Vera - 01.10.2003, Blaðsíða 74
Jafnréttisstofa
DAPHNE II
verkefnaáætlun ESB
um aðgerðir til að vinna gegn ofbeldi á börnum, ungmennum og /coni/rn
Nú liggur fyrir Evrópuþinginu tillaga um að Daphne verkefnáætluninni verði
haldið áfram. Nýja áætlunin nefnist DAPHNE II (2004-2008). Stefnt er að því að
tillagan verði samþykkt fyrir lok ársins 2003.
Meginmarkmið Daphne II verkefnaáætlunar Evrópusambandsins er hið sama og
var í fyrri áætlun, þ.e. að hvetja til verkefna sem ætlað er að vernda börn, ungmenni
og konur fyrir hvers konar ofbeldi og efla stuðning við þolendur ofbeldis til þess
að stuðla megi að bættu líkamlegu og andlegu heilbrigði. Áhersla er meðal
annars lögð á samskiptanet þeirra sem vinna að þessum málum, upplýsingamiðlun,
samhæfingu aðgerða og samvinnu milli landa, ásamt því að gera almenning
meðvitaðan um tilvist ofbeldis.
Umsækjendur geta verið opinber og frjáls félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og
sveitarfélög og aðrir sem vinna gegn hvers konar ofbeldi á börnum, ungmennum
og konum og aðstoða þolendur ofbeldis. Samvinna þarf að vera á milli a.m.k.
tveggja ríkja innan EES.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Jafnréttisstofu www.jafnretti.is og
http://europa.eu.int/comm/justice home/project/daphne/en/index.htm
Jafnréttisstofa • Hvannavöllum 14 • 600 Akureyri
sími: 460 6200 • bréfsími: 460 6201 • netfang: jafnretti@jafnretti.is • www.jafnretti.is