Vera - 01.08.2002, Blaðsíða 9
Hvað er
Falun Gong?
Falun Gong, einnig þekkt sem Faiun Dafa. er
ævaforn aðferð til andlegs þroska og stj'rktar huga og
líkama og var fyrst kynnt opinberlega árið 1992 af
Mr. Li Hongzhi. Æfingakerfið felur í sér finnn mjúk-
ar æfingar sem auðvelt er að læra. Iðkunin miðar að
því að þroska innri gerð eða innra hugar-
ástand manneskjunnar og felur það í sér marga þætti.
m.a. að láta af neikvæðri hegðun, láta sig minna
varða persónuleg áföll eða ávinninga, sleppa tökun-
um af óheilsusamlegum lifnaðarháttum og tileinka
sér grundvallaratriðin: Sannleiksiðkun, samkennd
og umburðarlyndi.
Æfingarnar eru sagðar opna orkurásir líkamans
og stuðla þannig að líkamlegri hreinsun og strykja
orkuflæðið þannig að fólk upplifir innri frið, er end-
urnært og fyllt orku. Fólk sem lagt hefur stund á æf-
ingarnar hefur greint frá afar góðum áhrifum á lík-
ama og huga auk dýpri andlegrar meðvitundar.
Iðkunin er sögð hafa almenn jákvæð áhrif á heilsu.
mýkja skapgerð og auka \nðnám gegn hverskyns
streitu.
Bókin Zhuan Falun (Að snúa hjóli lögmálsins)
eftir Li Hongzhi er mikilvægasta rit um hugmynda-
fræðina. Falun Gong er kynningarrit sem mælt er
með fyrir bvrjendur. Báðar bækurnar er hægt að
sækja endurgjaldslaust á slóðina www.falundafa.org.
baráttunni fyrir Falun Gong.“
Ofsóknir kínverskra stjórnvalda hafa settt mikið
mark á fjölskyldu Jane. Mágkona hennar var dæmd í
tveggja ára þrælkunarvinnu án sýnilegs tilefnis og
hafði það og dauði eiginmanns hennar svo mikil
áhrif á tengdaföður hennar að hann fékk áfall sem
vakti upp sjúkdóm sem hann hafði haft og leiddi
hann til dauða. Dóttir hans fékk ekki að vera við-
stödd jarðarför hans nó heldur að heimsækja níu ára
dóttur sína þegar hún varð veik.
Sparar heilbrigðiskerfinu fé
Lei Wang-Dragin, sem ferðaðist með Jane um Norð-
urlöndin, er læknir og hefur búið í Svíþjóð í ellefu
ár. Hún er gift sænskum manni og eiga þau 10 ára
dóttur. Maður liennar hefur lært kínverska læknis-
fræði og þau reka saman læknastofu í Gautaborg, auk
þess sem Lei kennir Tai chi, Qigong og hugleiðslu.
„Ég kynntist Falun Gong fyrir átta árum á Torgi
hins himneska friðar í Peking og móðir mín kynntist
því sama dag. Ég fór til Kína á hverju ári en mér hef-
ur ekki verið hleypt inn í landið eftir að ofsóknirnar
hófust þar sem ég er á svörtum lista. Móðir mín fær
ekki heldur að heimsækja mig svo við höfum ekki
sést í þrjú og háflt ár. Ég elska Kína og þrái að fá að
sjá móður mína og fjölskyldu. Dóttur mína langar
líka að hitta frændsystkin sín og kynnast þeim en
hún fær það ekki.“
Lei segir að iðkun Falun Gong hafi mjög góð álirif
á lieilsufar og hamingju fólks því það stuðli að lík-
amlegri og andlegri vellíðan. Eftir að móðir hennar,
sem er 67 ára, fór að iðka það hefur hún læknast af
krankleikum eins og bakveiki og of háum blóðþrýst-
ingi og losað sig við öll lyf. Hún segir að rannsóknir
í Kína sýni að iðkun Falun Gong hafi sparað heil-
brigðiskerfinu rnikið fé þar sem fólk fái sjaldnar al-
varlega sjúkdóma eins og krabbamein.
„Það er hins vegar ekki rétt að iðkendur Falun
Gong neiti að taka inn lyf ef þörf er talin á því, eins
og stjórnvöld í Kína hafa sagt fjölmiðlum á vestur-
lönum. Hins vegar kennir iðkun Falun Gong okkur
að bera ábyrgð á eigin heilsu í stað þess að treysta
eingöngu á lyf frá læknum."
Hægt er að fá meiri upplýsingar um Falun Gong
á http://faluninfo.net og www.falundafa.org. Einnig
er hægt að veita hjálp á síðunni www.helpfalun-
gong.net og www.clearharmony.net. A síðunni
www.fofg.org eru upplýsingar um mannréttinda-
samtökin Friends of Falun Gong.
EÞ
9