Vera - 01.04.2002, Page 51
Konur
fót
a konur
Að velja sér föt getur oft vafist fyrir konum. Það þarf
að ganga á rnilli búða og máta og þar geta speglarnir
verið óhemju miskunnarlausir. En ef vinkonurnar eru
með og hjálpa til við fatavalið verður allt miklu
skemmtilegra. Vera leitaði til kvenna sem vinna í
sömu starfsgrein og fékk þær til að velja föt á eina
úr hópnum. Arangurinn má sjá í næstu opnu.
Arkitektarnir Sólveig Berg, Halldóra og Asdís áöur en farið var í
leiðangur til að velja föt á Halldóru.
A
i^^rkitektarnir Sólveig Berg Björnsdóttir og Asdís Agúst-
dóttir, sem vinna á Yrki - arkitekar, Hverfisgötu 76, tóku að
sér að velja föt á arkitektinn Halldóru Vífilsdóttur sem bæði
vinnur sjálfstætt og á Teiknistofunni Óðinstorgi.
„Þær völdu á mig föt sem ég get verið í ef ég þarf að
vera frekar fín í vinnunni, t.d. að mæta á fund þar sem ég er
að kynna verkefni eða semja um verkefni," segir Halldóra.
„Þetta er ekkert ósvipað þeim stíl sem ég hef sjálf, ég klæðist
gjarnan svörtu og hvítu. Fötin er frá GK - konur i Kringlunni
og eru íslensk hönnun úr línu sem nefnist Reykjavík collec-
tion, svartar buxur, þunnur hvítur kjóll og köflóttur frakki.
Eg er líka mjög hrifin af skartgripunum sem eru frá
Guðbjörgu Ingvarsdóttur skartgripahönnuði i Aurum,
Laugavegi 27."
Eva, Auður Kristín og Erla eru íþróttakennarar og vinna því oft i
iþróttafötum. Þær hafa gaman af aö klæða sig upp á þegar heim
kemur.
Iþróttakennararnir Eva Björnsdóttir, sem reyndar vinnur
líka sem flugvirki, og Erla Sigurbjartsdóttir kennari við
Lindaskóla i Kópavogi völdu föt á Auði Kristínu
Ebenezersdóttur sem kennir við Salaskóla í Kópavogi.
„Við sem vinnum í jogginggöllum höfurn gaman af að
gera okkur svolítið fínar eftir vinnu," segir Auður Kristín.
„Þær vita að ég hef gaman af fallegum fötum en er ekki
mikið fyrir að vera í kjól eða pilsi. Af því að sumarið er á
næsta leiti völdu þær sumarleg föt úr Sportmax linunni hjá
Max Mara, Hverfisgötu 6. Þetta eru svona milli-fín föt sem
ég gæti verið í þegar ég fer út á kvöldin, t.d. á krá eða í bíó.
Buxurnar eru hvítar og um mittið völdu þær svart sjal, síðan
er gegnsæ, munstruð mussa sem minnir á hippatímabilið, en
ég tók ekki annað í mál en vera í svötum toppi innanundir.
Skargripirnir frá Aurum eru líka mjög fallegir, úr nýrri línu
frá Guðbjörgu, smiðaöir úr silfurplötum með sérstakri
áferð."