Vera - 01.04.2002, Page 19
talið eðlilegt að stelpa upplifði ekki ánægjulegt kynlíf
fyrstu skiptin en þegar lengra liði myndi það fara batn-
andi. Þessi mismunandi reynsla kynjanna hafði mikil á-
hrif á það hvenær kynin fóru að stunda kynlíf á ný.
Flestir strákarnir sögðust ekki hafa getað beðið eftir
því að gera það aftur því þetta væri gott og skemmti-
legt. Fljá stelpunum leið hins vegar þó nokkur tími, allt
frá nokkrum mánuðum uppí ár, þar til þær höfðu kyn-
mök á ný. Stelpur lýstu því að eftir því sem þær urðu
reyndari kynferðislega, lærðu þær að njóta kynlífs og
það varð mikilvægur þáttur af lífi þeirra.
Kynhegöun ekki byggö á
jafnréttisgrundvelli
íslensk unglingamenning virðist leggja mikla áherslu á
mikilvægi þess að strákum og stelpum sé gefinn kost-
ur á að velja þegar kemur að kynlífi og kynhegðun.
Hins vegar er þetta val ekki á jafnréttisgrundvelli með-
al kynjanna. Því er enn viðhaldið að strákar séu „the
man", eins og einn unglingurinn komst svo skemmti-
lega að orði, ef þeir sofa mikið hjá. Stelpum er hins
vegar ennþá gert „að halda línunni'' og passa „að
hleypa ekki hverjum sem er uppá sig", eins og einn
hafði á orði.
Á undanförnum árum hefur þetta tvöfalda siðferði
verið gagnrýnt af báðum kynjum og það tíðkast jafn-
framt að strákar séu fordæmdir fyrir sína frjálslegu
kynhegðun eins og stelpur. Hins vegar er þessi gagn-
rýni á kynhegðun stráka oft á yfirborðinu og hefur lít-
il sem engin áhrif á sjálfsmynd þeirra né hegðun.
Stelpur á hinn bóginn verða stöðugt fyrir því að vera
útskúfaðar vegna hátternis síns. í íslenskri unglinga-
menningu er kynjunum jafnan gefinn kostur á því að
ákveða hvenær þau byrji að stunda kynlíf en ekki með
hve mörgum. Kynhegðun íslenskra unglinga er langt
frá því að vera byggð á jafnréttisgrundvelli.
Aö mínu mati er þaö útgangspunktur í þessari
umræöu aö krefjast þess að bæöi strákum og
stelpum sé gefinn kostur á aö taka þátt í heil-
brigðu kynlífi þar sem ánægja, unaöur, jafnrétti
og val er haft aö leiðarljósi.
Umræða og aukin fræösla nauðsynleg
Sú umræða sem hefur átt sér stað um kynhegðun ung-
linga, og þá sérstaklega breytta kynhegðun unglings-
stelpna, gefur til kynna að enn er langt í land hvað
varðar jafnrétti. Stelpum er ekki ennþá gefinn kostur á
að velja hvað varðar þeirra kynlíf. Því er ennþá stjórn-
að af kröfum samfélagsins og af jafnöldrum þeirra. Að
mínu mati er það útgangspunktur i þessari umræðu að
krefjast þess að bæði strákum og stelpum sé gefinn
kostur á að taka þátt í heilbrigðu kynlífi þar sem
ánægja, unaður, jafnrétti og val er haft að leiðarljósi.
Til þess að tryggja heilbrigðan lífsstíll íslenskra ung-
linga verðum við að viðurkenna að unglingar stunda
kynlíf og þau munu halda því áfram hvort sem okkur
likar það betur eða ver. Á meðan við teljum hina „yf-
irþyrmandi kynlífsvæðingu" vera ástæðu fyrir óheil-
brigðu hegðunarmynstri íslenskra unglinga mun okkur
ekki verða mikið ágengt. Það er nauðsynlegt að tryggja
bæði strákum og stelpum möguleika til að njóta kyn-
lífs. Með skynsamlegri umræðu og samskiptum þar
sem orð eins og virðing, traust og ánægja eru lögð til
grundvallar og með aukinni fræðslu munum við
tryggja unglingum heilbrigt kynlíf.
Höfundur lauk nýlega mastersprófi I kynja- og kynlifs-
frœðum (Gender and Sexuality) og vinnur nú með
unglingum á vegum ITR.
Ranger handklæði
12 litir, 4 stærðir
Framleidd á Ítalíu úr
amerískri bómull.
Frábærir eiginleikar og
góð ending..
Skólavörðustíg 21 • Sími: 551 4050 • Reykjavík