Vera - 01.04.2002, Síða 61

Vera - 01.04.2002, Síða 61
Kynning Reyklausa kaffihúsið hjá Reyni bakara á Dalvegi 4 í Kópavogi er vinsæll viðkomu- staður frá kl. sex á morgnana en það er eina bakaríið á höf- uðborgarsvæðinu sem opnar svo snemma. Fólk sem er svo snemma á ferðinni kann vel að meta það að geta sest inn og fylgst með ilmandi brauð- inu koma úr ofninum og fylla hillurnar. Reynir býður upp á hefðbundnar brauðvörur og dýrindis tertur. Hann segist halda sig á hefðbundnu lín- unni og bakar brauð sem eru á „þýsku línunni". „Það héldu margir að ég væri orðinn vitlaus þegar ég opnaði bakaríið hér á Dalvegi fyrir átta árum en þá var sáralitil byggð komin hér í Smára- hvammslandi. En ég var búinn að spá í skipulagstillögurnar og reiknaði út að ég yrði í alfararleið þegar fram liðu stundir. Og sú hefur orðið raunin, bæði hefur byggðin þanist út og við opnun Smáralindarinnar jókst umferðin enn og það hefur komiö okkur til góða," segir Reynir Þorleifsson bakarameistari. Reynir vann i Bernhöftsbakarii í 11 ár en hafði tekið sér frí frá bakstri um skeið þegar hann opnaði á Dalveginum. „Við fórum rólega af stað hérna en nú er ég búinn að opna útibú í Hamraborginni og það er alltaf nóg að gera." Reynir bakar oft gamaldags kökur sem fólk man eftir úr æsku sinni og seg- ir þær njóta vinsælda. Sama er að segja um Hressó tertuna sem bæði er hægt að kaupa heila og í sneiðum en höfundur hennar, Sigmundur Smári Stefáns- son, vinnur hjá Reyni en hann vann árum saman i Hressingarskálanum í Aust- urstræti. „Marsipanterturnar okkar eru vinsælar I veislum og sama má segja um Konudagstertuna sem er með léttari rjóma en hefðbundnar rjómatertur. Við bökum kökur fyrir sykursjúka og glutenfrí brauö eftir pöntun og bjóðum upp á Speltbrauð sem er það nýjasta á markaðnum. Hveitið í það er malað eins og gert var fyrr á öldum og það þykir hollara," segir Reynir aö lokum. 24 sm 4.480 26 sm 5.390 28 sm 5.780 Irá kr. 1.110 eftir þér aö fá þér Þessa frábæru pönnu Einar Farestveit & Co hf Morgunhanar koma í kaffi Borgarlúm 28 562 2901 og 562 2900 www.ef.is 61

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.