Vera


Vera - 01.10.2003, Page 60

Vera - 01.10.2003, Page 60
Guðrún M. Guðmundsdóttir / FEMÍNÍSKT UPPELDI »Eitt af því dýrmætasta sem ég öðlaðist við að verða femínisti er samkennd með rétt- indabaráttu ýmissa hópa sem eiga það sameiginlegt með konum að standa utan þess hóps sem ríkjandi samfélagsnorm eru miðuð út frá, þ.e.a.s. hvítum, gagnkynhneigðum, vestrænum, ófötluðum, vel menntuðum, kristnum körlum í góðum efnum. Við það að verða femínisti lukust augu mín nefnilega upp fyrir allskyns ranglæti sem ég áður hafði ekki tekið eftir. Lúmsk-rasískar athugasemdir á borð við: „Ég hef ekkert á móti þessu fólki svo lengi sem það reynir að aðlagast okkar menningu," fóru að koma óþægilega við mig. Svo og yfirlýsingar með létt-hómófóbísku ívafi, samanber: „Lesbíur og hommar eiga auð- vitað að hafa fullan rétt til að gifta sig en er ekki fulllangt gengið að þau fáilíka að ætt- leiða börn?!" fór að stinga óþægilega. * Eftir á að hyggja sé ég að þessi rétt- lætisvakning mín var í raun afar eðli- legur fylgifiskur þess að verða femínisti þar sem að innan ismans leynast gagnleg tól til að svipta hul- unni af allskonar óréttlæti, að hverj- um svo sem það kann að beinast, sem viðgengst í samfélaginu og þykir jafnvel sjálfsagt. Innrásin í írak og hernám þess álít ég vera eitt grófasta dæmi um vald- níðslu sterkra afla gegn hinum veikari sem ég hef orðið vitni að og kom það mál mér í allsherjar óstuð. Ég skynjaði mig þvingaða til að sitja undir þrot- lausum áróðri ríkustu og valdamestu þjóða heims um nauðsyn þess að ráðast inn í pólitískt einangrað, van- máttugt og óvinsælt múslímaríki og kallaði það fram hjá mér varnarvið- brögð. Margir hrifust af sannfæring- arkrafti hinna valdamiklu - bæði þjóðir, einstaklingar og jafnvel nokkr- irvina minna (mértil mikillar skelfing- ar), og lögðu þannig blessun sína yfir loftárásir sem murkuðu lífið úr þús- undum írakskra borgara, særðu fleiri, jöfnuðu íbúðarhús, skólabyggingar, sjúkrahús og hvað ekki við jörðu og til að bæta gráu ofan á svart var ódæðið framið f nafni réttlætis, friðar og lýðræðis. Þrátt fyrir að bandamenn íslend- inga eignuðu sér skilgreiningarrétt- inn á því hvað væri rétt og rangt í þessari deilu, eins og gengur með þá sem eru valdameiri, gekk þeim þó engu að síður illa að færa fram full- nægjandi rök fyrir árásinni. Þegar til dæmis kunngert var að ekki væri möguleiki að tengja Al-Kaida hryðju- verkasamtökin við ríkisstjórn Saddam Hussain varð meint efna- og kjarna- vopnaeign (raka að meginrökunum. Þannig hélt örvæntingarfull leit þeirra að réttlætingu áfram fram að innrás og óhætt er að segja að henni sé ekki enn lokið. Ósamræmið skal ekki undra því víst er að hinar raun- verulegu ástæður að baki innrásar- innar og hernámsins myndu ekki standast alþjóðalög. Ég vona að minnsta kosti að græðgi í olíulindir annarra þjóða, ný-heimsvaldastefna og karlmannlegt stolt George W. Bush yngri, (sem taldi það skyldu sína að Ijúka verki sem faðir hans hóf á for- setaferli sínum), myndu ekki uppfylla kröfur alþjóðasamfélagsins á stríðs- brölti. Að vera staðfastur íslendingur Á meðan á öllum þessum íraksósköp- um stóð spunnust miklar og oft heit- ar umræður um málið á heimilinu, (þ.e. sambúðarfólk, börn og stjúp- börn). Okkur fullorðnu fjölskyldu- meðlimunum ofbauð svo þessi vest- ræni hroki, sem afhjúpaðist skýrt í þessu máli, að við fundum okkur knú- in til að hefja pólitískt friðaruppeldi þegar í stað og notuðum tækifærið jafnframt til að leiða samræðurnar inn á ýmis tengd málefni, svo sem rasisma, múslímafordóma, vopn, 60 / 5-6. tbl. / 2003 / vera

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.