Vera - 01.08.2002, Blaðsíða 42
vera
aðgang að fundum út um allt en þegar
kemur að því að veita þeim fjármagn
breytist viðhorfið. Að sjálfsögðu er við
konur að sakast líka því algengt er að
þær hafi minna sjálfstraust í þessu
miðað við karlana. Það eru t.d. mikið
færri konur sem ákveða að stofna fyrir-
tæki og eru stórhuga eins og þeir.
Flestar konur stofna lítil fyrritæki og
þeir í fjármálaheiminum sjá konur
bara fyrir sér í litlum einingum og
finnst ekki þess virði að skoða annað.
Eg er þess þó fullviss að þegar kona
kemur með vel rökstudda og góða hug-
mynd, með góðum áætlunum, þá er
hún klárlega skoðuð. En það ríkir bara
ávallt meiri tortryggni í garð kvenna
fremur en í garð karlmanna. Stað-
reyndin er bara sú, allavega ennþá.
Þurfa þær þá að sanna sig meira?
Jú, þær þurfa að gera það enda eig-
um við svo langt í land í viðskiptalíf-
inu. Það er t.d. ekki lengi verið að telja
upp hversu margar konur eru í stjórn-
um fyrirtækja. Eg er í viðskiptafræði
og þar eru fleiri konur en karlar. Hvað
verður um allar þessar konur? Mér
finnst rosalega fáar konur þora að
stofna fyrirtæki og þora að koma sér
áfram. Konur þurfa því að endurskoða
viðhorf sín, hugsa stórt og hugsa hvers
mikils virði þær eru. Það eru svo marg-
ar konur sem vilja ekki vera þekktar
fyrir það að vera brautryðjendur í við-
skiptum en þær verða bara ennþá að
nota það enda þarf öfgar til að breyta
viðhorfum. Og á meðan beðið er eftir
því að það gerist verður að ráða konu frernur en karl
ef tveir einstaklingar, karl og kona, eru jafnhæf. Auð-
vitað er erfiðara um vik að fylgja svona eftir í einka-
fyrirtækjunum en þau verða að taka sig á sjálf og
breyta þessu enda sjást konur ekki í stjórnunarstöð-
um í mörgum af þessu stóru fyrirtækjum. Annað sem
konur þurfa að berjast við er karlamafían innan
vinnu sem utan. Það er erfitt fyrir konu að detta inní
koníaks- og vindlamenningu karlanna og ef til vill
passar hún ekki þar inn í. Vonandi á þó staða kvenna
í viðskiptalífinu eftir að taka stakkaskiptum þegar
karlar taka sér barneignarfrí og verða virkari inni á
heimilunum.
Skilgreinir þú þig sem femínista?
Mér finnst umræða um femínisma oft svo rugl-
ingsleg. A tímabili var ég ekki viss um að ég væri
femínisti, fór í íslenska orðabók og komst að því að
sá sem virðir jafnan rétt karla og kvenna væri
femínisti. Þá var ég nokkuð sannfærð um að ég til-
heyrði þeim hópi. Oft finnst mér eins og ekki sé
leyfilegt að vera femínisti og hafa um leið áhuga á
tísku. Eg er svo mótfallin þessu. Eg er mjög mikill
femínisti og sumir segja að ég sé rauðsokka sem á að
vera mjög neikvætt orð yfir öfga femínista. Samt gæti
Ég veit um fullt af strákum og stelpum
sem eru femínistar en myndu örugglega
ekki skilgreina sig sem slík af því þau
falla ekki í þennan ákveðna skoðanahóp
sem er hvað mest áberandi.
ég staðið fyrir margt
sem margir femínist-
ar fyrirlíta, eins og
það að starfa við
tískuheiminn. Eg
hef áhuga á að skoða
tískutímarit en er
samt sátt við sjálfa
mig eins og ég er og
veit að það er fullt af
konum sem hugsa
þannig. Ef mig lang-
ar ekki til að ganga í
brjóstahaldara þá
geri ág það ekki og
þarf ekki að fara eft-
ir tískublaði sem
segir annað. Það er
mjög gott að hafa
hópa eins og Bríeti
sem láta í sér heyra
en það þarf líka að
heyrast oftar í öðr-
um hópum eða einstaklingum. Ég veit um fullt af
strákum og stelpum sem eru femínistar en myndu
örugglega ekki skilgreina sig sem slík af því þau falla
ekki í þennan ákveðna skoðanahóp sem er hvað mest
áberandi. Það er mjög leiðinlegt enda hljóta allir
femínistar að stefna að sama marki. Mig langar til að
breyta því að aðeins einn ákveðinn hópur geti skil-
greint sig sem „alvöru" femínista og tel að það sé á
skjön við þau markmið sem barist er við að ná. Það
er nauðsynlegt að femínistar séu breiður hópur þar
sem fram fara eðlileg skoðanaskipti. Það sem ég
myndi vilja setja á oddinn í umræðu um jafnréttis-
mál er launamisrétti og tel að eyða ætti meira púðri
í það en t.d gagnrýni á fegurðarsamkeppnir. Að mínu
mati er launamisrétti miklu alvarlegra mál og mér
finnst engin stöðug umræða vera í gangi um það.
Þeirri baráttu finnst mér að femínistar ættu að halda
uppi jafnt og þétt allan ársins hring. Ég held því fram
að hver og ein einasta manneskja sem andmælir ein-
hverju ástandi skipti máli og tel að það
sem ág og þú getum gert breyti svo miklu.
42