Vera - 01.08.2002, Qupperneq 30

Vera - 01.08.2002, Qupperneq 30
Ally McBeal Bridget Jones p-)fyrirmyndir póst-)femínismi Carrie Bradshaw Poppmenningin er sterkur Áhrifavaldur í nútímanum (hvort sem fólki líkar betur eða verr...), bæði hvað varðar lífsstíl og hugsunarhátt. Það stafar kannski ekki síst af útbreiðslu poppmenningar en áhrifa hennar gætir ekki eingöngu í því samfélagi sem hún sprettur úr heldur sjást þau um allan hinn vestræna heim og víðar. Þá skal taka með í reikning- inn að poppmenningin endurspeglar raunveruleikann upp að vissu marki og því er ekki alltaf hægt að fullyrða hvort komi á undan; eggið eða hænan. En vangaveltur um þessa gríðarlega útbreiddu menningar- grein og þann heim, persónur og gildismat sem hún birtir, geta að mínu mati verið bæði gagnlegt og áhugavert innlegg í samfélagsumræðuna. 'O ~o Vk c L. :0 ST ns c c < (B c m Femínistar - og þá sérstaklega í Bandaríkjunum, vöggu poppmenningarinnar - hafa gjarnan tekið hin ýmsu form og viðfangsefni poppmenningar til um- fjöllunar. Einn vettvangur þeirrar umræðu er tímarit- ið Bitch - Feminist Response to Pop Culture (www.bitchmagazine.com) sem gefið er út í San Fransisco, auk þess sem poppmenning er æ algeng- ara viðfangsefni kvennafræða í háskólum í Banda- ríkjunum. Þar eru Ally McBeal og Carrie Bradshaw orðnar jafn sjálfsagt umfjöllunarefni í lærðum grein- um og ritgerðum og Simone De Beauvoir og Susan B. Anthony. Viðkvæðið í femínískri umræðu um poppmenn- ingu er gjarnan að poppmenningin sé á köflum ansi and-femínísk. Sú kvenímynd sem birtist í kvenhetj- um poppmenningar dagsins í dag er gjarnan tengd umræðunni um póst-femínisma, hugtak sem kynnt var til sögunnar á seinni hluta tíunda áratugarins. Eg man þegar við vinkonurnar, þá liðlega tví- tugar, hlógum að þessari óljósu skilgrein- ingu á því sem við vissum ekki alveg hvað var, en átti kannski við um okkur og okkar líka, eða hvað? Konur sem trúðu því að þær gætu gert hvað sem þær vildu í lífinu og töldu sig þess fullvissar að það væri satt? Það átti sannarlega við um okkur. Konur sem trúðu því að kvennabaráttunni væri lokið, að gott verk hefði verið unnið en nú væri komið nóg? Það átti reyndar ekki alveg við um okkur. Konur sem væru í raun femínistar en vildu alls ekki kalla sig það og þá einkum af ótta við þá neikvæðu kvenímynd sem tengist hugtakinu, það er ekki alveg nógu sexý að vera femínisti og allt það? Þetta könnuðumst við ekki við... alveg satt. Ally McBeal - tákn endaloka femínismans? Sjónvarpsþættir sem fjalla um nútímakonur sem og pæjubókmenntir (chick-lit) birta kvenímynd sem kennd hefur verið við póst-femínisma. Konu sem þarf ekki á hugmyndum sem kenndar eru við femín- isma að halda en nýtur samt góðs af áralangri baráttu femínista. Póst-femínistinn telur sér trú um að kvennabaráttunni sé lokið og skammast sín ekki fyrir að hugsa meira um varalit og Gucci skóna sem hana langar í en launamisrétti og sjálfsákvörðunarrétt kvenna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.