Vera - 01.08.2002, Blaðsíða 38

Vera - 01.08.2002, Blaðsíða 38
vera EG SKIPTI MALI Þórey Vilhjálmsdóttir hefur m.a. vakið athygli undanfarið vegna herferðar V-dagssamtak- anna fyrir verslunarmannahelgina. Hún situr ekki auðum höndum þessa dagana og kemur að þremur ólíkum verkefnum ásamt því að stunda viðskiptafræðinám við Háskóla íslands. Björg Hjartardóttir hitti þessa afkastamiklu konu að máli og ræddi meðal annars við hana um módelbransann, femínisma og hvernig það er að vera ung kona í dag. Við hefjum samræður okkar á því sem hún er að fást við en eitt viðfangsefna hennar er vinna að markaðs- greiningu á íslenskri fatahönnun. „Ég fékk hugmynd að þessu verkefni eftir að ég var í stefnumótunar- hópi síðasta sumar en í honum var fólk úr við- skiptaráðuneytinu, frá Útflutningsráði, Samtökum iðnaðarins og Nýsköpunarsjóði. í hópnum voru nokkrir aðilar úr þessum bransa og reynt var að móta ákveðna framtíðarsýn. Ég fann að það vantaði mikið að fá samantekt á þessum markaði og í leit að sumarvinnu sá ég þetta tækifæri, bar hugmyndina undir nokkra opinbera aðila sem veittu mér í kjöl- farið styrk til þess að vinna að þessu verkefni. Ég ætla að kynna skýrsluna í haust en ég veit ekki til þess að áður hafi verið reynt að finna veltu á ís- lenskri fatahönnun og hversu stór hluti hún er af fataverslun á Islandi. I þessu felst mikil vinna þar sem ég tek viðtal við alla þá aðila sem starfa við fata- hönnun og svo er ég með fókushóp en 'frá þeim viða ég að mér þekkingu úr greininni. Úr því reyni ég svo að komast að niðurstöðu með tillögu að því hvernig hægt er að byggja upp fatahönnun á íslandi og fá aukna fjárveitingu inn í greinina. I vor var ég svo ráðin framkvæmdastjóri Eddu- vei'ðlaunanna sem verða aflient 10. nóvember. Ég notaði sumarið í vinnu við að fjármagna og leggja línurnar fyrir haustið. Þetta er mjög spennandi og mér finnst gott að ráða mér sjálf og vinna verkefni sem ég stjórna. Það hentar mér mjög vel. I sumar var ég að vinna með V-dagssamtökunum við gerð her- ferðar gegn nauðgunum fyrir verslunarmannahelg- ina. Framkvæmdin á herferðinni var ekki flókin. Allir fjölmiðlar gáfu okkur skilyrðislaust fríar birt- ingar og auglýsingastofan Hvíta húsið vann þetta frítt fyrir okkur. Við unnum í sjálfboðavinnu og náð- um að búa til frábæra herferð sem kostaði ekki neitt af því að allir lögðust á eitt. Herferðin virðist hafa farið vel í fólk og hefur vakið mikið umtal. Sumum fannst hún of áleitin en hún á að vera það og það er gott ef fólk vill tala um 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.