Vera


Vera - 01.10.2003, Page 55

Vera - 01.10.2003, Page 55
Myndír: Salvör Gissurardóttirl ÁN EFA HEFUR ÞAÐ HAFT MIKIL ÁHRIF AÐ MARGARETA OG AÐRIR RÁÐHERRAR í RÍKISSTJÓRN BEITTU SÉR EINS OG ÞAU GÁTU GEGN EVRUNNI EN ÞAR VAR MARGARETA WIN- BERG FRAMARLEGA í FLOKKI Fráfundill kvennasamtaka með Margaretu á Grand Hóteli 6. september. Katrín Anna Guðmundsdóttir afhendir Margaretu Winberg bol frá Femínistafélagi íslands. lagabreytinganna. Má þar nefna hægri flokkinn hér en andstaða var einnig innan flokks jafnréttisráðherrans. Nú hefur það landslag breyst og Svíar virðast stoltir af því að vera frumkvöðlar á þessu sviði. Á fundinum í Reykjavík 6. september sl. lagði Margareta ríka áherslu á að það væri vegna áralangrar baráttu kvennasamtaka, ekki síst þeirra sem vinna með fórnarlömb kynferðisofbeldis, á borð við Stígamót og Kvennaathvarfið á íslandi, sem þessi laga- breyting varð að veruleika. Margareta jafréttisráðherra hefur sýnt dugnað í starfi sínu og barist gegn öllum birtingarformum kynferðisof- beldis og með fórnarlömbum þess, bæði í Svíþjóð og á al- þjóðavettvangi. Konur í Rússlandi, Eistlandi, Lettlandi og Litháen þekkja vel til hennar starfa en Svíar leggja sig ötul- lega fram um að vinna gegn því mansali sem viðgengst í ríkum mæli í þessum löndum. Þar hefur Margareta verið í broddi fylkingar. Fyrir þessi störf sín nýtur Margareta mik- illar virðingar. Hún hefur svo sannarlega sýnt að jafnréttis- ráðherra sem er öflugur femínisti og jafnframt hugrakkur stjórnmálamaður getur lyft grettistaki í þágu kvenna, ekki bara í sínu heimalandi heldur alls staðar. En hún heldur sínu striki, lætur ekki segja sér fyrir verkum þegar hún er sannfærð og stundum bitnar það á konum. Það þekkja margar. Gegn fjölgun vændishúsa í Aþenu Ég get ekki stillt mig um að minnast á þátt hennar (áskor- un jafnréttisráðherra Norðurlandanna (fyrir utan þess danska) og Eystrasaltslandanna til grísku borgarstjórnar- innar sem var í óða önn að undirbúa fjölgun vændishúsa í Aþenu fyrir Ólympíuleikana 2006. Danski jafnréttisráð- herrann neitaði að skrifa undir, m.a. á þeim forsendum að hvert land ætti að hafa frelsi til að ráða sínum málum og hjólaði ráðherrann einna helst í Margaretu, hinn sænska kollega sinn. En sú lét ekki eiga neitt inni hjá sér og skrifaði magnaða grein sem birtist í Aftonbladet hér í Svíþjóð, og raunar á femínistavefnum okkar líka, þar sem hún sagði eitthvað á þessa leið: „Hvaða konur eru það sem danski jafnréttisráðherrann vill að taki að sér að fullnægja aukinni eftirspurn eftir vændi í Grikklandi? Hefur hún einhverjar sérstakar stúlkur í huga sem geta þá bæst við á þann markað kynlífsþræla sem fyrir er í heiminum? Þekkir danski jafnréttisráðherrann einhverjar stúlkur sem hún vill beina inn á þessar brautir?" Við þessu komu engin svör og sænskum konum fannst flestum frábært að eiga jafnréttisráðherra sem enn einu sinni var hægt að treysta á örlagaríkum stundum. Það er nefnilega ekkert auðvelt að hjóla lóðrétt í samráðherra sína á Norðurlöndunum og margir hefðu reynt að beita öðrum fyrir sig, eða láta kjurrt liggja. Við íslenskar konur skulum svo endilega halda því til haga að frumkvæðið kom frá okkur þegar Kristín Ástgeirsdóttir fékk fréttir af málinu og brást hárrétt við. Grískar konur, sem höfðu leit- að allra leiða til að vekja athygli á þessum ósóma, eru ákaf- lega þakklátar fyrir þessi öflugu og áhrifaríku mótmæli. Á fundinum góða á Grand Hóteli var spurt hvort allir ráð- herrar í ríkisstjórninni sænsku hefðu stutt nýju lögin árið 1999. Nei, var svarið. Dómsmálaráðherrann hafði hikað í fyrstu. Sárt saknað sem jafnréttisráðherra Það kemur maður í manns stað. Nei, segja margar konur sem ég hef hitt hér í Sviþjóð. Það verður engin kona eins öflug í þessu starfi og Margareta Winberg, segja þær. Og hennar er sárt saknað. Mona Salin, sem tekur við jafnréttis- málunum og bætir þeim við önnur verkefni sem ráðherra (ríkisstjórn Görans Persons forsætisráðherra, er öflug kona og góður femínisti og ef hún fær sama stuðning og fyrir- rennari hennar fékk frá kvennahreyfingunum hér og kann að nýta sér hann, þá ættu femínistar ekki að þurfa að ör- vænta. Eigi skal gráta Björn bónda heldur safna liði, sagði góð kona eitt sinn. Margareta var leyst út með „salsa" tertu og um háls henni var hengdur krans úr suðrænum ávöxtum þegar Ijóst var að hún yrði ekki lengur ráðherra og væri á leið til Brasilíu. Hún segist hlakka til að takast á við þetta starf á nýjum vettvangi. Brasilía er eitt þeirra landa sem nýtur stuðnings frá Svíum, þar eru m.a. í gangi uppbyggingar- verkefni með konum og börnum sem búa við hörmulegar aðstæður. Það er því líklegt að brasilískar konur muni njóta krafta hennar. Þar er af nógu að taka. Það frumkvæði sem Guðrún Jónsdóttir (Rúna) hjá Stígamótum sýndi þegar hún bauð Margaretu til íslands er þakkarvert og líklegt til að skila árangri þegar á yfir- standandi alþingi. Við íslenskir femínistar skulum svo þakka Margaretu Winberg fyrir okkur og óska henni vel- farnaðar í nýju starfi. X Á heimasíðu VERU, www.vera.is , má sjá ræðurnar sem Margareta flutti i heimsókn sinni hér á iandi í september. vera/5-6. tbl./2003/SS

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.