Vera - 01.08.2002, Page 3

Vera - 01.08.2002, Page 3
Frelsi til að selja konur Það er mikið rætt um frelsi nú á dögum, eins og það sé orðið að guðspjalli °g testamenti okkar tíma. Frelsi til að hugsa eingöngu um sig, ffelsi til að ná langt, frelsi til að njóta, frelsi til að kaupa það sem er til sölu. Ef konur eru til sölu nær frelsið líka til þess að kaupa þær. Þar sem er frelsi til að selja konur er ekki talið neitt athugvert við að státa af því að hafa grætt á að selja þær. Ef reynt er að koma í veg fyrir að konur séu seldar er leitað til dómstóla um skaðabætur á þeim forsendum að atvinnufrelsið hafi verið skert og vísað í stjórnarskrána. Frelsisumræðan segir líka að konurnar hafi frelsi til að selja sig. Þær séu frjálsar að því ná sér í peninga á þann hátt eins og hvern annan. Ungar stúlkur sem heyra um frelsið og ríkidæmið á vesturlöndum láta sig dreyma um hlutdeild í því, að koma sér út úr ömurlegum aðstæðum í löndum Austur-Evrópu eftir að þau fengu frelsi. Hingað hafa þær komið í hópum og verið frjálsar að því að sitja í kjöltu manna sem hafa verið frjálsir að því að borga fyrir að fá að vera einir með þeim í litlum klefa, frjálsir að því að eyða heimilispeningunum í drykki og kynferðislegt frelsi þangað til greiðslukortafyrirtækin gerðu athugasemd og settu hámark á úttektina. Og svo kom að því að fleiri vildu setja takmörk. Loksins sáu bæjar- yfirvöld að þau gátu haft áhrif á lögreglusamþykkt í eigin sveitarfélagi og haft skoðanir á því hvers konar frelsi ætti að ríkja þar. Frelsið er ekki náttúrulögmál, því má stýra. Það má hafa skoðanir á því hvar mörkin eru °g setja mörk. Fyrir það eiga bæjaryfirvöld í Reykjavík og á Akureyri hrós skilið og það ættu yfirvöld í Kópavogi og Keflavík að taka sér til fyrirmyndar. Næst kemur að stjórnvöldum að gera upp við sig hvort þeim finnist við hæfi að halda áfram að gefa eigendum nektardansstaða löglegt atvinnuleyfi fyrir stúlkur sem hingað koma til að fletta sig klæðum. Og það verður spennandi að fylgjast með dómsmálinu sem í hönd fer um skaðabætur vegna skerðingar á atvinnufrelsi. Hvaða leið œunu lögspekingar landsins finna til að vernda frelsið til að selja konur? Það verða kannski svipuð rök og notuð eru til að vernda atvinnufrelsi merkjavöruframleiðendanna sem þræla út börnum í verksmiðjum í Asíu, eins og sagt er frá í grein hér í blaðinu um bókina No Logo. Þegar rætt er um hvort hamla eigi frelsi manna til að selja konur er oft sagt að ef það sé ekki leyft opinberlega fari það bara undir yfirborðið og verði enn verra. Það er eins og löggjafinn treysti ekki eigin lögum og trúi ekki að hann hafi áhrif með því að senda skilaboð út f samfélagið með lagasetningu. Eru áhrif frelsisdýrkunarinnar það mikil að kjörnir full- trúar þjóðarinnar telji þau sterkari en allt þeirra basl? Að sjálfsögðu munu þeir sem vilja selja konur reyna að halda áfram að gera það - á meðan einhverjir vilja kaupa. Það er lögmálið um framboð og eftirspurn. En stjórnvöld geta haft skoðanir á því hvort það sé rétt eða rangt og sett reglur í samræmi við það. 0vý+Vztó Reykjavíkurborg og Akureyrarbær fyrir að setja bann við einkadansi á næturklúbbum í lögreglusamþykkt sína og ákvæði um að dansarar eigi að vera uppi á sviði en ekki í fanginu á viðskipta- vinum staðanna. Með þessu er starfsemi íslenskra næturklúbba komin í samræmi við það sem leyft er á næturklúbbum í öðrum löndum. Konur sem framkvæmdastjórar sveitarfélaga en tólf konur tóku við störfum af því tagi eftir kosn- ingarnar í vor. Þrjár eru bæjarstjórar og fjórar sveitarstjórar en fimm konur tóku við stöðu oddvita í fámennari sveitarfélögum þar sem ekki er starfandi framkvæmdastjóri. Til viðbótar þessum tólf halda sex konur starfi sínu sem framkvæmdastjórar sveitar- félaga. Konur eru því framkvæmdastjórar í 18 sveitarfélögum af 105 svo enn er langt í land með að jafnvægi náist. Fjölmennið á Gay Pride sem aldrei hefur verið meira. Hinsegin dagar og gangan um miðbæinn 10. ágúst er gott tækifæri fyrir fólk til að sýna samstöðu með samkynhneigðum. Reyndar var fjölmennið svo mikið að ljóst er að Ingólfstorg er of lítið fyrir uppákomuna. Hvernig væri að vera á Arnarhóli næst? MÍNUS Kópavogur og Keflavík sérstaklega oddvitar sjálfstæðismanna, Gunnar I. Birgisson og Árni Sigfússon, fyrir að vilja ekki setja sams konar bann við einkadansi á nætuklúbbum í þeirra bæjarfélögum og gert hefur verið í Reykjavík og á Akureyri. DV og Séð og heyrt fyrir gagnrýnislaus hetjuviðtöl við klámkónginn Ásgeir Davíðsson, eiganda Maxim's og Gold Finger, þar sem hann lýsir raunalegum uppvexti, skilnuðum og segir frá börnum sem hann á með nokkrum konum um leið og hann státar af því að hafa grætt hundruðir milljóna á því að selja aðgang að smástelpum. Á fólk að fá samúð með honum af því að hann er svo „dæmigerður íslendingur"? 30% kynbundinn launamunur sem enn er staðreynd, samkvéemt viðamikilli könn- un sem Samtök atvinnulífsins gerðu fyrir Jafnréttis- ráð og Nefnd um efnahagsleg völd kvenna. Föst dagvinnulaun karla voru 179.000 krónur í febrúar 2001 en laun kvenna 124.000 krónur eða 70% af launum karla. Könnunin var gerð á almennum vinnumarkaði og fengust upplýsingar frá 16.500 manns.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.