Vera - 01.08.2002, Qupperneq 13

Vera - 01.08.2002, Qupperneq 13
leikhús Ljóti andarunginn Það er í lagi að vera öðruvísi, er boðskapur nýja söngleiksins Honk sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu 21. september. Söngleikurinn er byggður á ævintýri H.C. Andersen um Ljóta andarungann og hefur notið mikilla vinsælda víða um heim. Hann var fyrst settur upp úti á landi í Bretlandi en síðan í breska þjóðleikhúsinu en höfundarnir eru þarlendir og heita Anthony Drewe og George Stiles. Leikstjóri er María Sigurðardóttir og hún og Felix Bergsson, sem leikur Ijóta andarungann, sögðu Veru frá því sem börn á öllum aldri eiga í vændum. HMK! ..Ævintýri H. C. Andersen eru sígild og í þeim er allt sem góð saga þarf að hafa,“ sagði Felix. „Ljóti andarunginn er útilokaður úr hópn- um, sú eina sem heldur tryggð við hann er móðir hans sem sér alltaf eitthvað sérstakt í honum, eins og allar mæður gera. Svo er það kött- urinn sem reynir að draga hann út úr hópnum og ætlar að notfæra sér hann. Úr þessu verður heilmikið ferðalag hjá ljóta andar- unganum og er í raun þroskasaga hans.“ Felix er mjög ánægður með að fá tækifæri til að leika aftur í Borgarleikhúsinu en hann hefur mest unnið á eigin vegum undan- farið. Hann segir frábæran hóp listamanna standa að sýningunni en átta fullorðnir leikarar taka þátt í henni og fjögur börn. Tónlistin er undir stjórn Jóns Ólafssonar, danshöfundur er Ólöf Ingólfsdóttir og búningar og leikmynd eftir Helgu I. Stefánsdóttur. „Mér finnst mikill kostur við þetta leikrit hvað það hefur mikinn húmor og hlýju en jafnframt sterkan undirliggjandi boðskap. Það var kominn tími á þetta verk. Ég hef oft velt því fyrir mér hvernig við komum umræðunni um það að vera öðruvísi á framfæri. Við búum í samfélagi sem er í því að staðla okkur - Top Shop stöðlunin, en í þessu verki er á hreinu að við eigum okkur öll tilveru, hvort sem við erum feit eða mjó, sæt eða ljót, eða öðruvísi á einhvern annan hátt.“ Gott innlegg um einelti María Sigurðardóttir er reyndur leikstjóri og segist ánægð með hvað Borgarleikhúsið hefur fengið marga kvenleikstjóra til starfa í vetur. Hún hefur leikstýrt bæði í leikhúsi og kvikmyndum, leikstýrði m.a. dans- og söngvamyndinni Regínu. Það var einmitt í tengslum við hana sem María heyrði af söngleiknum Honk. „Danshöfundur Regínu, Aletta Collins, sagði að ég yrði að setja Honk upp á íslandi og hún hringdi í höfundinn út af sýningarrétt- inum. Ég bar þetta svo upp við Borgarleikhúsið sem stökk strax á hugmyndina og fékk Gísla Rúnar Jónsson til að þýða verkið. Mér finnst þetta vel heppnuð leikgerð á ævintýri H. C. Andersens, þar sem höfundarnir færa söguna að vissu marki frá dýraríkinu til mannheima, og þó ekki. Þetta verður sýning sem leikur sér þarna á mörkunum og er skemmtileg flétta milli ævintýris og raunveruleika nútímans. Þarna speglast okkar veruleiki og við geturn lært ýmislegt af sögunni um Ljóta, þar sem við fylgjum honum frá því að vera aleinn úti í horni og til þess að verða viðurkenndur og elskaður, og hvað það skiptir miklu rnáli að trúa á sjálfan sig. Sýningin verður uppfull af söng, dansi, meinfyndnum per- sónum og uppákomum en dramatíkin, sem er svo sterk í ævintýrinu, er ekki langt undan. Honk! er mikil áskorun fyrir höfund búninga og leikgerðar og leiðin sem Helga I. Stefánsdóttir fer er afskaplega spennandi. í sýningunni leika flestir leikaranna margar persónur, svo það má búast við að verði handagangur í öskjunni í búningaskiptum milli atriða. Það er einstök upplifun að setja þetta verk á svið og ég hef með mér einvalalið listamanna á öllum sviðum. Stefnan er sett á sterka, skemmtilega upplifun fyrir alla fjöl- skylduna. f■ IbnIwlltfnno
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.