Vera - 01.08.2002, Qupperneq 45

Vera - 01.08.2002, Qupperneq 45
bara að þessu fyrir okkur sjálfar eða erum við að þessu fyrir konur almennt?" Hún sagði konur hafa unnið marga áfangasigra í meira en aldarlangri sögu kvenna- baráttunnar en eiga ennþá talsvert af sigrum óunna. Kvennafrídagurinn árið 1975 hefði markað ákveðin tímamót og að þá hafi orðið ákveðin hröðun í íslenskri kvennabaráttu. Hins vegar hefði kvennafrídagurinn aldrei komið til ef rauðsokkurnar hefðu ekki komið til og þær hefðu ekki komið til ef kvenréttindafélögin hefðu ekki áður barist fyrir jafnrétti kynjanna. Ingibjörg Sólrún taldi einnig ljóst að ef Vigdís Finnbogadóttir hefði ekki brotið ísinn og boðið sig fram til forseta hefði Ingibjörg Sólrún: Það er þetta kvenfrelsi sem við getum þakkað öllum þeim konum sem í meira en eina öld hafa tekið sér það fyrir hendur að þrasa um það sem almennt teljast viðteknir hlutir. Konur sem hafa látið sig hafa það að segja óþægilega hluti, vera leiðinlegar, jafnvel pínlegar, þrasgjarnar að margra áliti og hafa kannski ekki alltaf ver- ið hátt skrifaðar af samfélaginu. Kvennaframboðið ekki boðið fram, en í kjölfarið jókst hlutur kvenna í samfélaginu, í menntun og atvinnulífi, stjórnmálum, stjórnsýslu o.s.frv. „Þetta sýnir okkur að það er hægt að ná árangri í þessum málum ef við höfum brennandi áhuga, hugsjónir og skýra stefnu um hvað við viljum. Við þurfum að setja okkur mark- mið í viðfangsefnum okkar og við þurfum að fylgja þeim fast eftir á skipulagðan hátt. Það sem við verðum að hafa í huga er að við gerum það ekki án þess að njóta stuðnings og vináttu annarra kvenna." Konurnar sem þorðu og nenntu Ingibjörg Sólrún sagði barnaskap að halda að konur fengju einhverju áorkað án annarra kvenna, nema einhverja tak- markaða, tímabundna einkahagsmuni. Hún sagðist hvorki myndu vera þar sem hún er núna, né hafa fengið því áorkað í þágu kvenna sem hún teldi sig hafa gert ef hún hefði ekki not- ið þess að finna samstöðu og stuðning með og frá kynsystrum: „Mér er eiginlega næst að halda að án stuðnings og vináttu þessarra kvenna væri ég búin að gefast upp fyrir löngu,“ sagði hún. Sórstök málstofa var á námsstefnunni um tengslanet og mikilvægi þess að nota slík net til að ná árangri en konur voru yfirleitt hvattar til þess að nýta sér hin ýmsu tengsl sér til framdráttar. Ingibjörg Sólrún sagðist þekkja margar ham- hleypur. Margar konur skipti um ham þegar þær geri sig gild- andi í atvinnulífinu og skilji kvenhaminn eftir heima í eigin- legri og óeiginlegri merkingu. Þá gerist margar konur ham- hleypur til verka til þess að standast körlunum snúning og sanna sig í atvinnulífinu eða sem stjórnendur. Hins vegar fjölgi þeinr konum stöðugt sem taki sér rými í krafti eigin ágætis, byggi á kvenleikanum sem styrk og nýti hann í atferli sínu, í vinnubrögðum og í ytra útliti. Ingibjörg Sólrún sagði mikið frelsi felast í því að koma til dyranna eins og maður er klæddur og nýta þann styrk sem felst í kvenleik- anum. „Þetta er kvenfrelsi," sagði borgarstýran, „og það er þetta kvenfrelsi sem við getum þakkað öllum þeim konum sem í meira en eina öld hafa tekið sér það fyrir hendur að þrasa um það sem almennt teljast viðteknir hlutir. Konur sem hafa látið sig hafa það að segja óþægilega hluti, vera leiðin- legar, jafnvel pínlegar, þrasgjarnar að margra áliti og hafa kannski ekki alltaf verið hátt skrifaðar af samfélaginu. ... Það er þessum konum sem við eigum þetta kvenfrelsi okkar að þakka.“ Séra Auður Eir ViÍhjálmsdóttir tók í sama streng í mál- stofu sem bar yfirskriftina Völd og valkyrjur. Hún lagði á- herslu á að konur þurfi að þekkja sögu kvennabaráttunnar og femínisma, byggja á reynslu þeirra sem á undan komu og velja úr henni það sem nýtist þeim. Hún velti því fyrir sér hvers vegna alltaf kæmi bakslag í kvennabaráttuna við og við.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.