Vera - 01.08.2002, Side 29

Vera - 01.08.2002, Side 29
Auður Aðalsteinsdóttir Besti leikmaðurinn » Margrét R. Ólafsdóttir, miðherji hjá Breiðabliki, var valin besti leikmaður fyrri umferðar Símadeildarinnar í ár. Hún hefur verið að sparka í bolta frá því að hún man eftir sér. Hún er leikjahæst í kvennalandsliðinu og á aðeins einn leik eftir til að ná 50 landsleikja markinu sem hún von- ast til að ná í haust. Framundan eru spennandi leikir um aukasæti á HM í knattspyrnu og er þetta besti árangur sem íslenska landsliðið hefur náð frá upphafi. í atvinnumennsku í Bandaríkjunum „Ég hef verið að leika mér í fótbolta frá því ég var pínulítil en ég fór að æfa tíu ára þegar mamma ákvað að fara með mig á æfingu. Svo er þetta bara eins og áhugamál sem maður festist í. Sem gef- ur manni greinilega eitthvað," segir Margrét. Hún náði því mark- miði í fyrrasumar að komast í atvinnumannadeildina í Bandaríkj- unum og spilaði þar eitt tímabil með Philadelphia Charge. Hún segir að eiginlega hafi hún sjálf potað sér inn í það lið á síðustu stundu. „Þessi atvinnumannadeild var stofnuð í fyrrasumar en áður var engin kvennadeild þarna úti og þær spiluðu bara landsleiki. Ég var búin að kynna mér deildina aðeins og fannst hún spenn- andi. Ég sendi umsókn en fékk aldrei neitt svar og gekk illa að ná sambandi við einhvern þarna úti. Svo sá ég á Netinu að það var nýbúið að ráða þjálfara hjá Fíladelfíu. Þetta var sami þjálfari sem vildi fá mig til að spila með háskólaliðinu í Hartford í Connect- icut á sínum tíma. Ég skrifaði honum og fékk þá loksins svar. Þetta tók samt allt sinn tíma en í mars á síðasta ári fékk ég loks- ins staðfestingu á því að ég væri að fara út, eftir að vera búin að bíða allan veturinn eftir svari.“ Besti árangurinn hingað til Margrét segir að í raun sé það toppurinn að fá að spila sem at- vinnumaður og gera ekkert annað. „Ég var bara að spila og fékk borgað fyrir það. Við spiluðum þarna fyrir þúsundir manna, við fengum mest 13.000 manns á leik hjá okkur. Þetta var hreint út sagt æðislegt og peningalega séð er þetta eins og að fá mjög góða vinnu,“ segir Margrét um þá reynslu en það voru nokkur við- brigði fyrir hana að koma heim aftur. „Ég er að venjast því þó að ég sé svolítið að detta út úr félagslega séð, enda er ég „gamla kon- an“ í hópnum. En ég reyni bara að miðla af minni reynslu. Lands- liðinu gengur líka mjög vel núna og í haust berjast fjögur lið um aukasæti á HM. Við leikum við Englendinga í september og Dan- ir mæta Frökkum. Þau lið sem vinna spila svo um aukasætið. Við höfum aldrei komist svona langt áður, en hópurinn er mjög sam- stilltur og þjálfarinn eins og einn af okkur. Eftir því sem landsliðinu vegnar betur aukast svo líkurnar á því að komast út aftur, en liðin horfa mjög á ár- angur landsliðanna þegar þau velja sér leikmenn. Ég held að landsliðshóp- urinn hafi aldrei áður verið eins góður og það er alveg meiri- háttar gaman að æfa og spila með þess- um stelpum." Öðlast góða reynslu erlendis Margrét segir að góðan árangur lands- liðsins undanfarið megi ekki síst þakka því að margar stelpur fá styrki til að læra og æfa í háskólum erlendis og þar öðlast þær góða reynslu. „Þær fara allar meira og minna út í dag eftir framhalds- skóla og ég held að það skili miklu. Ég fór ekki út þegar mér var boðið að fara til Hartford. Þá var ég nítján ára og búin með eitt ár hér heirna í Tölvuháskólan- um í kerfisfræði. Þetta var mjög spenn- andi en ég vildi helst klára seinna árið í skólanum hér heirna. Mér fannst líka fótboltinn úti ekki eins góður og hann er núna. En ég myndi fara út í dag.“ Margrét segir að hún geri vissulega lítið annað en að vinna og æfa og það gefist lítið frí. „En það er í raun sorglegt hversu stutt tímabilið er. Við erum að æfa í sex til sjö mánuði fyrir tímabil sem er bara fjórtán leikir og kannski nokkrir bikarleikir. En vonandi breytist þetta núna þegar við erum búin að fá þessar innanhússhallir og einhver mót verða haldin innanhúss. Til að stytta aðeins veturinn." „Ég held að landsliðshópurinn hafi aldrei áður verið eins góður og það er alveg meiriháttar gaman að æfa og spila með þessum stelpum." 29

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.