Vera - 01.08.2002, Blaðsíða 32
vera
32
Ungar konur á íslandi í dag þekkja vel kvenhetjur popp-
menningar nútímans, auk þess sem það kemur fyrir að
þær lenda í svipuðum sporum og þær. Til að ræða þessar
popp-konur og póst-femínismann sem þær eru gjarnan
kenndar við, var leitað til Guðrúnar Johnsen, 29 ára
hagfræðings, Oddnýjar Sturludóttur, 26 ára píanó-
kennara, og Selmu Hafliðadóttur, 25 ára laganema.
Hvaöa áhríf teljið þið að poppmenningin, og þá
sérstaklega ,,kvenna-“ þættir/myndir/bækur á
borö viö Ally McBeal, Bridget Jones og Sex and the
City, hafi á hinn almenna borgara?
Guðrún: Ég held að Sex and the City, til dæmis, hafi
frekar áhrif á konur sem eru í samböndum. Þær fá
nostalgíu gagnvart þessi lífi; að vera á lausu, frjálsar
og engum bundnar og allt það...
Oddný: ...að þær séu þá bara öfundsjúkar?
Guðrún: Mér finnst það á mínum vinkonum. Ég er
einhleyp og oftar en einu sinni hef ég fengið þetta
komment; Þú átt svo gott, þú getur lifað þessi lífi sem
þær lifa í Sex and the City! Annars held ég að þætt-
irnir hafi ekki síst áhrif varðandi tískuna. Vinkona
mín var til dæmis að kaupa sér bleikan kjól og var þá
hreinlega að taka það upp eftir Carrie Bradshaw.
Oddný: Ég veit ekki hvort þessir karakterar hafi haft
einhver áhrif á mig... ég öfunda þær ekki af þessu
lífi... en ég vorkenni þeim sarnt ekki.
Selma: Þær eru ekki beint vorkunnarverðar þó að
þær séu stundum í einhverjum krísum, það er meira
bara fyndið.
Oddný: Bridget Jones til dæmis, mér finnst hún frá-
bær týpa. Hún er svo sympatísk, tekur sjðifa sig ekki
hátíðlega, er pínulíiið misheppn-
uð og allt það, en alltaf svo hressi-
leg. En almennt varðandi þessar
týpur í sjónvarpi og bíó; ég held
að þær hafi engin sórstök áhrif á
íslenskar stelpur, kannski meira á
amerískar, óg veit það ekki. En ef þær eru fyrirmynd-
ir þá eru þær ekkert svo slæmar. Þær eru á lausu,
hressar og skemmtilegar, auðvitað eru þær rosalega
blúsaðar stundum, en það er bara fyndið, það er bara
verið að gera grín að því.
Guðriín: Ef um er að ræða einhver áhrif þá held ég
að þau séu bara jákvæð. Þarna er verið að sýna að
það þarf ekki að lifa lífinu á einn veg eingöngu. Það
er ekki eina lífsmynstrið að vera með mann og þrjú
börn og búa í Garðabænum. Þó að það sé ágætt, þá er
fólk ólíkt og því hentar ekki endilega það sama.
Oddný: Eins og í Sex and the City og Bridget Jones,
þær eiga ekki mann og þessa týpísku fjölskyldu, en
þær eiga vini og vinir þeirra eru fjölskyldan þeirra...
Guðrún: ...og það er sórstaklega jákvætt í ljósi þess
að þú velur þér vini en ekki fjölskyldu...
Oddný:...nákvæmlega! Og þannig er þetta þín eigin
kjörfjölskylda sem þú ert búin að raða í kringum þig.
Selma: Ég er sammála, ég held að þessar týpur hafi
engin sérstök áhrif á stelpur á Islandi. Sjálfri finnst
mór svakalega gaman að horfa á Sex and the City. Ég
(og líklega mjög margar konur) finn fyrir mjög mik-
illi samsvörun með Bradshaw og co., það er með því
sem þær eru að tala um. Að því leyti finnst mér
þættirinir mjög raunsæir og það er iíklega ein ástæða
þess að þeir eru svona vinsælir. Þær eru oft að tala
um eitthvað sem þú varst að pæla í í síðustu viku!
Og í þættinum sérðu iíka fyndnar hliðar á málinu.