Vera - 01.08.2002, Qupperneq 25

Vera - 01.08.2002, Qupperneq 25
 f Æfingin reynist hið ótrúlegasta samsafn af leikatriðum um konur. Um konur sem vita ekki hvað þær eiga að halda, þær eru orðnar svo ruglaðar af umræðunni um konur, konur sem lesa Cosmopolitan og konur sem komast að því að mennirnir þeirra halda framhjé þeim. Líka er þarna flugfreyja sem yrkir ljóð um tippi og tus- sur, lesbía sem hefur ákveðið að allt sem kemur fyrir hana sé „pottþétt aþþí hún er lessa“, nektardansmær með metnað, gallharður kvenstjórnandi og margar margar fleiri kventýpur. A köflum hlæ ég svo mikið að ég sé ekki út úr augunum fyrir tárum. Leikkonurnar eru þær Jóhanna Jónas, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Þrúður Villrjálmsdóttir og Arndís Hrönn Egilsdóttir. Ásamt leikstjóra sínum mynda þær leikhópinn Skjallbandalagið og þær sýna Beyglurnar í samstarfi við Tjarnarbakkann Restaurant í Iðnó þar sem boðið verður upp á sérstakan leiklrúsmatseðil fyrir og eftir sýningar. Beyglurnar lrlutu sérstakan styrk frá mennta- málaráðuneytinu. Eftir æfinguna sest ég svo niður með leikstjóra og leikkonum, reyki, drekk kaffi og við spjöllum á léttu nótunum. Ég sem hélt að reykingar væru að detta úr tísku. Hér reykjum við flestar og loftið má skera með hnífi. Þetta er ekki par kvenlegt. Eg nota tækifærið og spyr eina karlmanninn á svæðinu, Úlf Eldjárn senr sér unr tónlistina, hvort lrann geti lrlegið að tali kvenna um eigin kynfæri, tali sem einhvern tíma hefði flokkast senr vúlgert og viðbjóðslegt. „Já, einnritt það finnst mér mjög fyndið," segir Úlfur og er svo farinn. Við konurnar erunr lrinsvegar sammála unr að slíkt tal sé nýstárlegt og nrörgum gæti þótt það fráhrindandi. „Það er ekki langt síðan konur fóru að mega segja „Mér er illt í píkunni, ég held ég sé nreð króníska sveppasýkingu," segir María Reyndal leik- stjóri. „Við erum bara að daðra við þetta senr lrefur kannski ekki verið leyfilegt að tala mikið um og við erunr að velta nrörkununr fyrir okkur.“ Þið skrifið verkið allar saman segiði... „Já, ég hringdi í stelpurnar fyrir ári síðan og við fórunr að lrittast einusinni í viku til að ræða málin. Við erum ungar og graðar leikkonur og viljum nota tímann til þess að vinna og í þessari vinnu komumst við fljótlega að því að sameiginlegt áhugamál okkar er, merkilegt nokk, konur. Þannig að við unnunr nreð það efni og allt sem okkur þótti álrugavert: ævisögur kvenna, skýrslu um vændi á Islandi, dagbækur, minningagreinar... allt senr kveikti í okkur. Við byr- juðunr á því að vera voða dranratískar og heví, en síðan fórunr við að leita leiða til þess að gera grín að öllu saman.“ Beyglurnar segjast hafa byrjað á því að gera spunaleikril um sjálfsstyrkingarmeðferð fyrir konur en þær hurfu fljótlega frá þeirri hugmynd. Þær segja Okkur finnst við vera svo beyglaðar. Það eru svo margar mótsagnir í gangi. Maður á að vera svona og maður á að vera hinsegin. Okkar kynslóð af konum eru svolítið lost í því hvernig þær eiga að vera. að þær Irafi langað að gera „muppet show“ um konur og nýta til þess margt af því sem þær hefðu upplifað sjálfar, allt frá sjálfsstyrkingu til sveppasýkinga. Léttir að geta hlegið að flækjunum í manni „Við erum náttúrlega búnar að tala í heilt ár um konur. Við höfum fylgst með þeim og líka ski- laboðunum í samfélaginu og við höfum upplifað þetta dæmalausa kaos,“ segir Jóhanna Jónas sem einmitt leikur eina ráðvillta og kaótíska persónu í Beyglunum. „Þessi skoðunin og hin skoðunin og allir einhvern veginn hver upp á móti öðrurn. Okkur langar að sýna þetta í nýju ljósi." Akváðuð þið strax að hafa verkið fremur kómískt en dra- matískt? Kvennamál eru svolítið tabú og þau eru viðkvæm, hvort sem það eru konur sem segja hvernig aðrar konur eiga að vera, eða konur að gera grín. Okkur fannst að við ættum meiri möguleika á því að koma á framfæri þeim hlutum sem við vildum segja í gegnum grín. Húmorinn gefur okkur tækifæri til að lrorfa á hlutina utan frá, hann gefur okkur fjarlægð á þessi viðkvæ- mu og erfiðu mál,“ segir Arndís. „Okkur finnst við vera svo beyglaðar," bætir María við. „Það eru svo margar mótsagnir í gangi. Maður á að vera svona og maður á að vera liinsegin. Okkar kynslóð af konum eru svolítið lost í því hvernig þær eiga að vera. En ef við erum komnar á þann stað í kvennabaráttunni að geta gert svakalegt grín að okkur sjálfum, þá held ég að við séum í góðum málum.“ Er það ekki nýja leiðin? Hefur ekki nógu lengi loðað við femínisma að það taki bara þurrpumpule- gar og leiðinlegar kerlingar þátt í honum? „Við erum orðnar nett þreyttar á þessari þungu og erfiðu umræðu," segir Elma Lísa. „Það er ákveðinn léttir að geta hlegið að því hvernig við erum, flækjunum í okkur og öðrum konurn og þessu bulli öllu.“ 25
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.