Vera - 01.08.2002, Síða 41
En er ekki eðlilegt að gagnrýna þær staðalmyndir af
fegurð sem miðast við ungar og grannar fyrirsætur á
forsíðum glanstímarita?
Auðvitað er ég alveg sammála því að fyrirmynd-
irnar eru mjög grannar og það sem ég gagnrýni er að
tískuheimurinn, og kvikmynda- og tónlistarheimur-
inn líka, taka fyrir eina fyrirmynd á hverjum tíma.
Það væri líka slæmt ef allir væru mjög feitir, sem er
ekki síður óhollt fyrir líkamann, en það er bara
breiddina sem vantar til að sýna hversu margar teg-
undir af konum eru til. Það hefur þó breyst því áður
var það bara Twiggy og allar áttu að vera eins og hún
en núna eru líka fyrirsætur með stór brjóst og kven-
legan vöxt. Fyrirsætuheimurinn og aðrir geirar sem
búa til þessar fyrirmyndir eiga þó langt í land með að
endurspegla raunveruleikann. Það rná heldur ekki
alltaf tala niðrandi um grannar konur því það er fullt
af stelpum sem eru það frá náttúrunnar hendi. Þær
geta ekkert að því gert og ekki gott heldur að fara út
í þær öfgar að segja að það sé ljótt. Verður ekki að
viðurkenna að það geti líka verið fallegt? Eg er einnig
alveg sammála því að fyrirsætur eru of ungar en sú
gagnrýni á t.d. líka við í samkvæmisdansi sem er
upphafinn hérlendis, þar sem litlar stelpur eru mál-
aðar og klæddar í kynþokkafull föt. Þar er einnig ver-
ið að gera börn fullorðin fyrir tímann.
Þórey var ásamt öðrum stofnandi keppninn-
ar Ungfrú fsland.is en fór svo, ásamt Lindu
Pétursdóttur, fljótlega út úr rekstrinum eftir
að fyrstu keppninni lauk. Hvað kom til að þú leitað-
ir á þessi mið?
Þegar við fórum af stað með þessa keppni var
hugmyndin sú að reyna að færa fegurðarsamkeppnir
inní nútímann. Þetta voru mjög háleit markmið og
þarna áttu að koma fram hæfileikar og greind stúlkn-
anna. í fyrstu keppninni vorurn við með frábæran
hóp sem var ótrúlega breiður í öllu tilliti. Eg hef sjálf
aldrei verið neitt sérstaklega hrifin af fegurðarsam-
keppnum og þess vegna var það svolítið á skjön við
mínar hugsjónir að fara inní þessa keppni. Ég hafði
þó mikla trú á því að við værum að gera einhverjar
breytingar. Það reyndist svo erfiðara en við héldum
en þegar ég leit til baka nokkrum mánuðum eftir
keppnina fannst mér við á engan hátt hafa breytt
neinu nema útliti keppninnar. Við höfðurn ekki
komið því fram að þessar stelpur væru greindari eða
hæfileikaríkari en aðrar fegurðardísir. Ég var mjög
óánægð með þessa niðurstöðu og þegar ég lít til baka
þá tók ég þá ákvörðun að hætta af því að ég fann að
við værum ekkert að stefna í að geta breytt þessu. Ég
vil samt taka það fram að Elva Dögg Melsteð er ein-
hver frambærilegasta fegurðardrottning sem komið
hefur fram. Hún stóð fyrir allt það sem við ætluðum
að standa fyrir og í rauninni bjargaði hún mannorði
okkar þarna. Núna finnst mér þessi keppni vera ná-
kvæmlega eins og hin keppnin og ég sé engan mun á
þeim nema að það er annað útlit á henni. Það sem
má þó gott um Ungfrú Island.is segja er að þar er ver-
ið að styrkja gott málefni.
Aður en Þórey fór út
í fyrirtækjarekstur
hafði hún lokið
einum vetri í spænsku og
listasögu við HI. Eftir að
hún sagði skilið við fyrir-
tækið fór hún í markaðs- og
útflutningsfræði við Endur-
menntunardeild Háskólans
og er nú hálfnuð með BS
gráðu í viðskiptafræði við
HÍ. Hvernig upplifir þú að
vera ung kona í dag að
korna þér á framfæri?
Það sem mér finnst frá-
bært við að fara í nám aftur
er að það opnast nýjar vídd-
ir. Eftir að ég fór í námið fór
ég að fylgjast meira með
viðskiptalífinu þó að ég hafi
auðvitað gert það á meðan
ég var sjálf í viðskiptum. Ur
Úr heimi viðskiptanna koma stað-
reyndir eins og sú að af hundrað
tekjuhæstu einstaklingunum á íslandi
árið 2000 voru þrjár konur.
heimi viðskiptanna koma staðreyndir eins og sú að
af hundrað tekjuhæstu einstaklingunum á íslandi
árið 2000 voru þrjár konur. Þetta er auðvitað fárán-
legt eins og það að samkvæmt síðustu launakönnun
VR er 24,5 % launamunur á kynjunum. Ég verð svo
reið þegar ég heyri fólk gera lítið úr því og talar eins
og þetta sá ekki til staðar vegna þess að það ríki svo
mikið jafnrétti á Islandi. Að vissu leyti erum við jú
með jafnrétti en það er frekar staðbundið, eins og í
stjórnmálum þar sem konur eru í valdamiklum stöð-
um. Svo þekki ég það bara af eigin raun og af þeim
konum sem í kringum mig eru, en ég þekki rnjög
mikið af metnaðargjörnum konum, að konur eiga
mikið erfiðara með að nálgast fjármagn þar sem fjár-
málaheiminum er algerlega stýrt af karlmönnum.
Körlunum finnst ofsalega gaman að fara á fundi með
huggulegum ungum konum og veita þeim greiðan
41