Vera - 01.08.2002, Page 31
Þegar þættir David E. Kelley um
fræðinginn Ally McBeal hófu göngu sína
árið 1997 slógu þeir strax rækilega í gegn
og Ally varð brátt vinsælasta kven-sjón-
varpspersóna í Bandaríkjunum. Hin
klára en taugaveiklaða Ally, sem nýtur
velgengni í starfi en er með allt í klessu
tilfinningalega - fyrst og frernst af því að henni tekst
ekki að finna þann eina rétta - var af mörgum talin
póst-femínisminn holdi klæddur. í júní árið 1998
var myndum af frumkvöðlum femínismans stillt upp
í tímaröð á forsíðu. tímaritsins Time með mynd af
Ally McBeal á endanum, undir yfirskriftinni - Er
femínisminn dauður? Blaðið fjallaði um póst-femín-
isma sem er skilgreindur þannig að fylgjendur hans
„þurfi“ ekki lengur á femínisma að halda. Konur lifi
og hrærist í „karlaheimi" með ansi
góðum árangri; kvennabaráttunni sé lok-
ið með fullnaðarsigri. Þá fjallar Time um
þá mótsögn sem birtist í þeirri tilteknu
kvenímynd sem kennd er við póst-femín-
isma. Ally McBeal - sem eðli
miðilsins samkvæmt er mjög
sterk fyrirmynd - virðist hafa
allt sem hugurinn girnist, nýtur
velgengni og virðingar í starfi.
En af jrví að hún er einhleyp er
hún í tómu rugli tilfinningalega
og haldin algjörri þráhyggju
þegar kemur að karlmannsleys-
inu. Time nefnir Bridget Jones
Helenar Fielding í sömu andrá
og Ally og hefur áhyggjur af því
að þessar tvær skuli vera
erkitýpur hinnar einhleypu
konu. Bridget sé jafn mikil taugahrúga og Ally en
ofan á áhyggjur Bridgetar af karlmannsleysinu bæt-
ast áhyggjur hennar af aukakílóunum sem séu engu
minna íþyngjandi.
Þegar sjónvarpsstöðin Fox, sem sýnir Ally
McBeal, tilkynnti í vor að þættirnir yrðu teknir af
dagskrá næsta vetur, spannst nokkur umræða um
hvers vegna áhorf að þáttunum hefði minnkað. Voru
vinsældir Sex and the City gjarnan nefndar sem
skýring en þar kveður við nokkuð ólíkan tón hvað
varðar afstöðu til karlmannsleysis. New York Times
birli í vor grein undir fyrirsögninni Þannig fór fyrir
Ally; tíunda-áratugar femínisti segir takk og bless.
Þar er bent á að Ally haíi komið á undan þeirri hol-
skeflu af einhleypum-konum-í-borginni sem birst
hafa í sjónvarpi, kvikmyndum og bókum undanfarið,
og að hún, ásamt Bridget Jones, hafi í raun verið
brautryðjendur í þessari sjónvarps-/kvikmynda-
/bókmenntagrein. Nú sé Ally hins vegar ekki svo
Hin kiára en taugaveiklaða Ally, sem
nýtur velgengni í starfi en er með allt í
klessu tilfinningalega - fyrst og fremst
af því að henni tekst ekki að finna þann
eina rétta - var af mörgum talin póst-
femínisminn holdi klæddur.
einstök og meira að segja nokkuð „til baka“ miðað
við nýrri og „nútímalegri" gellur, og á New York
Times þar einkum við söguhetjur Sex and the City.
„Carry Bradshaw og co. hafa það mikið sjálfstraust
sem kynverur að þær eru oftar en ekki með yfirhönd-
ina í samskiptum sínum við karlmenn," segir í grein-
inni. Auk þess þótti taugaveiklunin, eitt af helstu
karaktereinkennum Allyjar, og hin stöðuga ham-
ingjuleit byggð á upphöfnum og sífellt fleiri og
óraunhæfari kröfum, orðin heldur
þreytandi. „Ally gerði hamingjuna að
ómögulegu takmarki... Carrie Bradshaw
veit allavega hvað góðar trúnaðarvinkonur
og nýir skór geta verið mikill gleðigjafi,"
segir ennfremur í New York
Times.
Sex and the City -
boðberi siðsemi og
hófsemi í kynferðis-
málum?
En Sex and the City hefur
ekki sloppið við gagnrýni og
eitt af því helsta sem gjarnan
er nefnt er sú staðreynd að
hinar einhleypu söguhetjur
þáttanna eru töff á yfirborð-
inu og ánægðar með stöðu
sína sem tímabundið ástand. Undir niðri séu þær
hins vegar rnjúkar og meyrar og vilji ekkert frekar en
að hætta þessari vitleysu og festa ráð sitt. í grein
Wendyjar Shalit á netútgáfu bandaríska tímaritsiirs
City Joumal segir að þrátt fyrir að aðstandendur Sex
and the City segi að þættirnir sóu enn eitt skrefið í átt
til kvenfrelsis (en þar sjáist sjálfstæðar konur sem
geri það sem þeim sýnist í samskiptum við karl-
menn), þá séu undirliggjandi skilaboð þáttanna
þvert á allar hugmyndir um kvenfrelsi. ,,í raun eru
þættirnir að syrgja alla þá „dýrmætu" hluti sem kyn-
lífsbyltingin hefur eyðilagt... Ef Candace Bushnell
Ihugmyndasmiður þáttanna] væri heittrúaður kaþó-
likki þá hefði hún ekki getað búið til snilldarlegra
tæki til að boða siðsemi og hófsemi í kynferðismál-
um,“ segir Shalit.