Vera - 01.04.2002, Síða 37

Vera - 01.04.2002, Síða 37
A „flandri" í útlöndum: Aö storka mæðrahyggjunni Ég þakka femínisma og mannfræði- námi mínu það að ég gat blásið á dóm götunnar þegar beinar og óbeinar ásakanir herjuðu á mér. Ég gerðist nefnilega svo djörf að „rjúka" í fram- haldsnám til New York fyrir nokkrum misserum og yfirgefa barnið mitt sem varð eftir hjá föður sínum á íslandi. Það var í raun áhugavert að fylgjast með umræðunni um ákvörðun mína og ekki síst því orðavali sem fólk kaus að nota til að lýsa vanþóknun sinni á ákvörðun minni. Hjá sumum var það engu líkara en ég væri að fara í tómri óráðsiu til útlanda og barnið yrði skilið eftir eitt og yfirgefið útí móa. Allaveg- ana gaf orðaval fólks það í skyn þar sem sagt var að ég væri að „rjúka" til New York og „skilja" barnið eftir. Ég lét gagnrýnisraddir á hendur mér sem vind um eyru þjóta þar sem ég vissi að uppspretta þessara radda byggðist á mæðrahyggju sem í stuttu og einföldu máli felur i sér að mæður einar séu líf- fræðilega hæfar til þess að sjá um börnin sín og að aðeins óeðlilegar mæður geti yfirgefið þau. Mæörahyggja eða fjölskylduhyggja? Ég fór sumsé til Ameríku I tveggja ára mastersnám. Fyrir hafði ég eignast yndislegan einstakling sem þá var fimm ára og deildum við foreldrarnir forræðinu og umgengninni. Barnið bjó nú hjá föður sínum og almannarómur tuðaði og röflaði um að ég hefði skilið barnið eftir, hjá föðurnum. Af slíkum ummælum mætti álykta að feður eigi annaðhvort að vera stikkfrí frá ábyrgð uppeldis barna sinna eða að feður séu svo umkomu- og bjargarlausir að þeim, sem og börnunum þeirra, sé vorkunn að þurfa að búa saman. Hvortveggja er að rninu mati niðrandi fyrir feðurna og segir meðvituðu fólki að mæðrahyggj- an er enn mjög sterk í hugmyndafræði almennings á íslandi. A meðan margir íslendingar fussuðu og sveiuðu yfir ábyrgðarleysi mínu og ónáttúrulegri hegðun, þá vöktu viðbrögð New York búa athygli mína. Eins og flestir vita eru íbúar New York borgar af öllum þjóðernum og til- heyra mismunandi trúarhópum og endurspeglaði vinahópur minn þessa fjölbreytni. Ég átti því von á öllu mögulegu en sökum minna eigin for- dóma gagnvart útsölufeministum, þ.e. konur og karlar sem segjast ekki vera feministar en eru það, og öfugt, var ég með öllu óviðbúin þeim viðbrögðum sem komu. Langflestum sem ég kynnt- ist brá mjög við þær fregnir að ég ætti barn þar sem ég var enn í námi. í Bandaríkjunum er víst mjög erfitt að gera hvortveggja og flestir reyna að mennta sig fyrst og eiga svo börn. Næsta spurning var undantekninga- laust hvort barnið hefði komið með mér til New York og þegar þeirri spurn- ingu var svarað neitandi var aftur und- antekningalaust spurt hvort barnið væri hjá foreldrum mínum. Þar sem ég var ekki gift ályktuðu vinir minir og kennarar að faðirinn væri einnig stikk- frír eða óhæfur sem foreldri vegna kynferðis síns en í megindráttum fannst fólki í New York það vera mjög áhugavert að ég skyldi fara í nám og ég var eindregið hvött áfram. Var þarna fjölskylduhyggja á ferðinni? Ég var satt að segja mjög undrandi á þess- um mun milli íslendinga og annarra jarðarbúa. Annars vegar var ég vond og ábyrgðarlaus en hins vegar ákveðin og framtakssöm að fara í nám til að tryggja framtíö mína og að sjálfsögðu barnsins. Hvaö er aö móðurinni? Að loknu námi mínu áttu aðdáendur mæörahyggjunnar mjög erfitt tímabil þar sem hin hirðulausa móðir hélt áfram að leika lausum hala. Faðirinn hafði flutt út á land með barnið og það var nú komið á skólaaldur. Móðirin fluttist aftur á móti til Reykjavíkur og bjó nú hjá foreldrum sínum, barnslaus. Mörgum fannst að það væri skýlaus Annars vegar var ég vond og ábyrgðarlaus en hins vegar ákveöin og framtakssöm að fara í nám til aö tryggja framtíð mína og að sjálfsögðu barnsins. réttur minn eða barnsins að flytjast til mín frá föðurnum sem hafði hugsað um það I eitt og hálft ár án mikilla af- skipta móðurinnar. Forsendur krafn- anna voru heldur fljótandi og erfitt að skilgreina þær. Sumum fannst greini- lega óþægilegt að barnið skyldi ekki tafarlaust flytjast til móður sinnar en aðrir litu svo á að faðirinn hlyti að hafa verið í barnfóstruhlutverki þennan tima og nú væri sumarleyfistiminn runninn upp. Þessar óbeinu kröfur vöktu mig til umhugsunar um hvern væri verið að hugsa um er kæmi að slíkum málum. Fólk almennt virtist rugla saman umgengnisrétti og for- ræðisfyrirkomulagi, svo ekki sé minnst á að mér alls óskylt fólk hóf að taka það persónulega til sin að ég skyldi ekki gera kröfu um að barnið flyttist til mín. Enn á ný hófust miklar vangaveltur út í bæ um það hvar barnið ætti að vera. Af þeim skoðanaskiptum að dæma virtist svo vera að réttur barns- ins væri enginn og ómarktækur. í öðru sæti hins fljótandi valda- og réttinda- lista sem gefinn var út óbeint og óopinberlega, sat hin þögli faðir sem samkvæmt þessu átti ekki beint tilkall til barnsins nema að lagalegu leyti. Siðferðislega og samfélagslega til- heyrði barnið móðurinni sem trónaði efst á listanum. Það að í mínu tilviki voru báðir foreldrar jafnhæfir og báð- um þótti þeim vænt um barnið sitt mörgum mikil ráðgáta. Var hugsanlegt að móðir sem virtist vera i lagi - var ekki með heróínnálina fasta í hand- leggnum og ágætlega menntuð - væri óhæf? Jú, fyrst hún krafðist þess ekki að fá barnið tafarlaust, hlyti eitthvað að vera að. Þessi reynsla hefur kennt mér að fólk er aldrei óháð hvert öðru. Þrátt fyrir að við séum einstaklingar í samfélagi er samfélagið Við og erfitt, ef ekki ómögulegt er að skilja þar að. 37

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.