Vera - 01.08.2002, Page 60

Vera - 01.08.2002, Page 60
Hrönn: Hvort konur vilja vinna í álbræðslu veit ég ekki. Ég var sjálf á sjó og veit að það er hægt að komast langt á þrjóskunni. Ég var fyrst kokkur 19 ára svo háseti. Þegar ég kom heim eftir ársdvöl í Mexíkó var ég svo vinnslustjóri á frystitogara en ég hætti vegna fórna skrokknum á mér. Ólína: Mér finnst eitt af hættu- legri umræðuefnunum um lands- byggðina vera að allt sé miklu dýrara hér. Það er að mörgu leyti rétt en þú getur líka bankað upp á hjá apótekaranum á föstudags- kvöldi og fengið magnylið þitt. Hrönn, sem er rekstrarfræð- ingur að mennt, hefur ákveðið að flytja aftur heim og er nú að leita sér að vinnu á Norðfirði. En hvers vegna ákvað hún að snúa við? Hrönn: „Ég er fædd dreifbýlis- tútta,“ segir hún flissandi og bæt- ir við „nei, mér líður bara svo vel hérna. Fjöllin, sjórinn og fjöl- skyldan eru hér og það er langt síðan ég hef búið hérna. Ég var síðustu tvö árin í Reykjavík og þrjú þar áður á Akureyri og mór finnst allt hérna bara vera svo heimilislegt." Ólína: Ég get hins vegar ekki hugsað mér að koma hingað aftur. Ég elska þennan stað en þetta er of lítið fyrir mig, það er samt ekki eins og ég sé alltaf í leikhúsi á Ak- ureyri. Norðfjörður verður þó alltaf „heima“. Stebba: Já, þú hefur líka alltaf ver- ið stolt og talað fallega um bæinn. Ólína: Ef myndi sverfa að myndi ég auðvitað flytja til baka en þetta er líka bara spurning um vinnu. Þetta er paradís en þegar ég fór var hugurinn farinn. Hrönn: Ég hef aldrei hætt að svara „ég er frá Neskaupstað". Fólk hef- ur þá spurt hvað ég geri þar og þá þarf ég að svara „nei, ég bý sko í þess að ég er ekki tilbúin að Reykjavík..." Ólína: Já, maður er náttúrulega Nobbari í húð og hár. Hrönn: Mér finnst Reykjavík ekki slæmur staður en þetta er ekki síðra. Ólína: Guði sé lof að það vilja ekki allir það sama. Stebba: Mér finnst líka gaman hvað vinir mínir í bænum eru sólgnir í að koma austur með fjöl- skyldur sínar. Þegar þau hafa komið á annað borð uppgötva þau að það er ekki lengra frá Reykja- vík til Neskaupstaðar heldur en frá Neskaupstað til Reykjavíkur. En hverjir eru ókostir þess að búa úti á landi? Hrönn: Kannski úrvalið í mat- vöruverslununum. Stebba: Ég hef aldrei verið ósátt við að búa hér en það blundar í mér að prófa eitthvað annað, ekki stórreykjarvíkursvæðið heldur frekar útlönd. Hér vil ég vera en ég sakna helst fjölbreytni hvað varðar val á íþróttum fyrir börnin. Það er líka alltaf hægt að ergja sig á húshitunarkostnaði hérna, mér finnst óskiljanlegt að við íslend- ingar skulum ekki alveg eins eiga heitavatnsauðlindina saman eins og fiskinn í sjónum. Sú auðlind virðist hins vegar vera undanskil- in og bara sumir eiga hana. Svitinn perlar á ennum og konurnar þurfa reglulega að standa upp og fækka fötum af hita. Talið berst að veðrinu. Hrönn: Svona dagar eru margra „vondaveðursdaga" virði. Ólína: Já en ég sakna samt líka vonda veðursins frá því að við vorum krakkar. Það er allt of sjaldan svo vont veður að skólum sé aflýst í dag (hlærj. Við vorum oft mokuð út man óg og það var svo mikill sjarmi yfir þessu, sér- staklega þegar rafmagnið fór og allir spiluðu við mann vegna þess að fólk gat ekki haldið störfum sínum áfram. En það sem ég er hrædd við í svona veðrum eru hamfarir, það hafa margir dáið hér í snjóflóði. Er snjóflóðahætta eitthvað sem hræðir ykkur verulega? Stebba: Nei, alls ekki en mér finnst hún trufla ættingjana sem búa annars staðar mikið. Ólína rekur mig alltaf til mömmu þegar það snjóar mikið en húsið okkar er á öruggari stað. Það væri frekar að mamma kæmi til mín. Ólína: Mér finnst öryggið alltaf vera hjá mömmu (hlær). Hrönn: Já, ég man þegar ég bjó í Mexíkó og flóðin féllu í Súðavík og Flateyri hvað ég var hrædd um fólkið mitt, þrátt fyrir að hér væri alls ekki snjóflóðahætta þá. Stebba: En þær aðstæður sem sköpuðust hérna 1974 þegar snjó- flóðið féll og 12 manns fórust skapast eiginlega aldrei og hafa ekki skapast síðan þá. Ólína: Það væri nær að fræða fólk um hættuna. Maðurinn minn er frá Hrísey og hann sá einhvern tímann pínu snjóskriðu í fjallinu og vildi bruna í burtu. Hrönn: Mér finnst bara flott þegar fjallið er allt í spýjum þá eru gilin að hreinsa sig. Stebba: Það var svo mikill snjór hér á veturna og sumrin voru svo góð. Ég man að fötin mín skemmdust þegar ég var krakki út af bráðnuðu malbiki. Við vorum að dunda okkur við að sprengja loftbólur í malbikinu þegar mamma öskraði „matuuur"... Hrönn: Já, pabbi öskraði ógeðs- lega hátt og það heyrðist hvar sem við vorum. Minningin er alltaf svo góð.

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.