Vera - 01.08.2002, Blaðsíða 19

Vera - 01.08.2002, Blaðsíða 19
HERFERÐ GEGN VERSLUIU MEÐ KOIUUR Katrín Björg Ríkarðsdóttir, sérfræðingur á Jafnréttisstofu í byrjun árs 2001 skipaði norræna embættismannanefndin um jafnréttismál vinnuhóp til að gera úttekt á stöðu mála varðandi verslun með konur til kynlífsþrælkunar á Norður- löndunum og í Eystrasaltslöndunum. Skipun hópsins var í samræmi við áherslur í norrænni framkvæmdaáætlun um jafnrétti kynjanna fyrir árin 2001-2005 þar sem m.a. er lögð áhersla á vinnu gegn kynbundnu ofbeldi (kvinnofrid). I vinnuhópinn var skipaður einn fulltrúi frá hverju Norðurlandanna og var undirrituð fulltrúi Islands. Snemma varð ljóst að jafnréttisráðherra Svíþjóðar, Margareta Winberg, hafði hug á að láta að sór kveða í mansalsmálum og á óformlegum fundi jafnréttisráð- herra Norðurlandanna og Eystrarsaltslandanna í Vilníus í Litháen 15. júní 2001 var að frumkvæði hennar ákveðið að á árinu 2002 skyldi efnt til upplýs- ingaherferðar sem beint yrði gegn verslun með konur til kynlífsþrælkunar. Dómsmálaráðherrar landanna ákváðu í ágúst sama ár að ganga til liðs við herferð- ina, enda hafði Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráð- herra setið fundinn með jafnréttisráðherrunum í Vilníus og lagt þar fram tillögu um samstarf jafnrétt- is- og dómsmálayfirvalda. Starf hins norræna vinnuhóps var útvíkkað í framhaldinu og í hann bættust fulltrúar jafnréttis- og dómsmálaráðuneyta Eystrarsaltslandanna ásamt full- trúum dómsmálaráðuneyta Norðurlandanna. Fulltrúi dómsmálaráðuneytis Islands er Dís Sigurgeirsdóttir. Verkefni vinnuhópsins er að skipuleggja upplýsinga- herferðina, koma lienni af stað og halda utan um liana. Hún felst í þremur sameiginlegum ráðstefnum auk þess sem hvert land fyrir sig stendur fyrir átaki í samræmi við aðstæður og þarfir. Markmiðið er að auka þekkingu og vitund meðal almennings og hvetja til umræðna um þau vandamál sem tengjast málefn- inu verslun með konur. Lögð er áhersla á góða sam- vinnu við kvennasamtök og frjáls félagasamtök sem oft búa yfir mikilli þekkingu og reynslu á þessu sviði. Verslun með konur hefur verið vaxandi vandamál í Eystrarsaltslöndunum og því er áhersla lögð á að styrkja þau til þess að vinna að herferðum og fá þau til þess fjármagn frá Norrænu ráðherranefndinni. Það er hins vegar á ábyrgð hvers og eins Norðurlandanna að leggja fé til sinna herferða. Mikilvægt að ísland skorist ekki undan Átak Norðurlandanna og Eystrarsaltsland- anna gegn verslun með konur hófst formlega miðvikudaginn 29. maí sl. með ráðstefnu í Tallinn í Eistlandi. Ráðgert er að halda tvær sameiginlegar ráðstefnur til viðbótar í ár, aðra í Vilníus þar sem fyrst og fremst verður fjall- að um vernd og stuðning við fórnarlömb mansals, og hina í Riga þar sem væntanlega verður fjallað um eftirspurnina eftir kynlífsþrælum auk þess sem herferðin verður gerð upp að einhverju leyti. I vor skipuðu félagsmálaráðherra og dómsmála- ráðherra undirbúningshóp sem hefur það hlutverk að skipuleggja átakið hérlendis. í honum sitja full- trúar frá utanríkisráðuneyti, Utlendingaeftirliti, Vinnumálastofnun, ríkislögreglustjóra, sýslumann- inum á Keflavíkurflugvelli, Alþýðusambandi Is- lands, Neyðarmóttökunni á Landspítalanum, Kvennaráðgjöfinni, Rauða krossi Islands, Stígamót- um, Kvennaathvarfinu, Jafnróttisstofu, félagsmála- ráðuneyti og dómsmálaráðuneyti. Verkefnisstjórar átaksins og stjórnendur vinnuhópsins eru Dís Sigur- geirsdóttir lögfræðingur í dómsmálaráðuneytinu og Ásta Sigrún Helgadóttir lögfræðingur í félagsmála- ráðuneytinu. Eins og áður hefur komið fram er það á valdi hvers lands fyrir sig að leggja áherslur í samræmi við aðstæður og þarfir. Á Islandi hefur mansal fyrst og fremst verið tengt svokölluðum nektardansstöðum og innflutningi á konum til starfa þar. Það er því eðlilegt að áherslan hér á landi beinist fyrst og fremst að starfsemi þeirra, stöðu erlendra dansmeyja og not- endum kynlífsþjónustunnar. Þá er vitað að ísland hefur verið notað sem viðkomuland í flutningi kvenna milli Evrópu og Ameríku um Keflavíkurflug- völl og nauðsynlegt er að taka einnig á þeim málum. Áherslur íslenska átaksins eru þó ekki fullmótaðar ónn sem komið er sem helgast af því að ekki er ljóst hversu miklum fjármunum stjórnvöld hyggjast veita til þess. Það mun vonandi ráðast á haustdögum því mikilvægt er að ísland skorist ekki undan þátttöku í svo mikilvægu verkefni sem barátta gegn verslun með konur til kynlífsþrælkunar er. Það er því eðlilegt að áherslan hér á landi beinist fyrst og fremst að starfsemi nektardansstaða, stöðu erlendra dansmeyja og notendum kynlífsþjónustunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.