Vera - 01.08.2002, Page 70

Vera - 01.08.2002, Page 70
vera frá Jafnréttisstofu Konurnar flytja, karlarnir sitja eftir... Af hverju flytja konur af landsbyggðinni? Hafin er vinna við norrænt samstarfsverkefni Kvinner reiser, menn blir sem ísland tekur þátt í ásamt Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Færeyjum og Grænlandi. Um er að ræða rannsókn á áhrifum hins svokallaða norræna velferðarkerfis og breyt- inga á vinnumarkaði á þéttbýli og hinar dreifðu byggðir, auk áhrifa á stöðu, hlutverk og samskipti kvenna og karla á viðkomandi svæðum. Verkefnið beinist að norðursvæðum Svíþjóðar (Norrbotten), Noregs (Finnmark, Troms) og Finnlands (Lappland) en öllu íslandi, Færeyjum og Grænlandi. eru konur og karlar nánast jafnmörg. A höfuðborgarsvæðinu eru konur hins vegar um 3% fleiri en karlar og víða út um landið eru karlar fleiri en konur og sums staðar mun fleiri. Þegar flutningatíðni er skoðuð með til- liti til kyns og aldurs kemur í ljós að hún er hæst hjá 20-24 ára konum. Auk þess að vísa beint til fólksflutninga vísar heiti verkefnisins Kvinner reiser, menn blir til þess sem gerst hefur í jaðarbyggðum víða er- lendis, ekki síst þeim sem byggt hafa á mjög hefðbundnum karlastörfum, að konurnar eru jafnframt líklegri til huglægra ferðalaga, þ.e. að sækja nám- skeið t.d. í tölvutækni og fá svo vinnu við slíkt, en karlarnir sækja síður end- urmenntun heldur sitja og bíða eftir stórframkvæmdunum. Hér á landi er þekkt að konur frekar en karlar flytjast á brott frá heimabyggð sinni, úr dreifbýli í þéttbýli og úr minni bæjurn í þá stærri, úr bæjum í borg. Óhjákvæmi- lega leiðir þetta til kynja- skekkju í byggðarlögunum og hefur áhrif á þróun þeirra og jafnvel á þróun hlutverka kvenna og karla. I skýrslu sem félagsmálaráðuneytið gaf út árið 2000 um stöðu kvenna á landsbyggðinni kemur fram að á landinu öllu 70

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.