Vera


Vera - 01.10.2003, Page 22

Vera - 01.10.2003, Page 22
/ ÞRIÐJA BYLGJA FEMÍNISMANS Ásthildur Sturludóttir er 29 ára gömul og býr í Stykkishólmi. Hún er stjórnmálafræðingur og vinnur sem atvinnuráðgjafi og ferðamálafulltrúi hjá atvinnuþróunardeild Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Ásthildur er í stjórn SUS fyrir Norð- vesturkjördæmi og var varaformað- ur sjálfstæðiskvennafélagsins Hvat- ar í Reykjavík 2001-2002. Hún er í félagsskap sem kallast Tíkurnar en þær halda úti vefriti sem kallast tíkin.is og fjallar um pólitík, einstak- lingsfrelsi og jafnrétti og er Ásthild- ur þar reglulegur pistlahöfundur. Ásthildur Sturludóttir Frelsi og tækifæri eru forsendur jafnréttis Þegar spurt er hvað brennur heit- ast á ungum konum í dag er svar- ið oftast að öðlast fullt jafnrétti á við karla hvað varðar atvinnu- möguleika og starfskjör. Margt hefur áunnist í baráttu okkar fyr- ir jafnrétti og eru ný lög um fæð- ingarorlof sjálfsagt stærsta og mikilvægsta skrefið í þá átt. En þó er enn langt í land og má nefna fjölda dæma sem sýna það berlega. Til dæmis eru konur lítið áberandi í stjórnunarstöðum og á það bæði við um einkafyrirtæki og opinberar stofnanir. Það sætir tíðindum þegar kona er ráðin sem lykilstjórnandi, enda fátítt! Þá höfum við verið að koma auga á ýmislegt sem er á skjön við það sem við áður héldum að væri sjálfsagt. Menntun virðist t.d. ekki vera sá lykill að jafnrétti í starfskjörum sem við héldum. Konur sækja stíft í langskólamenntun, eru meirihluti nemenda við Háskóla íslands og í meirihluta útskrifaðra kandídata. En kannanir sýna að konur séu samt sem áður með lægri laun en karlar. Hvað veldur er erfitt að segja en skýringarnar eru íjölmargar og misviturlegar. Með þessu er ég alls ekki að segja að konur eigi ekki að mennta sig, síður en svo, heldur benda á þessa staðreynd sem er sorgleg og eitthvað sem við verðum að róa öllum árum að til að breyta. Ég er jafnréttissinni í víðasta skiln- ingi þess orðs. Allt frá barnæsku hefur mér verið kennt að ég hafí sömu réttindi og tækifæri og strákar og hafi frelsi til að velja. Þess vegna trúi ég á jafnrétti kynjanna og vil að fólk njóti jafnréttis óháð litarhætti eða þjóðerni. Ég vil að landsmenn njóti jafnréttis til náms og að íbúar landsbyggðar njóti sambærilegra lífsgæða og íbúar borgarsamfélaga. Ég vil jafnrétti og þar með kvenrétt- indi. Sú aðferð að beita kynjakvóta, sem mikið hefur verið rætt um, til þess að fá fleiri konur til að taka þátt í atvinnulífi og pólitísku starfi er tímaskekkja. Hins vegar tel ég að já- kvæð mismunun geti átt rétt á sér ef það er einasta leiðin til að gera upp á milli tveggja jafnhæfra einstak- linga. Ég tel að kynjakvótar muni ekki leiða til framfara konum til heilla og eigi því ekki rétt á sér. Slík- ar aðgerðir geta snúist upp í and- hverfu sína og haft öfug áhrif. Þær veikja stöðu kvenna og draga úr trúverðugleika þeirra og mikilvægi. Sérstaklega þeirra sem fá störf vegna eigin verðleika en ekki vegna kynja- kvóta. Það er ljóst að sá einstakling- ur sem ráðinn er í starf vegna kynja- kvótareglna mun verða því marki brenndur alla tíð. Slíkt gleymist ekki. Ég trúi á einstaklinginn og hæfileika hans til að blómstra og láta að sér kveða, óháð kynferði. Til að sjá megi jafnrétti í reynd tel ég að konur verði að fá tækifæri til jafns við karla og hafa frelsi til að velja og ákveða. Frelsið er grund- vallaratriði jafnréttis og einn grund- vallarþáttur nútímasamfélags. Frelsið leiðir til vaxtar visku og þekkingar í gegnum gangrýna hugs- un sem leiðir til nýrra tækifæra sem konur jafnt sem karlar geta nýtt. Þessi tækifæri gefa konum þann möguleika að ná markmiðum sín- um, hvort sem það er í menntun, starfi eða íjölskyldulífi. Mín sann- færing er sú að það sé í raun far- sælasta leiðin til raunverulegs jafn- réttis fyrir alla. 22/4. tbl. / 2003/ vera

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.