Vera - 01.08.2002, Blaðsíða 53
En þrátt fyrir að lágur framleiðslu-
kostnaður náist skilar sparnaðurinn
sér ekki í lægra vöruverði til neytand-
ans né í hærri launum verkafólksins.
Snúið út úr slagorði NIKE Just do it: „Virðið
ekki lög um vinnu barna. Þrælið börnum út
um. Þegar Naomi heimsótti verksmiðjuna stóð yfir
verkfall. Starfsfólkið hafði verið þvingað til að vinna
lengri vinnutíma en vanalega án þess að fá greitt fyr-
ir það. Eftir þriggja daga verkfall var sarnið um að
greiða fyrir yfirvinnuna en í kjölfarið var 101 konu
sagt upp því þær vortu álitnar eiga upptökin að verk-
fallinu.
Naomi talar einnig um heim innan heimsins sem
er ekki á vettvangi alþjóðaviðskiptalífsins og er ekki
sýnilegur nú en er að verða áberandi að hennar mati.
Þar ræður ríkjum tölvurisinn Microsoft - Billinn
Gates. Bill græðir milljónir meðan fólkið í fátæktar-
hverfum þrælahalds þriðja heimsins er blóðmjólkað.
Þar er efnahagslegur ágóði tölvurisans í hámarki
meðan starfsfólk Microsoft dregur fram lífið á lúsar-
launum. Bill Gates þénaði 55 billjónir bandaríkja-
dala árið 2000 á meðan 30% starfsfólks Microsoft er
lausráðið á smánarlaunum. Hnattvæðingin er þannig
undirstaða þrælahalds og kúgunar íbúa þriðja heims-
ins. Það er rétt fullyrðing hjá IBM, tæknin nær yfir
allan heiminn. Þriðji heimurinn fær að handleika
tölvubitana og drifin en getur ekki notað þau. Þetta
er svipað og að kaupa símakort í GSM síma en geta
aldrei keypt sjálfan símann.
í útjaðri Manila á Filipseyjum hitti Naomi 17 ára
gamla stúlku sem vann við að setja saman CS-ROM
drif fyrir IBM. Hún sagði: „Við búum til tölvur hér en
við vitum ekki hvernig þær virka.“
fyrir eigin gróða... Gerið það bara." í staðinn
fyrir vörumerkið NIKE stendur SPITE (illgirni).
Breska sjónvarpið BBC fór nýlega í
verksmiðjur GAP í Kambódíu og
komst að því að þar vinna börn
allt frá 12 ára aldri og höfðu mörg
þeirra ekki séð foreldra sína í sex
nánuði. Börnin bjuggu í rottu-
holum þar sem ekki var rennandi
vatn, unnu yfirvinnu sjö daga
vikunnar og voru beitt sálrænu
ofbeldi. Ef þau neituðu að vinna
yfirvinnu voru þau einnig beitt
likamlegu ofbeldi.
Þegar vörumerkið varð aðalatriði
Það væri barnalegt að halda að vestrænir neytendur
hefðu tapað á kúgun þriðja heimsins síðan á ný-
lendutímanum, segir Naomi. Vestræn ríki hafa dafn-
að á kostnað þriðjaheimsríkja. Það sem er nýtt í
þessu frá gamla nýlendutímanum eru hagsmunirnir
sem virðast vera í þessari andlitslausu vöru sem eng-
in veit hvaðan kemur. Framleiðsluvaran er ómerkt í
þriðja heiminum en öðlast merkingu og gildi á vest-
urlöndum.
I dag hefur framleiðsla á Nike íþróttaskóm verið
rakin til þrælabúða í Vietnam, Barbífötin eru fram-
leidd í þrælabúðum barna á Súmötru og Shell olía er
unnin í menguðum þorpum við óshólma Niger í Ni-
geríu.
I bókinni útskýrir Naomi hvernig framleiðslufyr-
irtækin hafa yfirtekið líf okkar, hvernig framleiðslu-
og iðnfyrirtækin hafa verið að færa starfsemi sína
yfir til þriðjaheimsríkjanna þar sem vinnuaflið er
ódýrt. Þessi breyting fór að eiga sér stað um og upp
úr 1980. Þá urðu vörurnar aukaatriði í framleiðslu-
53