Vera - 01.08.2002, Side 33

Vera - 01.08.2002, Side 33
Selma: Ég held að þetta með að „vilja ná sér í mann" snúist líka oft um það að grasið er alltaf grænna hinum megin, samanber það sem Guðrún var að segja um vinkonur sínar sem eru í sambandi og öfunda þær sem eru á lausu. Helgarpabbinn erkitýpa á íslandi, piparjúnkan erkitýpa í öðrum löndum Hvað finnst ykkur um þá gagnrýni sem komið hef- urfram á umræddar einhleypu týpur, að þær séu ekki nógu góðar fyrirmyndir fyrir nútímakonur vegna þess að þær séu bara ánægðar og töff á yf- irborðinu, en undir niðri vilji þær ekkert frekar en að ná sér í mann? Selma: Þær eru allar ólíkar týpur. I Sex and the City er Charlotte miklu rómantískari en hinar. Carrie er reyndar líka mjög væmin innst inni. Aðal töffarinn er náttúrlega Samantha, en svo kemur stundum í ljós hjá henni að hún getur líka bráðnað. Guðrún: En er þetta svo hrikalega slæmt vegna stöðu kvenna? Er ekki í mannlegu eðli að vilja leita sér að maka og finna að maður sé elskaður og fá að elska einhvern? Þetta hefur ekkert með femínisma að gera. Oddný: Mór finnst þetta alltaf svo sérstök gagnrýni. Við erum spendýr og spendýr vilja fjölga sér, vilja á endanum para sig. Eg skal trúa þeim femínistum sem gagnrýna þetta „hvar er draumaprinsinn minn“ hug- arfar ef þær búa allar einar og ætla alltaf að gera það; eru á móti því að eiga mann og börn. Auðvitað er þetta ýkt í þessum þátturn og myndum en það er ein- faldlega af því að þetta er fyndið. Þetta er svona erkitýpa, alveg eins og helgarpabbi er erkitýpa á ís- landi, þá er hin 35 ára vonlausa piparjúnka með „tif- andi klukku“ erkitýpa í öðrum löndum. Selma: Ég held að þetta með að „vilja ná sór í mann“ snúist líka oft urn það að grasið er alltaf grænna hin- um megin, samanber það sem Guðrún var að segja um vinkonur sínar sem eru í sambandi og öfunda þær sem eru á lausu. Oddný: Nákvæmlega. Segjurn að Sex and the City fjallaði um fjórar giftar konur, þá sætu þær á kaffi- húsum og myndu fabúlera um hvað væri gaman ef þær væru á lausu. Myndu tala um sætu menn- ina á skrifstofunni; „ef mað- ur mætti nú...“ og svo fram- vegis. Guðrún: Ally McBeal hins vegar, ég get tekið undir það að áherslan í þáttunum er á hvað líf hennar snýst um að leita sér að karlmanni. Hún er lögfræðingur, er með- eigandi í lögfræðistofu, en þættirnir sýna ekki mikið þá baráttu sem hún heyr í starfi sem kona. Enda kannski lítið skemmtanagildi í því? Það er staðreynd að það er erfiðara fyrir konur að tryggja sig í sessi í starfi. Þetta er nokkuð sem ég hefði, fyrir nokkrum árum þegar ég var í námi, ekki trúað að ég myndi segja. En þegar maður er komin út á vinnumarkaðinn og vinnur sem sérfræðingur, þá er það hreinlega bar- átta að gera sig trúverðuga. Engin trúir því að við séum komnar þangað sem við ætlum okkur Hvað finnst ykkur um þá gagnrýni á yngri konur, að þær láti sig kvennabaráttuna ekki varða því þær telji að henni sé lokið? Oddný: Mér finnst vafasamt þegar eldri konur gagn- rýna okkar kynslóð fyrir að vera sofandi á verðinum, hugsa ekki nógu mikið um femínisma og sitja bara fyrir framan sjónvarpið og lilæja að Ally McBeal og Carrie Bradshaw. Það trúir því náttúrlega engin að við séum komnar þangað sem við ætlum okkur. Vissulega hefur rnargt áunnist en baráttan heldur áfram og kannski fer okkar barátta fram á svolítið annan hátt. Við erum ekki að brenna brjóstahaldara og stofna Kvennadaginn, það er búið að því. Það sem við geturn gert er í fyrsta iagi að þakka þeim konum sem ruddu brautina og að haga okkur eins og við stöndum jafnfætis körlum, alltaf. Aldrei að sætta okkur við lægri laun eða neitt minna en þeir. Guðrún: Kvennabaráttan í mínum huga snýst um að allir, karlar og konur, hafi vai. Forsendan er líka sú að karlarnir fari meira inn á heimilin en konur þurfa líka að fara meira út í fyrirtækin. leið oq bessar konur Oddný: Um leið og þessar lenda í fyrsta sinn í því að maðurinn á næsta borði fær hærri laun en þær og þær gera eitthvað í því þá eru þær orðnar femínistar.

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.