Vera - 01.08.2002, Síða 40

Vera - 01.08.2002, Síða 40
Pórey hefur komið víða við á stuttri starfsævi en í mörg ár starfaði hún báðu megin við borðið í módel- bransanum. Vinnan við hann hófst er hún tók þátt í Elite keppninni 19 ára gömul. Hvernig upplifðir þú það að vera fyrir- sæta? Það er eiginlega ekki hægt að segja að það að vera fyrirsæta á ís- landi endurspegli það að starfa sem fyrirsæta erlendis enda eru mun minni kröfur gerðar til fyrir- sætanna hér heima. Eftir Elite keppnina fór ég á skrá hjá Iceland- ic models og Módel 79 og hafði al- veg fínt að gera í auglýsingum og tískusýningum. Svo vann ég einnig sem fyrirsæta úti á Spáni þar sem ég var í spænskunámi einn vetur. Það átti ekkert sérstak- lega vel við mig en ég gerði þetta þó allt á mínum forsendum og hafði skólinn algjöran forgang. I rauninni líkaði mér mun betur að vera hinu megin við borðið. Eg var framkvæmdastjóri og annar eigandi Eskimo models frá 1995 og seldi minn hlut í lok árs 2000. Ástæðan fyrir því að ég hætti voru samskiptaörðugleikar við meðeigandann minn en einnig fann ég að ég var búin að gera það sem mig langaði til í bransanum og hafði ekki áhuga á honum lengur. I framtíðinni stefni ég á allt aðra hluti. Eg hef ekkert aðrar skoðanir á módel- bransanum núna en hef bara gert það upp við mig að ætla ekki að starfa við hann aftur. Það sem ég er þó ánægð með er að hafa öðlast dýrmæta reynslu við að byggja upp fyrirtæki og gera þennan bransa á Islandi viðskiptatengdari en áður. Ég lít ekki á fyrirsætur sem söluvöru, eins og margir gera, og sérstaklega ekki eins og þessu er stjórnað hérna heima. Hór gátum við sett reglur og fylgt þeim eftir. Við vorum stór skrifstofa og ef við vildum að stelpurnar væru eldri en 16 ára þé höfð- um við það þannig ef okkur sýndist svo. Ég ákvað það þegar ég fór í þennan bransa að ef ég myndi ein- hvern tímann hafa eitthvað óhreint á samviskunni gagnvart stúlkunum þá myndi ég hætta, en sem bet- ur fer þá hætti ég ekki út af því. Maður gerir sér al- veg grein fyrir því að úti í heimi getur þessi bransi verið mjög spilltur og hann er mjög einkennilegur. Það getur þó átt við aðrar starfsgreinar líka. Stundum leituðu á mig spurningar um hvaða tilgangi þetta starf þjónaði og oft var erfitt að sitja undir stöðugri gagnrýni. Eftir að módelþátturinn var sýndur í sjón- varpinu, þar sem ljót hlið á fyrirsætubransanum kom í ljós, langaði mig helst til að vera inni í viku því að ég var svo miður mín. Fólk heimfærði þetta líka allt yfir á Island, sem átti ekki við rök að styðjast. Mikið af þessari gagnrýni fer oft í taugarnar á mér ennþá þó svo að ég hafi sagt skilið við þennan bransa. Anorexia á Islandi er held ég mun algengari í ballet en í fyrirsætustörfum. Stelpurnar sem unnu hjá okkur voru ekki sendar í megrun enda trúa engir á megrun í dag. Að því leytinu til endurspeglum við ekki módelbransann úti í heimi enda er hann mjög ólíkur því sem við eigum að venjast hér heima. Islenskar stelpur eru bara öðruvísi en þær sem koma t.d. frá Bandaríkjunum, sem er svolítið áhugavert. Bandarísku stelpurnar hella sér í þetta og eru svo metnaðargjarnar að þær gera allt til þess að ná ár- angri og eru því í miklum áhættuhópi. Islensku stelpurnar eru aftur á móti með skynsamari stúlkum sem fara í þennan bransa. Þær eru þroskaðri en jafn- öldrur sínar og vita hvar hætturnar liggja og eru því meðvitaðar um hvar eru ógeðslegir karlar. Einnig eru þær yfirleitt í mjög góðu sambandi við foreldra sína ef þau eru bara ekki með þeim erlendis. Ef konur myndu passa sig á því hvernig þær klæða sig, hvað þær drekka mikið eða að tala ekki við fyrrverandi kærasta sína og vini, því að þeir gætu líka nauðgað þeim, þá þyrftu þær á endanum að hafa blæju og gætu bara læst sig inni. 40

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.