Vera - 01.08.2002, Blaðsíða 49
Hildur Jónsdóttir: Kynin hafa mismunandi áherslur og
forgangsröðun og lýðræðið er ekki fullkomið ef hlutur
kvenna er skarður því þannig endurspeglar það ekki sam-
félagið. Mikilvægt er að bæði kynin komi að ákvörðunar-
töku til að fá víðari sýn á málin.
Svafa Grönfeldt: Konur eru oft gagn-
rýndar fyrir að vinna verkin of mikið sjálf-
ar. Einnig þarf að gera sér grein fyrir eigin
valdi en oft vanmetum við eða ofmetum
eigið vald. Þá er þolinmæði lykilatriði. Þeg-
ar fólk vill hlaupa af stað er gott að geta
stoppað og ákveðið að fara réttu leiðina
þar sem ríkisstjórnir þurfa að reiða sig á stuðning
þingmanna úr öðrum flokkum til að koma málum í
gegn. „Mynstur af því tagi gerir kröfu um annars
konar afstöðu til valdsins og veldur því að fólk sýn-
ir mun þroskaðri hegðun í garð hvers annars. Og í
mínum huga þá væri slíkt mynstur nær hinum kven-
legu eiginleikum en meirihlutavaldið. Það gerir kröf-
ur til meiri tillitsemi, til umburðarlyndis og það
krefst þess að valdhafarnir setji sig í spor annarra. f
slíku mynstri þurfa menn líka að tala meira saman
og það kunna konur. ...Mín kenning er sú að stjórn-
kerfi okkar hafi afskaplega gott af því að tileinka sér
kvenlegri eiginleika en það er þekkt af í dag. Á þann
hátt ætti það möguleika á að ganga í endurnýjun líf-
daganna. Og með slíkri endurfæðingu yrði það betra
kerfi, annaðist hlutverk sitt betur og næði betur hin-
um eiginlega tilgangi sínum.“
Markmiðið er betra samfélag
Dagskrá námsstefnunnar var afar metnaðarfull og hér
hefur einungis verið stiklað á stóru. Meðal annarra
umræðuefna var heilsa kvenna og jafnvægi vinnu og
einkalífs. Konurnar sem sátu námsstefnuna virtust
almennt ánægðar með viðburðinn, kannski ekki síst
að fá tilefni til að koma saman og bera saman bækur
sínar, sjá hvað aðrar konur í atvinnulífinu væru að
hugsa og gera.
Áberandi var hversu
margir fyrirlesarar töldu
nauðsynlegt að staldra við og
rifja upp tilganginn með
kvennabaráttunni. Ingibjörg
Sólrún sagði kjarna jafnrétt-
isbaráttunnar á öllum svið-
um felast í því að vera öðru-
vísi en meta verðleikana að
jöfnu. „Ef við værurn ekki
ólík þá þyrftum við ekki jafnrétt-
isbaráttu, því að inntak hennar er
þessi mismunur sem er á kynjun-
um.“ Þess vegna skipti máli að
konur séu fjölmennar og hvar-
vetna þar sem mikilvæg mál sóu
til lykta leidd og skoðanamyndun
fer fram.
„Fjöldinn skiptir máli. Við
verðum að vera sýnilegar ef við
ætlum að móta samfélagið til jafns
við karlmenn. Við höfum náð ár-
angri," sagði Ingibjörg Sólrún, „en
við búum enn við ákveðna for-
dóma gagnvart konum. Við erum
enn öðruvísi, sem er gott, en við
erum ekki enn metnar að verð-
leikum, sem er vont. Gott og vel,
það þýðir bara að við höfurn enn
verk að vinna. Og ekki bara sem
einstaklingar í eigin þágu heldur
sem hópur í þágu samfélagsins
alls. Markmiðið um að jafna hlut
kvenna og karla er auðvitað sett
fram vegna þess að við trúum því
að hlutur kvenna geti haft og liafi
áhrif á þróun samfélagsins, á inn-
tak stjórnmálanna, á forgangs-
röðun og gildismat. ...Við trúum
því að aukinn hlutur kvenna geri
samfélagið betra, fjölbreyttara og
lýðræðislegra. Þetta er grundvall-
aratriði sem við megurn ekki
missa sjónar afí öllu okkar amstri.
Við ætlum að móta samfélag okk-
ar, við ætlurn að vera gerendur í
eigin lífi og þess vegna
göngum við til leiks."
Kolbrún Halldórsdóttir: Mín kenning er
sú að stjórnkerfi okkar hafi afskaplega gott
af því að tileinka sér kvenlegri eiginleika en
það er þekkt af í dag. Á þann hátt ætti það
möguleika á að ganga í endurnýjun lífdag-
anna. Og með slíkri endurfæðingu yrði það
betra kerfi, annaðist hlutverk sitt betur og
næði betur hinum eiginlega tilgangi sínum.
Hvenær?
Hvar?
Hvað?
Veistu það?
DAGBÓK KONU er bók fyrir allar
konur til að skrá hjá sér minnis-
punkta um heilsu og annað sem
gerist í lífinu, til að auðvelda
upprifjun síðar.
DAGBÓK KONU
•er fyrir konur á öllum aldri
•fylgir konunni gegnum lífið
•fellur ekki úr gildi eins og
venjulegar dagbækur
•er stór og týnist ekki innan um
aðrar bækur
•er aðgengileg og einföld i notkun
og mun þjóna þeim vel sem nota
Þú getur keypt DAGBÓK KONU
með því að hafa samband við
PaSiMa sem sendir út um allt land
og hvert sem er í heiminum.
Endanlegt verð með sendingar-
kostnaði er alltaf kr. 4.450.
P a S i M a
Tölvupóstfang: pasima@vortex.is
Sími 690 1935
DAGBÓK KONU fæst einnig í
mörgum bókabúðum og á Femin.is.