Vera - 01.08.2002, Síða 15

Vera - 01.08.2002, Síða 15
fást upplýsingar um það sem kallast mark- aðslaun og fólk getur haft til viðmiðunar þegar það semur um laun. Launakönnunin sýnir að um 95% félagsmanna VR eru með laun sem eru langt yfir umsömdum töxtum. Meðallaunin eru um helmingi hærri en taxt- arnir segja til um, eða um 200.000 krónur á rnánuði í heildarlaun. Það er helst unga fólk- ið og eldri konur sem fá greitt samkvæmt töxtunum. Taxtarnir eru víða á útleið hér á landi, nema hjá hinu opinbera þar sem er um einn samningsaðila að ræða. I VR eru um 20.000 félagsmenn sem vinna á um 2000 vinnustöðum. Við erum því með það sem kallast dreifstýrt launakerfi, hvort sem okkur líkar það betur eða verr, en oft er sagt að konur komi verr út úr slíku kerfi en karlar. Til að vinna bug á þeim vanda ákváðum við að takast á við vandamálið og óg tel að okkur hafi tekist það nokkuð vel. Við gefum sem só út upplýsingar um markaðslaun og hvetjum konur sórstaklega til að standa fastar á sínu. Launa- könnunin og könnunin Fyrirtæki ársins, þar sem starfsfólk gefur vinnustað sínum einkunn, gera það að verkum að fólk getur komið til viðtalsins meira á jafnréttisgrundvelli. Það hefur í höndunum plögg sem unnin eru eftir viðurkenndum aðferðum og með því verður atvinnurekandinn frekar í þeirri stöðu að þurfa að skýra út af hverju ekki er hægt að gera eins vel í hans fyrirtæki og gert er hjá öðrurn." Enn 24% launamunur kynja Þrátt fýrir alla þessa viðleitni mælist launamunur á milli kynja í launakönnun VR enn 24%. Hvernig skýrir Gunnar Páll það? „Sá munur hefur reyndar lækkað úr 28% á sl. sjö árum svo við þokumst í rótta átt. Skýringin er líklega sú að enn bera konur meiri ábyrgð á barnauppeldi og heimili og vinna því minni yfirvinnu en karlar. Yfir- vinnan skýrir hluta af þessum launamun því ef hún er undanskilin er launamunur á milli kynja 16%. Yfirvinnan skýrir líka þennan 16% mun að hluta því þau sem geta unnið yfirvinnu geta betur markaðssett sig gagnvart kauphækkunum og stöðuhækkunum innan fyrirtækisins. Fleiri karlar í yfirmannsstöðum er líka hluti af skýringunni." VR hefur sett sér jáfnréttisstefnu, bæði fyrir félag- ið og skrifstofuna, og henni er m.a. framfylgt með því að fjalla alltaf um jafnróttismál í VR blaðinu. í nám- skeiðahaldi félagsins hefur einnig verið lögð áhersla á námskeið fyrir konur jrar sem þær eru hvattar til dáða. Má þar nefna námskeiðin Tjáning og tækifæri og Konur til forystu sem hafa verið mjög vel sótt. Konur hafa líka verið í meirihluta á námskeiðum þar sem kennt er hvernig eigi að semja um markaðslaun og jreim gefin góð ráð um það hvernig þær eigi að verðleggja störf sín en oft eru þau minna metin en störf karla, eins og kunnugt er. Um 1000 manns sóttu slík námskeið í fyrra og þar voru konur í meirihluta, eins og almennt á námskeiðum félagsins." Það þarf mikið til að breyta gildum í samfélaginu og þá er mikilvægt að nýsköpun sé í gangi til þess að um- ræðan festist ekki í klisjum. Jafnréttisvísitala Þegar Gunnar Páll er spurður um mótun sína sem jafnróttissinna segir hann að það hafi líklega bara gerst með hans kynslóð en hann er fæddur 1961. Umræðan um stöðu kvenna á áttunda og níunda ára- tugnum hafi ekki farið framhjá neinum og haft áhrif á stráka jafnt sem stelpur. Allar manneskjur áttu að hafa jöfn tækifæri. „Þegar óg var í MH máttum við ekki skrifa ritgerð án jjess að láta þess getið hvernig staða kynjanna væri í því efni sem við vorum að fjalla um. Kennar- arnir voru mjög meðvitaðir og fengu okkur til að hugsa um þessi mál. Þegar ég byrjaði í Háskólanum hafði konum líka fjölgað mjög þar, voru orðnar um 50% nema í viðskiptafræðinni og farnar að vilja hasla sór völl í viðskipta- og atvinnulífinu, eins og hafði verið að gerast annars staðar í þjóðfélaginu. Við strákarnir sáum auðvitað að þær stóðu okkur alveg jafnfætis í náminu, voru reyndar oft miklu klárari en við á bókina. Við lærðum líka að fyrir þeim voru jafnréttismál dauðans alvara, það þýddi ekkert að gantast með þau mál. Ég kem líka frá stóru heimili, kannski hafði það einhver áhrif, en óg held bara að jjetta hafi verið normið og ég hafi mótast af því.“ Að lokum er Gunnar Páll spurður urn starfið í Jafnréttisráði þar sem fjórir karlmenn eiga nú sæti, fleiri en nokkru sinni fyrr. „Það sem háir helst starfi Jafnréttisráðs er að því fylgja litlir fjármunir svo það liefur ekki getað gert marga sýnilega hluti. Ráðið á að vera stjórnvöldum til ráðgjafar og hefur lagt áherslu á þátttöku í rann- sóknum og áróðri og að benda á það sem vel er gert öðrum til eftirbreytni. Við höfum einnig rætt um að hér verði búin til jafnréttisvísitala, eins og gert er t.d. í Noregi. Inni í henni yrðu tölur eins og tekjur, sem fengnar yrðu úr skattframtölum, tölur unr þátttöku kynjanna í stjórnmálum o.fl. Það þarf mikið til að breyta gildum í samfélaginu og þá er mikilvægt að nýsköpun sé í gangi til þess að umræðan festist ekki í klisjum. Þegar við horfum á sýnilega hluti eins og launatölur finnst okkur við þokast áfram en svo getur verið að við séum að fara til baka í öðrurn þáttum sem snerta samskipti kynj- anna. Þar finnst mér hafa verið að þróast hefðbund- in karlrembusjónarmið t.d. gagnvart nektardansstöð- um og í viðliorfi ungs fólks til kynlífs. Jafnréttisráð gæti vissulega lagt sitt af mörkum til að sporna gegn slíkum sjónarmiðum. Við þurfum að lialda áfram að berjast í þessum málurn og velta við steinum til þess að ná jafnrétti á sem flestum sviðum." 15

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.