Vera


Vera - 01.10.2003, Qupperneq 35

Vera - 01.10.2003, Qupperneq 35
»Erla Þorsteinsdóttir er miðherji í meistaraflokki körfuknattleiksliðs Keflavíkur. Hún hefur margsinnis verið valin besti leikmaðurinn þar og árið 2000 var hún valin besti leikmaðurinn í fyrstu deild kvenna. Keflavíkurstúlkur voru sigursælar í fyrra, unnu Is- landsmeistaramótið og allt nema bikarinn. „Við eigum mikið að verja og einn titil að vinna," segir Erla vígreif. „Við höfum metnað til að standa okkur vel og gera enn betur í ár. Keflavík er með sterkt lið og breiðan hóp og við vitum allar hvað þarf til að vinna." Sjálf hefur Erla æft körfubolta í tólf ár og segist hafa fengið áhugann þegar hún fór að leika sér í körfubolta í ferming- arveislu hjá frænda sínum. Eftir það fór hún að mæta á æf- ingar. „Þetta var bara svo rosalega gaman. Svo voru allar vinkonurnar í þessu. Þetta er orðinn svo mikill hluti af lífi mínu að ég get ekki ímyndað mér annað en að halda áfram." Það er greinilegt að liðsandinn í Keflavík er mikill. „Við erum náttúrulega búnar að æfa í svo mörg ár saman. Og við erum næstum allar aldar upp í Keflavík," segir Erla en hún sér sig ekki í anda spila með öðru liði. Hún fór þó einn vetur í háskóla í Alabama í Bandaríkjunum og spilaði með körfuboltaliðinu þar. „Þetta varfín reynsla en ég vissi alltaf að ég yrði þar ekki áfram," segir hún. Kvennaráð gætir hagsmuna kvennaliðsins Erla hefur verið í landsliðinu frá því hún var 16 ára. Hún tel- ur að landsliðið sé að þróast í jákvæða átt en að verkefnin mættu vera fleiri. Hún segir að vissulega fái kvennakörfu- boltinn oft minni umfjöllun og athygli en karlaboltinn en ber félaginu sínu vel söguna. „Mér finnst að í Keflavík hafi alltaf verið staðið vel að öllum deildum. Við erum líka heppnar og höfum sérstakt kvennaráð sem sér um okkur. Þarna eru mæður og frænkur sem standa sig mjög vel. Ein úr kvennaráðinu er síðan í stjórn félagsins og gætir hags- muna okkar," segir Erla en hún telur slíkan stuðning hjálpa mikið. „Þær hitta okkur eftir heimaleiki, bjóða upp á kaffi og velja konu leiksins. Þetta styrkir liðsandann heilmikið." Erla telur að umfjöllun um kvennakörfuna hafi aukist og batnað, en að það mætti veita körfubolta almennt meiri athygli í fjölmiðlum. Ætlarað verða kennari Erla gerir meira en að spila körfubolta þótt það taki vissu- lega mikið af tíma hennar. Hún er á öðru ári í Kennarahá- skólanum, á yngri barna sviði. „Ég hef svo gaman af að vinna með krökkum og kenndi í eitt ár við Heiðaskóla í Keflavík. Það fannst mér alveg meiriháttar og er búin að finna mitt svið," segir hún ákveðin. Erla hefur einnig fund- ið sér tíma til að stunda golf og gott betur, því hún var í unglingalandsliðinu í golfi. „Ég bjó á golfvellinum á sumr- in," segir hún, „en svo fór karfan að taka meiri tíma á sumr- in og golfiðkun er tímafrek þannig að hún varð að víkja." Erla skellti sér þó á meistaramót Golfklúbbs Suðurnesja í sumar og bar sigur úr býtum, þannig að hún hefur greini- lega engu gleymt. Stefnir að því að vinna Þegar viðtalið var tekið höfðu Keflavíkurstúlkur nýlega tapað leik gegn KR. „Þetta var bara smá slys," segir Erla sem spilaði ekki með í þeim leik þar sem hún lenti sjálf í smá slysi í leiknum á undan. „Ég fékk hressilegt olnbogaskot, fór andar- tak úr kjálkalið og fékk sprungu í kjálkann," segir hún sposk á svip. „Ég missti af einum leik," segir hún og hlær mikið þegar blaðakonan spyr hvort þetta sé þá hættulegt sport. „Bara svona eins og gengur og gerist." Það er að heyra á Erlu að Keflavík muni ekki láta tapið gegn KR slá sig út af laginu. „Þetta er jú bara upphafið á tímabilinu og það er alltaf gott að fá smá spark í rassinn af og til. Ég er ekki í þessu bara til að vera með, heldur til að vinna. Þegar fólk er komið þetta langt verða allir að vera með markmið, bæði einstaklingarnir og liðið sem heild. Sjálf hef ég metnað til að skila mínu í hverjum leik og gera eins vel og ég get." X AUÐUR AÐALSTEINSDÓTTIR m o G J A F A B R É F MYNDLISTASKÓUNN www. myndlistaskolinn.is | í REYKJAVÍK Hringbraut 121 • 107 Reykjavík Skrifstofan opin mán. - fim. 14 -18 og fös.14 -17 Simi 551 1990 vera / 5 -6. tbl. / 2003 / 35
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.