Vera - 01.10.2003, Blaðsíða 11
/ SKYNDIMYND
'l'
í haust héldu landsliðskonur fjölmennasta kvennafjöltefli
sem vitað er til að hafi verið haldið í Evrópu. Þetta gerðu
þær til að fagna því að íslenskt skákfélag, Taflfélagið Hellir,
sendi í fyrsta sinn kvennasveit á alþjóðlegan viðburð, Evr-
ópumeistaramót taflfélaga. Rúmlega 100 konur mættu til
leiks í Ráðhús Reykjavíkur og minntu þjóðina rækilega á
að konur kunna Ifka að tefla og sýndu íslenskum skákkon-
um góðan stuðning.
Næsta Ólympíuskákmót fer fram á Spáni haustið 2004.
íslensku skákkonurnar segja að ekkert muni koma í veg
fyrir þátttöku þeirra þar. Jafnréttisbaráttan muni haldi
áfram fullum fetum því enn sé langt í land ef vel eigi að
vera.
VERA hefur ánægju af því að kynna kvennalandsliðið í
skák og óskar þeim góðra sigra í framtíðinni.
Lenka Ptacnikova, fædd 1975
Lenka erfædd og uppalin ÍTékklandi en hefur verið búsett
á íslandi í þrjú ár og á 4 ára gamla dóttur, Lilju, með Helga
Áss Grétarssyni stórmeistara í skák. Lenka hefur þrisvar
orðið Tékklandsmeistari kvenna í skák og tvisvar Tékk-
landsmeistari kvenna í atskák. Frá árinu 1994 hefur hún
teflt reglulega fyrir Tékkland á Ólympíuskákmótum en
árið 2002 varð Tékkland í 10. sæti á Ólympíuskákmótinu í
Bled með Lenku í broddi fylkingar. Lenka varð fyrst kvenna
til að vinna sér þátttökurétt í Landsliðsflokki íslands þar
sem hún tefldi á meðal 11 karlmanna á Islandsmótinu árið
2001. Sama ár varð Lenka stórmeistari kvenna í skák en
hún er fyrsta konan sem búsett er hérlendis sem hlotið
hefur þann titil.
Guðlaug Þorsteinsdóttir, fædd 1961
Guðlaug Þorsteinsdóttirvarðfyrsti íslandsmeistari kvenna
árið 1975 og hefur alls unnið titilinn fjórum sinnum. Guð-
laug varð Norðurlandameistari kvenna árin 1975,1977 og
1979, fyrst íslenskra kvenna til að vinna slíkan titil. Guð-
laug var í kvennalandsliði Islands á Ólympíuskákmótunum
1978, 1982 og 1984. Á alþjóðlegu móti ( Grikklandi árið
1984 varð Guðlaug fjórða og náði fyrsta áfanga að alþjóð-
legum meistaratitli kvenna. Guðlaug átti glæsilega endur-
komu inn í íslenskt skáklíf árið 2002 þegar hún sigraði á ís-
landsmóti kvenna með fullu húsi.
Áslaug Kristinsdóttir, fædd 1961
(ekki á mynd)
Áslaug hefur um áraraðir verið á meðal fremstu skák-
kvenna landsinsog hún hefur þrisvarorðið íslandsmeistari
kvenna. Hún varð þriðja í kvennaflokki á Skákþingi Norð-
urlanda 1979 og 1981 og varð efst á Islandsmóti kvenna
1987, ásamt Guðfríði Lilju Grétarsdóttur en tapaði fyrir
henni í einvígi um titilinn. Áslaug tefldi á Ólympíuskák-
mótunum 1980 - 1984 og stóð sig einatt mjög vel, auk
þess sem hún tefldi á Ólympíumótinu í Istanbúl árið 2000.
Sigurlaug Friðþjófsdóttir, fædd 1961
Sigurlaug er nýflutt aftur til landsins eftir að hafa búið er-
lendis í 17 ár. Sigurlaug varð íslandsmeistari kvenna árið
1981 og Norðurlandamestari kvenna sama ár. Hún tefldi á
Ólympíuskákmótunum 1980 -1984 og tefldi fyrst íslenskra
kvenna á svæðamóti í Bad Kissingen 1982.
Harpa Ingólfsdóttir, fædd 1981
Harpa Ingólfsdóttir hefur nú í mörg ár verið á meðal
fremstu skákkvenna landsins. Hún var strax ung að aldri
sigursæl á barna- og unglingamótum, varð nokkrum sinn-
um íslandsmeistari stúlkna og íslandsmeistari kvenna varð
hún árið 2000. Harpa tefldi á öðru borði fyrir hönd íslands
á Ólympíumótunum í Istanbúl árið 2000 og í Bled árið
2002. [ Bled stóð hún sig best allra í landsliðinu, með
hæsta vinningshlutfallið á móti sterkum andstæðingum.
Harpa hefur síðastliðin ár verið burðarás í landsliðinu og
hefur kennt stúlkum að tefla víða um landið.
Á myndinni eru
f.v. Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir,
Guðlaug
Þorsteinsdóttir,
Harpa
Ingólfsdóttir með
son sinn Kristján
Stefánsson,
Sigurlaug
Friðþjófsdóttir og
Lenka Ptacnikova.
Anna Björg Þorgrímsdóttir, fædd 1979
(ekki á mynd)
Rétt eins og Harpa var Anna Björg fremst á meðal jafningja
á uppvaxtarárum sínum og ásamt Hörpu og Aldísi Rún
Lárusdóttur hefur hún verið fremst yngri kynslóðarinnar í
landsliðinu. Anna Björg varð íslandsmeistari árið 1996.
Engin landsliðskona hefur vaxið jafn mikið að styrkleika og
Anna Björg undanfarin tvö ár og fáar verið jafn virkar á
skákmótum, bæði fyrir karla og konur. Anna Björg tefldi
með landsliðinu á Ólympíuskákmótinu í Bled árið 2002 og
kennir einnig reglulega skák hér heima.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, fædd 1972
Guðfríður Lilja er ellefufaldur (slandsmeistari kvenna í skák
og eina íslenska konan sem hefur hlotið alþjóðlegan
meistaratitil kvenna í skák. Guðfríður Lilja er núverandi ís-
landsmeistari og tefldi á fyrsta borði á Ólympíuskákmót-
unum í Istanbúl árið 2000 og í Bled árið 2002. Guðfríður
Lilja var fyrsta íslenska konan til að ávinna sér rétt til að
tefla á millisvæðamóti árið 1990, en slík mót voru þá liður
í keppninni um heimsmeistaratitil kvenna í skák. Guðfríður
Lilja kennir reglulega ungum stúlkum skák ásamt þeim
Hörpu og Önnu Björg. IC
Vertu með og styrktu gott málefni
Krabbameinsfélagið
www.krabb.is
'ítítc
sfélagsins
ar:
jöcus C-Max, sjálfskiptur.
Verðma ti 2.370.000 kr.
1 Bifreiö eða greiðsla upp í íbúð.
Verðmæti 1.000.000 kr.
Úttekt hjá ferðaskrifstofu
eöa verslun.
Hver að verðmæti 100.000 kr.
Upplýsingar um vinningsnúmer I simum
150 skattfrjálsir vinningar
að verðmæti 1 8.1 70.000 kr.
zy.. zooj