Vera - 01.08.2002, Page 51

Vera - 01.08.2002, Page 51
Valdið st Guðný Elísabet Lóa Birna í Danmörku eru 37 tímar í vinnuvikunni en þeir eru 40 hór á landi. Vinnuvikan hefur þó styst veru- lega frá því sem áður var. Kannanir frá Bretlandi sýna að þegar vinnuvikan þar var stytt og matar- og kaffitímum bætt inn í vinnutímann jókst framleiðn- in. „Það hefur verið sýnt fram á að 48 tíma vinnu- vika er hámark til styttri tíma litið ef yfirvinnan á ekki að hafa áhrif til hins verra. Ef vinnustundirnar eru ileiri fer framleiðnin niður á við.“ I könnuninni sögðust 59% aðspurðra vilja vinna minna en 67% sögðust ákveða sjálf hvort þau vinna yfirvinnu. „Það er athyglisvert að velta fyrir sér ástæðunni fyrir þessari mótsögn. Hefur fólk ekki eins mikla stjórn á vinnutímanum og það segist hafa? Eða þarf það hreinlega að vinna of mikið til að láta enda ná saman?" Meiri sveigjanleiki Lóa Birna og Guðný Elísabet segja að fyrirtæki geti gert ýmislegt til að auka sveigjanleika og minnka þannig hættuna á streitu eða árekstrum starfs og fjöl- skyldulífs. „Það snýr kannski fyrst og fremst að vinnutíma, að ráða hvar og hvenær fólk geti unnið, að fólk geti safnað upp tírnum, unnið hlutastarf eða unnið heima að hluta til. En það má heldur ekki þröngva breytingum upp á fólk og of lítil yfirvinna getur líka valdið streitu. Þetta snýst um að koma til móts við þarfir starfsfólks. Stjórnendur verða líka að gera sér grein fyrir afleiðingum of mikillar yfirvinnu. Starfsfólkið afkastar ekki enditega meiru þótt það sé tólf tíma í vinnunni í stað átta. Yfirvinna er dýr og stundum er hreinlega hægt að ráða einn nýjan starfs- mann fyrir peningana. Þetta snýst svo rnikið um Ekki er vanþörf á að íslendingar hugsi sinn gang og endurskoði forgangsröð- ina. Hér á landi er lögð of mikil áhersla á að vinna mikið og eignast hluti á kostnað fjölskyldunnar. hugsunarhátt. Stressaðir starfsmenn eru líklegri til að hætta í vinnunni eða hugsa út í það. Ef streitan er orðin alvarleg getur það svo leitt til vinnutaps sem skilar sér í minni framleiðni. Við reyndum reyndar að finna upplýsingar um algengi streitu en þær liggja ekki á lausu. Við fengum heldur ekki upplýsingar um vinnutap vegna streitueinkenna." Þær benda á að félagslegur stuðningur getur haft jákvæð áhrif en með félagslegum stuðningi eiga þær við hvort starfsfólk mæti skilningi hjá yfirmanni eða samstarfsfólki. Slíkur félagslegur stuðningur á vinnustað getur dregið úr árekstrum starfs og fjöl- skyldulífs. Lóa Bima og Guðný Elísabet telja að nú sé vakn- ing varðandi þessi mál. „Of rnikil yfirvinna getur ekki aðeins haft slæm áhrif á einstaklinginn, heilsu- farslega séð, heldur einnig á þjóðfélagið þar sem framleiðni minnkar hjá fyrirtækjum og árekstrar bitna á fjölskyldunni. Hver einstaklingur hefur svo víðtæk áhrif og um er að ræða keðjuverkun sem erfitt er að sjá fyrir." 51

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.