei hámarksrefsing Við ræðum um hvers vegna svo fáir dómar falla i nauðgunarmálum hér á landi og hvað sé til ráða. Sönnunarbyrðin er öll á fórnarlambinu í slíkum mál- um, en oftast bara tveir til frásagnar. Orðin „nauðg- un" og „vitni" útiloka oftast hvort annað vegna þess að konum er ekki nauðgað eða þær misnotaðar þeg- ar vitni eru að glæpnum. Við erum sammála um að þessi mál séu svo erfið einmitt vegna þess hve sönn- unarbyrðin er sterk. „Dómskerfið er gamalt og þungt batterí sem erfitt er að hagga," segir Halldór. „Það þarf að breytast innan frá og ég er svo bjartsýnn að ég held að það sé að gerast, þó að það gerist mjög hægt. Það kom mér mikið á óvart þegar ég fékk vit- neskju um það hjá starfsmanni hæstaréttar að há- marksrefsing fyrir kynferðisofbeldi á íslandi er 16 ára fangelsi, sama refsing og fyrir manndráp. Mér finnst það réttlát refsing vegna þess að stundum eru fórnarlömbin lifandi dauð eftir atburðinn. Þau læra ef til vill að lifa með honum, en sjálfsmynd þeirra er brotin. Sjálfsfyrirlitningin og skömmin verður að ráðandi þætti i persónuleika þeirra og það kostar gríðarlegt átak fyrir þau að vinna sig út úr þessum erfiðu tilfinningum. Hámarksrefsingu hefur þó aldrei verið beitt og ekki einu sinni helmingi hennar. Ógeðfelldasta nauðgunarmál síðustu áratuga, hið svokallaða Helgafellsmál, hefði tildæmis vel getað verið prófmál í þessu sambandi, en ekki var sá glæpa- maður dæmdur í nema fjögurra og hálfs árs fangelsi. Þetta er líka þversögn. Það þarf að vera til hefð fyrir þungum refsingum, en sú hefð skapast aldrei vegna þess að hefðin er ekki til staðar!" 15

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.